Ráðstafanir vegna kjarasamninga
Miðvikudaginn 17. október 1990


     Hreggviður Jónsson :
    Hæstv. forseti. Ég þakka hæstv. fjmrh. fyrir svör hans við þessu. Ég fagna því sem hann upplýsir hér og ég tel það nýjung sem hann segir okkur, að þessir fjármunir muni halda að fullu verðgildi sem þýðir þá væntanlega verðbætur og vexti af þeim fjármunum sem fólk leggur út fyrir virðisaukaskattinum. Ég tel að það sé þá um leið stefnumarkandi varðandi fé sem fólk á hjá hinu opinbera að við megum vænta þess í framtíðinni að ef fólk er ofskattað, þá muni fjmrh. koma hér fljótlega fram með þá tillögu að menn fái oftekna skatta greidda með fullum verðbótum og vöxtum. Ég vil einnig fagna því að það eigi að gera góðan upplýsingabækling í þessu máli. Það er auðvitað brýnt samt sem áður, þó að fjmrh. hafi sagt að það væri full vinna í gangi hjá ríkisskattstjóra um þetta mál, að fólk fái sem allra fyrst eyðublöð til þess að fylla út og óska eftir endurgreiðslum. Því að þrátt fyrir allt standa flest viðhaldsverkefni í stuttan tíma, alla vega ekki mikið meira en mánuð. Það er auðvitað sú stærðargráða sem mun verða algengust, frekar lítil en þó kannski oft dýr verkefni. Það er því mikilvægt að almenningur fái sem allra fyrst möguleika á því að fá endurgreiðslur og vita hvernig þeim verður hagað.