Bygging og rekstur álvers
Fimmtudaginn 18. október 1990


     Forseti (Guðrún Helgadóttir) :
    Þar sem nú er kominn í húsið sá hv. þm. sem óskaði frestunar á umræðu, hv. 2. þm. Norðurl. e., vænti ég þess að hann vilji nú næstur taka til máls og halda áfram ræðu sinni. Má ég biðja þingvörð að finna hv. 2. þm. Norðurl. e. --- Það mun misskilningur að sögn þingvarðar að hv. 2. þm. Norðurl. e. sé í húsinu. Það er þá rangt skráð hér á tölvuskjá. En hv. þingmönnum til upprifjunar óskaði hv. 2. þm. Norðurl. e. eftir að umræðunni yrði frestað vegna þess að hæstv. forsrh. var ekki staddur hér í húsinu kl. tvö um nótt, eða hálftvö. Það hlýtur að vekja furðu forseta þar sem umræðunni varð þess vegna ekki lokið þá um kvöldið að hv. þm. skuli nú ekki sitja hér og hlýða á þessa umræðu sem hann óskaði frestunar á.