Jóhannes Geir Sigurgeirsson :
Virðulegi forseti. Ég hafði ekki ætlað mér að taka þátt í þessari umræðu hér fyrst og fremst vegna þess að ég var á mælendaskrá þegar utandagskrárumræðu um álmálið var slitið í fyrrinótt og hafði hugsað mér að blanda mér í þá umræðu þegar hún væri tekin upp aftur, eins og þá var gefið fyrirheit um af hæstv. forseta sameinaðs þings, í sameinuðu þingi á morgun, fimmtudag.
Það voru þó orð síðasta ræðumanns sem gerðu það að verkum að ég ætla að segja hér örfá orð. Ég byrja nú á því að spyrja hvort það geti átt sér stað að síðasti ræðumaður sé við það að taka þátt í prófkjöri hér einhvers staðar á Suðurnesjum. ( Gripið fram í: Það er rétt.) Það mun rétt vera. En burtséð frá því þá fannst mér orð hans um ,,landsbyggðarlúðra`` alls ekki tilhlýðileg úr þessum stól og frá þingmanni á Alþingi Íslendinga. Sú umræða sem hefur verið um byggðamál hér undanfarið hefur ekki í nokkru tilfelli snúist um það að landsbyggðarfólk ætti að hafa forréttindi umfram höfuðborgarsvæðið. Hún hefur snúist um það hvað við gætum gert og hvað væri nauðsynlegt að gera til þess að fólkið í landinu stæði allt jafnfætis og við gætum í raun talað um eina þjóð í einu landi.
Við höfum búið við það nú um árabil, og þar hefur Alþingi sofið á verðinum ekkert síður en aðrir, að þjóðfélag okkar hefur verið að breytast úr fábreyttu framleiðsluþjóðfélagi sem fyrst og fremst snerist um það að fullnægja okkar nauðþurftum yfir í allsnægtaþjóðfélag sem byggist mikið orðið á þjónustugreinum. Við höfum sofið á verðinum hvað það snertir, án þess að við gáðum nægilega að hefur þróunin orðið sú að þjónustugreinarnar hafa nær alfarið byggst upp hér á höfuðborgarsvæðinu og þess hafa íbúar þess svæðis notið, ekki bara Stór - Reykjavíkursvæðisins hvort sem mörkin á milli þess eru nú dregin um sædýrasafnið eða einhvern annan stað, heldur aðrir næstu íbúar höfuðborgarinnar. Þarna hafa ríkisstjórnir, og nú tala ég ekki um neina eina sérstaka um langt árabil, svo og Alþingi sofið á verðinum. Ef aukin velta í okkar þjóðfélagi, sem við hljótum að gera kröfu til að komi ef við förum í orkusölu, hvort sem við seljum orku til álbræðslu eins og iðnrh. vill eða tökum þátt í tilraunaverkefni vegna útflutnings á vetni eins og Stefán Valgeirsson vill og margir fleiri, ef þær auknu þjóðartekjur sem við hljótum að gera kröfu til að af þessu komi, ef þær renna inn í þessa sömu miðstýrðu hringiðu sem hefur verið í gangi undanfarið, þá er illa komið fyrir okkar þjóðfélagi. Þá verðum við að grípa til róttækra aðgerða til þess að dreifa fjármagninu á nýjan hátt. Þar hlýtur að koma til kasta Alþingis og ríkisstjórnar.
Anna Ólafsdóttir Björnsson :
Virðulegi forseti. Ég hafði raunar heldur ekki ætlað mér að taka þátt í þessari umræðu þar sem ég kynnti mínar skoðanir og okkar kvennalistakvenna einkum í atvinnumálum varðandi álver eða aðra atvinnukosti mjög ítarlega hér á mánudagskvöldið. En ég get ekki setið hér hjá vegna þeirra orða sem féllu
um atvinnuleysið í Reykjaneskjördæmi.
Atvinnuleysi er afskaplega alvarlegt mál hvar sem það er til staðar og ég vil benda á hverjir það eru sem eru atvinnulausir. Það eru nefnilega fyrst og fremst konur en ekki karlar, bæði ef litið er á landið sem heild og ekki síst sést þetta í Reykjaneskjördæmi þar sem frá janúar og fram í september var 1% atvinnuleysi meðal karla en 3% atvinnuleysi meðal kvenna. Við höfum verið óþreytandi, kvennalistakonur, að benda á önnur atvinnutækifæri en stóriðju, önnur og betri atvinnutækifæri sem byggja á bæði þeirri hefð og þeirri reynslu og þeirri verkþekkingu sem við höfum hér í landinu og einnig á þeirri nýsköpun sem verður að verða hér og hlýtur að verða. Við höfum bent á að ekki má spara til rannsókna og við höfum bent á að ekki má eyða öllu fé í stóriðjudrauma þegar atvinnuvegir sem eru vænlegir, svo sem ferðaþjónusta, sem skila miklum arði og sýna mikla framtíðarmöguleika þurfa að leita í mun magrari sjóði og ég held að við verðum að endurtaka þetta enn og aftur.
Ég vil Reyknesingum sem öðrum landsmönnum það að hér byggist upp heilbrigð atvinnustefna, að fullvinnsla sjávarfangs verði eitthvað annað en orð í munni, verði framkvæmd, því að það eru dæmi til þess að þetta er mjög raunveruleg atvinnugrein ef vel er á málum haldið og vel hugað að rannsóknum, vöruþróun og markaðskynningu. Við eigum annarra kosta völ en stóriðjunnar til þess að mæta því atvinnuleysi sem kemur upp á hverjum stað og á Reykjanesi með blessunarlegum samdrætti, ef af verður, á hernaðarumsvifum þar og við verðum að líta þangað sem einhverja skynsamlega atvinnuuppbyggingu er að hafa.