Bráðabirgðalög um launamál
Fimmtudaginn 18. október 1990


     Forseti (Guðrún Helgadóttir) :
    Vegna þessara orða vill forseti upplýsa að það er nákvæmlega eins ástatt um bæði málin. Þegar hv. 3. þm. Austurl. bað um að fá að ræða flugmálaáætlun þá var það þskj. ekki komið fram sem fjallar um það mál. Sá hv. þm., 3. þm. Austurl., bað raunar aldrei um nema hálftíma umræðu. En ég sé ekki annað en þessi mál séu í sömu stöðu og þess vegna fái báðir beiðendur utandagskrárumræðu nákvæmlega sömu meðferð og vænti ég þess að umræða utan dagskrár um bráðabirgðalögin geti nú hafist.