Jöfnun orkukostnaðar
Fimmtudaginn 18. október 1990


     Viðskiptaráðherra (Jón Sigurðsson) :
    Virðulegi forseti. Enginn dregur í efa að það er orkukostnaðarmunur í landinu. Okkur greinir eingöngu á um það hvernig skynsamlegast sé að fara að því að draga úr honum. Það er í raun og veru allt sem segja þarf. Það er athyglisvert að hér er það staðfest að þessi munur hefur ekki verið í annan tíma minni og að raunverð á orku hefur líka lækkað. Þetta skyldu menn hafa hugfast þegar þeir ræða þetta mál. En það dregur alls ekki úr mikilvægi þess að taka á málinu og freista þess að finna bestu leiðir heima í héraði og á Alþingi til þess að draga úr þessum mun.