Framkvæmd flugmálaáætlunar
Fimmtudaginn 18. október 1990


     Jón Kristjánsson :
    Virðulegi forseti. Ég þakka virðulegum forseta fyrir að hafa leyft þessa umræðu, en ég kveð mér hljóðs utan dagskrár um framkvæmd flugmálaáætlunar.
    Tillaga til þingsályktunar um flugmálaáætlun fyrir árin 1990 -- 1993 var samþykkt á Alþingi þann 4. maí sl. Þessi áætlanagerð markaði á sínum tíma tímamót í framkvæmdum í flugmálum hér á landi og er hliðstætt plagg og vegáætlun sem unnið er eftir í þeim málaflokki. Nú er langt liðið á árið og vetur gengur í garð og sá tími sem hentugastur er til framkvæmda er að renna út og allra veðra von. Enn hafa ýmsar framkvæmdir sem ákveðnar voru með flugmálaáætlun í maí sl. ekki verið hafnar.
    Þann 8. okt. sl. barst síðan bréf til fjvn. Alþingis frá Flugmálastjórn þar sem lagt er til að fjölmörgum framkvæmdum víða um land verði frestað og lagðar til breytingar á flugmálaáætlun næsta árs til að mæta þeirri frestun. Jafnframt er upplýst að einstaka framkvæmdir hafi farið umfram kostnaðaráætlanir. Hér er um alvarlegt mál að ræða og meðal framkvæmda sem er frestað eru stórframkvæmdir á mælikvarða flugmála. Eins og kemur fram í fsp. sem hv. 4. þm. Austurl. hefur lagt fram á þskj. 26 eru þessar frestanir upp á 51,6 millj. kr. í Austurlandskjördæmi og þar af stærsta framkvæmd á sviði flugmála á þessu ári, eða hluti af henni sem er til flugbrautar á Egilsstöðum, 30 millj.
    Ég vil því beina nokkrum fsp. til samgrh. varðandi þetta mál og sú fyrsta er þessi: Með hverjum hætti hefur verið fjallað um þetta mál í samgrn. og eru þær tilfærslur sem lagðar eru til með vitund og vilja ráðherra?
    Í öðru lagi: Hvaða ástæður liggja að baki ákvörðunum um frestun einstakra framkvæmda?
    Í þriðja lagi: Með hvaða hætti hefur verið haft samráð við þingmenn einstakra kjördæma um þessar ákvarðanir, svo sem gerist í öðrum málaflokkum sem falla undir viðlíka áætlanagerð?
    Í fjórða lagi: Hvaða áform eru uppi um að leysa rekstrarvanda Flugmálastjórnar sem hefur verið til umræðu að undanförnu?
    Ég lýk máli mínu hér í upphafi með því að undirstrika það að vilji Alþingis kemur fram í flugmálaáætlun og þess vegna er beiðni fram komin um að þetta mál verði rætt utan dagskrár. Það er nauðsynlegt að þingheimur fái upplýsingar um þetta mál og tíminn er naumur til að bæta hér úr á þessu ári sem rétt er og skýlaus krafa og vilji Alþingis.