Ráðstafanir vegna kjarasamninga
Miðvikudaginn 17. október 1990


     Fjármálaráðherra (Ólafur Ragnar Grímsson) :
    Virðulegi forseti. Ég mæli hér fyrir frv. til laga sem felur í sér staðfestingu á bráðabirgðalögum sem gefin voru út 17. júlí sl. Þau bráðabirgðalög voru gefin út í þeim tilgangi að draga úr fyrirhugaðri hækkun framfærsluvísitölu í því skyni að þeim markmiðum, sem sett voru í kjarasamningum aðila vinnumarkaðarins og ríkisins og BSRB í febrúar sl., yrði náð. Bráðabirgðalögin fólu í sér að annars vegar var flýtt niðurfellingu virðisaukaskatts af bókum. Samkvæmt gildandi lögum um virðisaukaskatt átti virðisaukaskattur af íslenskum bókum að falla niður 16. nóv. en með bráðabirgðalögunum var kveðið á um það að frá og með 1. sept. yrðu bækur á íslensku undanþegnar virðisaukaskatti.
    Seinna atriðið í lögunum fól í sér að afnumin voru þau skilyrði sem voru í gildandi virðisaukaskattslögum hvað snerti endurgreiðslu á virðisaukaskatti varðandi endurbætur og viðhald á húsnæði þannig að fest var í lög sú regla að virðisaukaskattur af vinnu við endurbætur á íbúðum yrði endurgreiddur í samræmi við skattalega meðferð slíkrar endurgreiðslu við nýbyggingar.
    Bæði þessi mál eru hv. alþm. vel kunnug og um þau hefur verið fjallað hér á Alþingi áður. Ég gerði tillögu á síðasta þingi um að bækur á íslensku yrðu undanþegnar virðisaukaskatti og þingið féllst á hana. Með þessum bráðabirgðalögum var gildistöku þeirrar breytingar flýtt. Á síðasta þingi kom einnig töluvert til umræðu með hvaða hætti ætti að endurgreiða virðisaukaskatt af vinnu við íbúðarhúsnæði og eftir ítarlega athugun skattyfirvalda á framkvæmd þess máls varð það niðurstaða embættismanna skattkerfisins að í senn væri eðlilegt og öruggt að framkvæma endurgreiðslurnar með þeim hætti sem hér er lagt til.
    Hvað fyrra atriðið snertir, niðurfellingu virðisaukaskatts af bókum á íslensku, má áætla að það hafi í för með sér kringum 400 millj. kr. tekjutap á ári fyrir ríkið og er þess vegna í eðli sínu kannski einhver stærsta fjárhagsaðgerð gagnvart íslenskum bókmenntum sem þingið hefur ákveðið. Flýtingin ein og sér þýðir u.þ.b. 50 millj. kr. tekjutap fyrir ríkið á þessu ári. Hins vegar er mun erfiðara að setja fram nokkrar fjárhagsáætlanir varðandi síðara atriðið en verður e.t.v. auðveldara að gera það þegar reynsla hefur fengist á skipan þessara mála.
    Ég vil svo mælast til þess, virðulegi forseti, að að lokinni 1. umr. verði þessu frv. vísað til hv. fjh.- og viðskn.