Jöfnun orkukostnaðar
Fimmtudaginn 18. október 1990


     Fyrirspyrjandi (Hjörleifur Guttormsson) :
    Herra forseti. Ég þakka hæstv. ráðherra fyrir að hafa svarað fsp. en ég er afar óánægður með svörin. Mér finnst að það standi mjög upp á stjórnvöld að standa fyrir aðgerðum í þessu máli, ákveðnum aðgerðum, nú þegar í byrjun þings. Þegar við ræddum þetta mál fyrir ári tilkynnti hæstv. ráðherra að hann væri að láta athuga þessi mál á vegum Hagfræðistofnunar Háskólans og vænti tillagna þaðan og hann mundi móta tillögur sínar í framhaldi af því. Nú er sem sagt liðið ár og nú kemur ráðherra og segist hafa skipað nefnd og væntir þess að hún skili frv. fyrir þinglok. Þetta gengur að sjálfsögðu ekki upp. Varðandi þetta, eitt stærsta misréttið í landinu, að ætla að koma hér til þings með þessum hætti finnst mér ekki vera í samræmi við anda stjórnarsáttmála og það finnst mér ekki vera boðlegt fyrir fólkið í landinu.
    Hæstv. ráðherra var að rekja hér tölur frá byrjun áratugarins og hann kaus það í sambandi við almennan heimilistaxta að taka árið 1980 en ekki 1981, 1982 og 1983 þegar mismunurinn var kominn niður í 21% eða svipað og nú er á þessum taxta. Þetta tókst á þeim árum þegar við bjuggum við afarkjör í viðskiptum við Ísal eins og menn muna.
    Hæstv. ráðherra sagði að nefndinni væri ætlað að fjalla um jöfnun á raforkukostnaði. Spurningin er um jöfnun á orkukostnaði í landinu í heild sinni, ekki eingöngu á raforkunni. Það gerðist fyrr á þessu ári, virðulegi forseti, að Landsvirkjun lækkaði um helming þann afslátt sem hún hafði veitt vegna húshitunarrafmagns, niður í 15 1 / 2 eyri 1. febr. sl. ef ég man rétt. Þetta var rangt skref, þetta var slæmt skref. Rafmagnsveitur ríkisins borga í rauninni með húshitunartaxtanum og þær máttu síst við því að þarna yrði dregið úr.
    Hér verða að koma aðgerðir og ég heiti á þingmenn að standa saman um það að spyrna nú við fótum og ná fram aðgerðum í þessu máli fyrir afgreiðslu fjárlaga, fyrir jól.