Bygging og rekstur álvers
Fimmtudaginn 18. október 1990


     Kristinn Pétursson :
    Hæstv. forseti. Það þarf varla að fjölyrða mikið um það að nauðsynlegt er að fjölga atvinnutækifærum hér á landi með það að markmiði að auka þjóðarframleiðslu og bæta þannig lífskjörin í landinu. Ég tel að um þessar mundir beri mjög brýna nauðsyn til þess að auka framleiðsluna til að greiða niður þær erlendu skuldir sem þjóðin hefur sökkt sér í. Og ég held að forsenda bættra lífskjara og skattalækkunar, sem er draumur flestra, sé einmitt að auka framleiðsluna og tekjur heimilanna. Ég lýsi því þess vegna yfir að ég er stuðningsmaður þess að við beislum fallvötnin og komum hér á orkufrekum iðnaði í þessum tilgangi, að auka tekjur heimilanna í landinu. Ég verð hins vegar að lýsa vonbrigðum mínum með það hvernig málsmeðferðin, og þá sérstaklega í kringum staðarvalið, hefur verið.
    Eftir lauslega athugun mína á þeim gögnum sem fyrir liggja í þessu margnefnda staðsetningarmáli er niðurstaða mín, hvort sem málið er skilgreint út frá fræðilegu sjónarmiði eða út frá almennri skynsemi, alltaf sú sama því raunverulega var aldrei marktækur munur milli þeirra þriggja staða sem voru mest inni í þessari umræðu. Það er mín niðurstaða. Ég meina þá að þó að fleira fólk búi hér á suðvesturhorni landsins og það sé talið Keilisnesi til tekna í staðarvali vegur á móti annar hlutur og það er aukaþensla sem verður í landinu við það að reisa þetta stóriðjuver hérna sunnan lands. Það er óhjákvæmilegt að aukin þensla verði hér á höfuðborgarsvæðinu við það að velja þessu fyrirtæki stað þarna því að fólk mun í vaxandi mæli yfirgefa landsbyggðina og þá þarf það að byggja yfir sig aftur hér, þá þarf ný húsbréfalán, það þarf fleiri skóla og það þarf fleiri götur o.s.frv. Á sama tíma á að afskrifa hluti hinum megin á landinu, gera hluti verðlausa. Þetta hefur vond áhrif á efnahagslíf landsmanna. Ég verð að lýsa furðu minni á því að ekki skuli hafa farið fram athugun á mismunandi áhrifum á efnahagslíf landsmanna út frá mismunandi staðarvalskostum. Slík gögn eru engin fyrirliggjandi í þessu máli.
    Ég held að kjarni þessa máls sé kannski sá að hæstv. ráðherrar, iðnrh., forsrh., fjmrh. og umhvrh., hafi allir saman haft mestan áhuga á því að þetta álver skyldi rísa á Keilisnesi hvernig svo sem öll rökin í málinu voru. Ég minni á það að hæstv. forsrh. var einu sinni þingmaður landsbyggðarinnar og fáir hafa talað meira um byggðastefnu en Framsfl. Ég verð því að spyrja hæstv. forsrh. hvort Framsfl. hafi tekið ákvörðun um það að afskrifa endanlega byggðastefnuna og hvort þessi svokallaða byggðanefnd forsrh. sé bara til að vera með sjónhverfingar í fjölmiðlum og plata saklaust fólk. Mér finnst fullgróft að stunda sýndarmennsku í svona viðkvæmu máli eins og staðsetningu stóriðjuvers, vekja væntingar í hugum saklauss fólks eins og búið var að gera í heilt ár og valda því svo sárindum og vonbrigðum því raunverulega er það Alþingi Íslendinga sem ræður staðsetningarmáli. Alþingismenn eru kjörnir leiðtogar þjóðarinnar og eiga að taka ákvörðun um stefnumörkun í málum eins og þessu. Mér er ekki kunnugt um að Alþingi Íslendinga hafi falið hæstv. iðnrh. að framselja vald um staðsetningu stóriðjuvers í hendur einhverra samninganefnda. Alþingi hefur ekkert falið hæstv. iðnrh. umboð til slíks þó hann hafi nú gert það. Ég tel það vera móðgun við Alþingi og alþingismenn að láta þá standa allt í einu frammi fyrir gerðum hlut, hvort sem það heitir minnisblað í yfirlýsingu eða eitthvað annað. Það hefði a.m.k. verið lágmarkskurteisi að iðnn. Alþingis hefðu fengið að vinna með í þessu máli. Mér finnst þetta vera enn eitt sýnishorn af því sem ég hef margsinnis orðið vitni að hér sl. tvö ár, yfirgangi framkvæmdarvaldsins yfir kjörna leiðtoga þjóðarinnar. Að mínu mati átti ríkisstjórnin að koma með eigin tillögu um staðsetningu stóriðjuvers og leggja tillöguna fyrir Alþingi Íslendinga til staðfestingar. Þetta var einmitt tækifæri til að sporna við þeirri byggðaþróun sem allt stefnir í hér á landi, að allt þjappist saman hér á suðvesturhorninu. Þetta var einmitt stóra tækifærið til þess. Þetta var hið stóra tækifæri hæstv. forsrh. til að standa við orðin sín um byggðastefnu. Ég held að að þetta hafi fyrst og fremst átt að vera pólitísk ákvörðun, því ég tel að enginn marktækur munur sé milli staðarvalkosta þegar allt er tekið með í myndina, þar með talin aukaþensluáhrif á efnahagslífið, af að hafa þetta staðsett hér suðvestanlands.
    Ef við víkjum örlítið að hlut hæstv. umhvrh. í staðsetningarmálinu, þá var mengun fyrir örfáum vikum síðan ein af meginástæðunum fyrir staðarvali. En núna, nokkrum vikum síðar, eftir að staðarvalið var opinberlega kunngjört á frægu minnisblaði, kemur umhvrh. fram í sjónvarpi og telur mengun óverulega, jafnvel minni en að anda að sér sveitalofti. Það eru enn þá að berast nýjar upplýsingar um þessi mengunarmál, núna örfáum vikum síðar. Umhvrh. ætlar að láta búa til gifsplötur úr menguninni og setja nýja gerð af rafskautum í kerin svo að mengunin er engin orðin. Þar með er forsendan um mengun algjörlega úr sögunni, eða hvað? Hæstv. umhvrh., eru forsendur fyrir mengun enn þá til staðar í dag miðað við þær upplýsingar sem hafa komið síðan staðsetningarákvörðunin var tekin?
    Ég vil svo að lokum, hæstv. forseti, víkja aðeins að virkjunarmálum og langar til að spyrja hæstv. iðnrh. tveggja spurninga: Í fyrsta lagi hvort það standi til, varðandi fyrirhugaða virkjun í Fljótsdal, að bjóða einstaklingum, sveitarfélögum eða fyrirtækjum á Austurlandi að gerast eignaraðilar að Fljótsdalsvirkjun? Eða á eignamyndun vegna virkjunar fallvatna á Íslandi að vera öll hér við Háaleitisbraut í Reykjavík? Ef Landsvirkjun á að vera skuldlaus 12 eða 15 árum eftir aldamót, á sú eignamyndun sem í því felst öll að myndast við Háaleitisbraut? Eða verður Austfirðingum gefinn kostur á að gerast eignaraðilar? Hvaða hugmyndir hefur hæstv. iðnrh. um þetta mál? Og enn fremur hvort það hafi verið íhugað varðandi lögn háspennulínu að gera hálendisveg í leiðinni --- sem er jákvæður valkostur við lagningu háspennulínu?