Alexander Stefánsson :
Virðulegi forseti. Ég vil aðeins koma inn á þetta mál hér og þakka fyrirspyrjanda. Hér er um að ræða eitt af grundvallarmálum í jöfnun aðstöðu fólks í landinu sem er búið að ræða á undanförnum þingum hvað eftir annað. Mér finnst það sorgleg staðreynd að við skulum standa frammi fyrir því að ekkert hafi verið gert til þess að koma með raunhæfa lausn á þessu máli sem lægi fyrir núna í þingbyrjun. Það er út af fyrir sig gott að skipuð hefur verið nefnd, en aðalatriðið er það að við þurfum að fá úrslit í þessi mál. Og ég vil segja það í sambandi við nýjar orkuframkvæmdir sem fyrirhugaðar eru að það verður að vera búið að leysa þetta mál áður en það verður afgreitt hér á Alþingi.
Það hefur margsinnis komið fram að það er hörð andstaða gegn því að þetta mál verði skilið eftir. Þetta er eitt af grundvallaratriðum í sambandi við aðstöðu fólks í landinu sem það er búið að bíða eftir ár eftir ár. En því miður hefur alltaf verið einhver veggur hér til fyrirstöðu á Alþingi að finna lausn á þessu sjálfsagða máli eins og við verðlagningu á öðrum vörum sem eru á sama verði hvar sem er í landinu eins og mjólk og olía og annað slíkt. Þetta er grundvallarmál sem verður að vera komin lausn á áður en afgreidd eru þungavigtarmálin hér sem á eftir að takast á um í sambandi við nýjar orkuframkvæmdir og nýja stóriðju. Það verður að leysa þetta mál áður.