Bráðabirgðalög um launamál
Fimmtudaginn 18. október 1990


     Danfríður Skarphéðinsdóttir :
    Virðulegur forseti. Ég vil taka undir áskorun hv. síðasta ræðumanns, 12. þm. Reykv., að hæstv. forsrh. geri tilraun, eftir þá ítarlegu lögfræðilegu umræðu sem hann segir að hafi farið fram í ríkisstjórninni í tengslum við þessa bráðabirgðalagasetningu, til að svara þeim spurningum sem hér voru fyrir hann lagðar. En það virðingarleysi og mér liggur við að segja sú fyrirlitning sem fram kemur í garð Alþingis, fólksins í landinu og dómstólanna staðfestist auðvitað í máli hæstv. forsrh. hér áðan. Það var undarlegt að fylgjast með viðbrögðum hæstv. ráðherra, bæði fjmrh. og forsrh., sl. sumar þegar dómur félagsdóms lá fyrir.
    Varðandi þá umræðu sem hér hefur farið fram um það hvort þessi utandagskrárumræða ætti rétt á sér í sameinuðu þingi vil ég undirstrika það að bráðabirgðalögin sem slík koma til efnislegrar umfjöllunar í Nd. en ég taldi vegna mikilvægis málsins að það væri alveg nauðsynlegt að þau yrðu líka rædd hér í Sþ. þar sem um svo mikilvægt mál er að ræða.
    Það eru ýmsar grundvallarspurningar sem maður hlýtur að velta upp. Ég vil t.d. benda á að þessi bráðabirgðalög beinast að tilteknum hópi launamanna sem fengu samnings - og verkfallsrétt 1. janúar 1987. Í lok ágúst á næsta ári þegar þessum ólögum sleppir, ef þau verða þá ekki felld hér sem ég á auðvitað miklu frekar von á, mun þeirra saga vera slík að allir kjarasamningar þessa tiltekna launahóps hafa verið eyðilagðir með bráðabirgðalögum og þeir hafa um 40% af þeim tíma sem þeir hafa haft samnings- og verkfallsrétt mátt sitja undir bráðabirgðalögum.
    Það gefst auðvitað allt of lítill tími í þessari umræðu til þess að fara út í þau fjölmörgu atriði sem þyrfti að ræða, en mig langar til aðeins í lok máls míns að lesa bréf sem mér barst frá grunnskóla - og framhaldsskólakennurum á Akureyri, og reyndar okkur öllum þingmönnum Vesturlands. Þar segir, með leyfi forseta:
    ,,Þann 3. ágúst sl. setti ríkisstjórn Íslands bráðabirgðalög sem nema úr gildi kjarasamninga nokkurra félaga í BHMR. Þessi bráðabirgðalög vekja áleitnar spurningar um hvort Ísland sé réttarríki. Ýmsir lögfróðir menn telja að þau brjóti í bága við stjórnarskrá lýðveldisins og alþjóðasáttmála sem Ísland á aðild að. Að okkar mati eru þessi bráðabirgðalög í hæsta máta siðlaus og óskynsamleg. Þú ert kjörinn fulltrúi okkar og við treystum því að þegar bráðabirgðalög þessi verða borin undir Alþingi, þá skoðir þú vandlega öll rök í málinu og greiðir atkvæði eins og samviska þín býður.``
    Ég vil ljúka máli mínu með því að minna á að við hv. þm. höfum öll að viðlögðum drengskap heitið að halda stjórnarskrána og skora ég því á hv. þm. að fella bráðabirgðalögin þannig að þau verði ekki fordæmi fyrir komandi ríkisstjórnir og fólkið í landinu.
    Ég vil svo enda orð mín á því að átelja ríkisstjórnina enn og aftur harðlega fyrir þessi vinnubrögð sem eru að mínu mati forkastanleg og bera vott um

siðblindu. Ríkisstjórn sem setur lög á eigin gerðir er ekki hæf til að stjórna landinu og ætti því að fara frá.