Bygging og rekstur álvers
Fimmtudaginn 18. október 1990


     Forsætisráðherra (Steingrímur Hermannsson) (um þingsköp) :
    Virðulegi forseti. Ég vil upplýsa að þau boð bárust inn á ríkisstjórnarfund í morgun að þessi umræða yrði kl. hálfþrjú. Ég veit ekki betur en hæstv. iðnrh. hafi staðið í þeirri trú svo að það er eflaust ástæðan fyrir því að hann er ekki hér. Var þetta rangt sem okkur var tjáð?