Framkvæmd flugmálaáætlunar
Fimmtudaginn 18. október 1990


     Egill Jónsson :
    Virðulegi forseti. Hæstv. samgrh. sagði í ræðu sinni að hér væri um að ræða sams konar tilfærslur og oft ættu sér stað innan hliðstæðra áætlana. Ég mótmæli þessu. Ég kann ekki neitt dæmi um það að tekið sé nálega allt framkvæmdafé úr einu kjördæmi og dreift víðs vegar um landið eins og hér hafa verið teknar ákvarðanir um. Og það sýnir náttúrlega það eitt út af fyrir sig hvernig yfirstjórn þessara mála er þegar hæstv. samgrh. er með skýringu af þessum toga. Málið er líka einfalt. Hér er ekki um að ræða neinar sérstakar nýjar breytingar á áætlun. Það eru tekin inn mörg ný verkefni. Ég hef lesið þetta saman. Flugmálaáætlun gerir t.d. ráð fyrir 28,2 millj. til Reykjavíkur. Nýjar tillögur gera ráð fyrir 28 millj. kr. til viðbótar. Ef ég fer í kjördæmi og heimabyggð hæstv. ráðherra gerir flugmálaáætlun ráð fyrir 11,4 millj. í nýja flugbraut en viðbótin er 11,5 millj. Og svona mætti lengi telja, t.d. eins og með Grímsey. Þar gerir flugmálaáætlun ráð fyrir 7,6 millj. en 4 millj. er bætt við. Hér er að sjálfsögðu um að ræða alveg einstaka ákvörðun sem á sér enga hliðstæðu. Það eru þó málsbætur í þessum efnum að hæstv. samgrh. gengst við þessu og tekur þetta í forsvar. Ég minni á það að 4. maí sl. var gengið með samkomulagi frá flugmálaáætlun á Alþingi Íslendinga. Menn skyldu nú bera saman framkvæmd og þá ákvörðun og sjá hvað kemur út. Hér er um hneyksli að ræða í framkvæmd þessara mála.
    Ég vil svo vekja athygli á því að ég hef lagt fram fsp. um þetta efni á Alþingi sem væntanlega verður svarað innan skamms og þá gefst betri tími til að ræða þetta mál í einstökum atriðum.