Guðmundur G. Þórarinsson :
Virðulegi forseti. Í þessari umræðu hafa mörg orð fallið. Sjálfum þykir mér einna merkust sú yfirlýsing sjálfstæðismanna sem ég tel að komið hafi fram og hv. 1. þm. Reykv. hefur reyndar látið hafa eftir sér í Morgunblaðinu, að afstaða Sjálfstfl. í þessu máli muni ekki fara eftir afstöðu Alþb., þeir muni ekki láta Alþb. ráða afstöðu sinni í þessu máli. Þeir muni sjá til þess að nýr meiri hluti myndist á þingi til að ljúka þessu máli, eins og hv. 1. þm. Reykv. orðar það, ef stjórnin hefur ekki meiri hluta sjálf til að koma því fram. Ég hygg að margir hafi velkst nokkuð í vafa um þessa afstöðu Sjálfstfl. en ég vona að ég geti skilið þessi orð hv. 1. þm. Reykv. á þann veg að Sjálfstfl. muni taka málefnalega afstöðu til þessa máls en ekki gera það að bolta í pólitískum skollaleik.
Þetta mál sem hér er rætt er komið nokkuð vel á rekspöl. Ég hygg að við sjáum orðið fyrir endann á því máli og það eru verulegar líkur á því að það takist að ljúka þessu máli með þeim hætti að til byggingar álvers komi sem ég hef sjálfur lýst sem minni skoðun að sé mjög mikilvægur þáttur í efnahagslífi og hagkerfi Íslendinga á komandi árum. Ég ætla ekki að gera þetta mál almennt að umræðuefni enn á ný. En ég vil sérstaklega velta hér upp einum þætti málsins sem reyndar margir þingmenn hafa komið inn á en það er áhættuþátturinn.
Menn hafa gert það allmjög að umræðuefni að orkuverðið sem Íslendingar fá eftir að hafa ráðist í fjárfestingu í orkumannvirkjum upp á --- gæti verið 50 þúsundir milljóna íslenskra króna, það orkuverð sé alfarið tengt álverði. Síðan velta menn fyrir sér hvaða áhrif það muni hafa og hver þróun álverðs og álmarkaða kunni að verða á næstu árum. Ég gæti auðvitað sagt það hér í þessum ræðustól að álverð verði 1850 dollarar á tonn að raungildi næstu 35 ár. Og ég hygg að allir sem hér eru inni mundu gera sér grein fyrir því að það væri lítið að baki þeirri staðhæfingu. Ég hef enga möguleika til að sjá svo langt fram í tímann og ég hygg að jafnvel þeir sem besta yfirsýn hafa hafi ekki nægar forsendur til að spá svo langt fram í tímann. Eigi að síður leiða menn rök að því með margvíslegum hætti að álverð muni geta verið nálægt þeirri tölu og að þessir samningar verði þar af leiðandi mjög hagstæðir. Margir velta því fyrir sér hvort rétt sé að slá öryggisneti inn í þennan orkusamning með því að setja nokkurs konar gólf í hann þannig að orkuverð geti ekki farið niður fyrir ákveðna tölu. Gallinn við það gólf er að því mun að mínu viti líklega fylgja þak og ég hef úr þessum ræðustól gert grein fyrir því að ég telji að Íslendingum geti orðið og yrðu líklega í framtíðinni meiri óþægindi að slíku þaki þegar heimsverðbólgan hækkar meðalverð á áli ár eftir ár. Þegar til lengri tíma er litið er því líklegt að þaklaus samningur sé Íslendingum til ávinnings að mínu mati.
Við horfum upp á það að kísiljárn hefur fallið mjög í verði að undanförnu og það svo að annar ofn kísiljárnverksmiðjunnar á Grundartanga er lokaður nú um stundir. Vegna hvers skyldi það vera? Það er
vegna þeirrar öru og miklu þróunar sem orðið hefur í Austur-Evrópu þar sem ódýrt kísiljárn streymir inn á markaðinn frá Kína og Austur - Evrópulöndum. Ég sé það ekki fyrir mér hvort slíkt gæti hent með ál. Ég er ekki nægur spámaður til að átta mig á því hvort sú mikla breyting sem í Austur - Evrópu verður og jafnvel í Asíu getur haft mikil áhrif á þróun álverðs. Sjálfur met ég það þannig, ásamt þeim sem þetta hafa skoðað, að líkurnar á því að þessi samningur sé Íslendingum til verulegra hagsbóta séu miklar. Þar með er ekki sagt að Íslendingar eigi ekki og þeim beri ekki að ríða þau öryggisnet sem þeir best geta og draga þannig úr þeirri áhættu sem þeir óneitanlega geta staðið frammi fyrir. Í því sambandi langar mig að vekja hér máls á því að ég hygg að sú leið sem Íslendingar almennt hafa farið undanfarna áratugi í fjármögnun framkvæmda sem þessara, þ.e. ríkisábyrgðaleiðin, sé að ganga sér nokkuð til húðar. Við höfum á undanförnum missirum gert það mjög að umræðuefni að aðlaga okkur því sem við köllum evrópskt efnahagssvæði. Þá tala menn um frjálst flæði fjármagns á milli landa og frjálsa stofnun ýmissa þjónustu - og fjármagnsstofnana í hinum ýmsu löndum og aðra slíka þætti. Fjármagnsmarkaður á Íslandi hefur tekið mjög mikilli þróun á undanförnum árum með aukinni sölu og verslun með hvers konar verðbréf, eigna - og kaupleigum og öðru slíku. Lána - og fjármagnsmarkaður á Íslandi er allur annar í dag en hann var fyrir tiltölulega fáum árum. Ef litið er til þess hluta heimsins þar sem við teljum gjarnan að fjármagnsmarkaður sé þróaðastur og þroskaðastur, þá sjáum við að almennt er fjármögnun fyrirtækja meira og meira með þeim hætti að um er að ræða hlutafélög þar sem lagt er fram ákveðið hlutafé eða eigið fé en annars fjár er aflað til fyrirtækisins sem lánsfjár þar sem tryggingar eru fyrst og fremst í eignum fyrirtækisins og viðskiptasamböndum þess. Þessi leið er í hinum þróaða fjármagnsheimi orðin algengari og algengari. Ég hygg að Íslendingar standi nokkuð eftir sem nátttröll í þeim heimi ef þeir hyggjast fjármagna sín fyrirtæki og framkvæmdir alfarið eftir ríkisábyrgðaleið. Hér fara fram vaxandi umræður um breytingu ýmissa ríkisfyrirtækja, þar á meðal banka, í hlutafélög. Auðvitað hlýtur þetta að leiða menn beint inn á þá hugsun hvort það sé endilega rétt leið að það sé Landsvirkjun sem framleiði þá orku og selji sem við ætlum að hefja viðskipti við Atlantsálshópinn með.
