Hjörleifur Guttormsson :
Virðulegur forseti. Ég var algjörlega andvígur setningu þeirra bráðabirgðalaga sem rætt er um hér utan dagskrár. Ástæðurnar fyrir því voru þær að ég taldi að hér væri rangt að staðið í grundvallaratriðum í sambandi við samningsrétt í landinu. Þetta mál snerist ekki um launamun í þessu þjóðfélagi, eða slíka hluti, heldur um samskipti aðila á vinnumarkaði og afstöðu ríkisvaldsins til þeirra. Í þessu tilviki var ríkisvaldið sjálft samningsaðilinn, það hafði fengið á sig dóm. Hæstv. forsrh. segir hér: Dómnum var ekki breytt en forsendur sem dómurinn byggði á voru felldar út. Það voru hans orð hér. Hvert var dómsorðið? Ég leyfi mér, virðulegur forseti, að lesa það, frá 23. júlí frá félagsdómi: ,,Af orðalagi 6. mgr. 5. gr. er ljóst að ákvæðið mælir fyrir um greiðslur ef framkvæmd kjarasamanburðarins dregst fram yfir 1. júlí 1990. Verða hin tilvitnuðu ákvæði ekki skýrð á annan veg en þann að stefnda beri að greiða félagsmönnum stefnanda upp í hækkun sem þeir kunna að eiga rétt á samkvæmt kjarasamanburðinum þar sem honum var ekki lokið hinn 1. júlí 1990.`` --- Þetta er dómsorðið. Niðurstaðan af bráðabirgðalögunum er sú að þessu er breytt í reynd en aðalatriðið er það, virðulegur forseti, að hér er gripið með alröngum hætti inn í samninga. Og þó að ríkisvaldið telji sig hafa skammtímaávinning af því þá er ég sannfærður um það að tjónið til langs tíma er miklu meira, líka efnahagslega séð, en það sem ávinningurinn kann að vera til skamms tíma að sumra mati.