Jöfnun orkukostnaðar
Fimmtudaginn 18. október 1990


     Forseti (Guðrún Helgadóttir) :
    Forseti vill gera þá athugasemd að hún beindi nú einkum máli sínu til hv. 4. þm. Austurl. sem þegar skildi athugasemd forseta og dró sína beiðni til baka. Forseti leyfir að sjálfsögðu hv. fyrirspyrjanda eins og hv. fyrri fyrirspyrjanda hér á fundinum að gera örstutta athugasemd en mælist jafnframt til þess að sú verði ekki hefð hér í þinginu heldur verði farið að þingsköpum.