Ég vil geta þess hér að framsóknarmenn hafa rætt það nokkuð í sinn hóp hvort unnt sé að minnka áhættu Íslendinga með því að standa að þessu máli með öðrum hætti og þá velt fyrir sér þeim möguleika að stofnað yrði sérstakt orkufyrirtæki sem í raun væri hlutafélag og hefði eingöngu það hlutverk að framleiða orku og selja til Atlantsálshópsins. Í slíku fyrirtæki yrði lagt fram ákveðið hlutafé en að öðru leyti yrðu lánveitendur að taka veð í eignum fyrirtækisins og viðskiptasamböndum þess, þ.e. raforkusamningi.
Það er í mínum huga verulegur ávinningur gagnvart áhættuþætti þessa máls ef þannig væri staðið að verki. Út af fyrir sig er ekki allur munur á því að
stofna fyrirtæki til að framleiða ál eða stofna fyrirtæki til að framleiða raforku. Þau geta verið byggð upp með svipuðu eða sama formi. Áhætta og ábyrgð í hlutafélagi er takmörkuð við hlutaféð sem lagt er fram. En jafnframt ef um slíkt sérstakt fyrirtæki væri að ræða, þá mundi það slíta þann áhættuþátt frá raforkusölu inn á hinn almenna markað og hindra að halli á slíkri sölu gæti lent á neytendum beint. Ég hygg að hér sé um að ræða leið sem sé þess virði að hún sé skoðuð.
Nú er það svo að bankar og lánastofnanir hafa almennt haft þá stefnu að þeim mun minni sem tryggingar og veð eru þeim mun hærri verða vextir og það er sjálfsagt eðlilegt. Það mætti því leiða að því einhverjar líkur að vaxtagreiðslur slíks fyrirtækis yrðu eitthvað hærri en ef alfarið væri í ríkiseign og á ábyrgð íslenska ríkisins og íslensku þjóðarinnar. Í því tilviki þyrftu menn að velta því fyrir sér hvort þeir gerðu á því allan greinarmun hvort Íslendingar eignuðust orkumannvirkin á 25 -- 27 árum, eins og sérfræðingar Landsvirkjunar giska á miðað við ákveðnar forsendur, eða hvort slík eign yrði að myndast á 30 eða 35 árum. Nú er ég ekki að segja að þessi leið liggi beint fyrir. Ég þykist þess fullviss að margir hafi velt því fyrir sér hvort slík leið kunni að vera í spilunum. Ég hygg að það sé nær nútímaþróun lánsfjármarkaðar og fjármagnsmarkaða almennt að fjármagna framkvæmdir með þeim hætti. Og án þess að gera það frekar að umræðuefni hér, og þó með því að varpa því inn að á þessu máli eru auðvitað fjölmargar hliðar sem vandlega þarf að skoða, þá vil ég láta það koma hér fram í þessari umræðu sem mína skoðun að þrátt fyrir það að menn telji að hér sé vel að verki staðið og von um ábata og ávinning sé veruleg í þeim samningum sem nú eru að skýrast sem óðast og menn séu sannfærðir um að álver í þeim mæli sem hér um ræðir sé feiknalegur ávinningur fyrir íslenskt hagkerfi og íslenskt efnahagslíf breytir það ekki því að það hlýtur að vera eðlilegt að Íslendingar taki mið af því að áhættan verði sem minnst í þessu dæmi. Þar koma margar leiðir til og ég hygg að iðnrh. velti þeim fyrir sér og þær verði skoðaðar nákvæmlega eftir því sem framvinda samninga verður skýrari. Því vil ég varpa þessari hugmynd inn í umræðuna að ég hygg að hún sé þess eðlis að nauðsynlegt sé að skoða hana við framvindu málsins.