Bygging og rekstur álvers
Fimmtudaginn 18. október 1990


     Forseti (Salome Þorkelsdóttir) :
    Svo sem augljóst er er sá forseti sem hv. 2. þm. Norðurl. e. beinir orðum sínum að ekki hér í forsetastóli þessa stundina. Það er rétt að upplýsa að það mun vera stuttur fundur á skrifstofu forseta í þessu augnabliki og hún mun þá væntanlega koma hér fljótlega, en af þessari ástæðu sem ég hef nú greint þá geri ég ekki ráð fyrir að hv. 2. þm. Norðurl. e. ætlist til að ég bregðist við þessum athugasemdum hans heldur sé þeim beint í annan farveg og mun ég því láta þar við sitja.