Ráðstafanir vegna kjarasamninga
Miðvikudaginn 17. október 1990


     Hreggviður Jónsson :
    Hæstv. forseti. Aðeins örfá orð um þetta frv. til laga um ráðstafanir vegna kjarasamninga. Ég vil láta það koma fram hér að út af fyrir sig er það til bóta að fólk fái niðurfelldan virðisaukaskatt af vinnu við endurbætur á húsnæði. Þetta þýðir jafnframt það að sú regla sem hér var samþykkt um að menn gætu fengið frádrátt vegna viðhalds á húsnæði samkvæmt ákveðinni prósentu af fasteignamati, þetta getur orðið til þess að þeir sem standa í miklu viðhaldi gætu tapað stórfé á því að þetta er tekið upp. Það gæti farið svo að menn eru á þeim mörkum vegna þess að sú prósenta var afar há ef ég man það rétt. En þessi regla virðist eins og allar aðrar reglur sem ríkið setur vera með þeim hætti að það skaðar almenning vegna þess að hér er fé manna bundið í mislangan tíma, vaxtalaust og verðbótalaust, þar til ríkissjóði þóknast að endurgreiða það, þó að ríkið sé búið að fá féð í sinn kassa.
    Nú vil ég spyrja hæstv. fjmrh. og bið hann að hlusta vandlega vegna þess að ég hef heyrt að töluverður fjöldi fólks hefur áhuga á að fá að vita ákveðna hluti. Það er í fyrsta lagi: Hvenær koma eyðublöðin sem almenningur á að fá til að fylla út þegar hann hefur lokið við viðhaldsverkefnið og óskar eftir endurgreiðslum? Og í öðru lagi: Hvenær verður reglugerðin gefin út, sem hlýtur að verða gefin út með þessum lögum, þannig að fólk geti séð hvenær það eigi von á endurgreiðslum og með hvaða hætti? Það hefði verið nauðsynlegt að leggja þessa reglugerð fram jafnhliða frv. þannig að menn mættu sjá hvernig framkvæmdin yrði á þessu.
    Hitt er annað mál að ég tel að svört atvinnustarfsemi muni aukast við þessar aðgerðir, ég er alveg sannfærður um það, vegna þess að ef fólk þarf að bíða mjög lengi eftir að fá endurgreiðslu, þá er alveg ljóst að stefnir í það. Þetta er bara eðli þessara hluta, að fólk er að reyna að bjarga sér, fólk hefur ekki of miklar tekjur vegna aðgerða þessarar ríkisstjórnar í skattamálum. Tekjur almennings í landinu eru ekki það miklar að menn hugsi sig ekki um tvisvar áður en þeir fara að fjármagna ríkissjóð.