Rannsókn álmálsins
Miðvikudaginn 17. október 1990


     Hreggviður Jónsson :
    Hæstv. forseti. Aðeins örfá orð. Vegna ummæla hv. 1. þm. Norðurl. e. ætla ég að upplýsa það að þó menn fari í prófkjör þá þýðir það ekki sama og menn verði skoðanalausir. Þeir eru nefnilega kosnir til að hafa skoðanir og álit á hlutum. Og hvað varðar þann misskilning hér á orðavali mínu, en það vill nú svo til að menn nota oft myndmál og í mínum huga er lúður eða trompett tengdur tónlist. Þeir sem láta heyra hátt og snjallt í sér og leika sína laglínu svo vel að allir megi heyra, þeir eru auðvitað góðir hljóðfæraleikarar. Það er það sem landsbyggðarmenn hafa gert og ekkert annað, ef menn hafa eitthvað misskilið það.
    En ég vil einnig taka undir það sem hv. 6. þm. Norðurl. e. sagði hér og gagnrýndi hæstv. iðnrh. fyrir vinnubrögð hans í þessu máli og tel að það eigi í raun að ræða þau mál alveg sérstaklega hvernig hann reyndi að etja byggðum saman með þeim hætti sem hér hefur komið fram í máli hv. 6. þm. Norðurl. e.
    Ég vil að lokum einnig ítreka mína skoðun á því að atvinnuleysi er böl og að atvinnuleysi kvenna skapast auðvitað af heildaratvinnuástandinu, ekki af því að það sé stefna að gera konur atvinnulausar fremur en karla. En það vill þannig til að það er heildarástand atvinnuleysisins sem skiptir máli. Annað vil ég ekki segja um þetta að sinni.