Eiður Guðnason :
Virðulegi forseti. Góðir tilheyrendur. Því verður ekki móti mælt og það viðurkenna allir réttsýnir menn að þessi ríkisstjórn hefur náð árangri. Hún hefur náð meiri árangri í efnahagsmálum en nokkur önnur ríkisstjórn í áratugi. Þessi árangur hefur náðst vegna þess að hjá launþegasamtökum og vinnuveitendum var skilningur á því að nú yrði að reyna nýjar leiðir. Og nú höfum við kynnst nýjum stöðugleika. Verðbólga er minni en verið hefur í áratugi. Hún er ekki aðeins komin niður á það stig sem hún er í helstu viðskiptalöndum okkar, hún er orðin lægri en í sumum þessum löndum.
Það er höfuðverkefni íslenskra þjóðmála að tryggja þennan stöðugleika, að tryggja að hann haldist. Hér var gerð þjóðarsátt í kjaramálum. Í kjölfar hennar verður að fylgja þjóðarsátt til eflingar atvinnu og aukins hagvaxtar þar sem markmiðið er að auka kaupmátt lægstu launa án þess að verðbólga aukist og tryggja að dagvinnulaun nægi til lífsviðurværis.
Ráðherrar Alþfl. hafa haft forustu um umbótamál sem varða þjóðina miklu. Ég nefni forustu í Evrópumálum, uppstokkun bankakerfis, nýskipan í húsnæðismálum, aukið útflutningsfrelsi og síðast en ekki síst nýtt átak í stóriðju - og virkjunarmálum.
Stundum er svo að skilja á þeim sjálfstæðismönnum, ekki síst þeim sem hafa talað hér í kvöld, að landinu verði helst ekki stjórnað og alls ekki vel stjórnað nema þeir sitji í ríkisstjórn. En góðir hlustendur. Ég vek athygli á því að allt það sem gerst hefur og ég áðan rakti hefur verið gert án þess að Sjálfstfl. kæmi þar nokkuð við sögu nema þá í nöldrandi stjórnarandstöðu. Formaður Sjálfstfl. var að guma af því að flokkurinn hefði beitt sér fyrir auknu viðskiptafrelsi hér áður. Það minnir mig á það að fyrir fáeinum dögum hitti ég sjálfstæðismann á götu og hann sagðist starfa í vinnuhópi í flokknum um viðskiptamál. Hann hefði á dögunum sagt við félaga sína þar: ,,Ég sé ekki betur en Jón Sigurðsson viðskiptaráðherra sé búinn að gera allt og meira til, til þess að auka gjaldeyris - og viðskiptafrelsi en Sjálfstfl. lofaði og aldrei gerði. Nú skulum við hætta þessu kjaftæði og senda ráðherranum blóm.`` Ekki veit ég hvort það varð niðurstaðan hjá þeim, en það eru til menn í Sjálfstfl. sem viðurkenna þegar vel er unnið, jafnvel þótt pólitískir andstæðingar eigi í hlut. Við höfum hins vegar ekki heyrt í þeim hér í kvöld en þeir eru til.
Ég sagði áðan að við værum á leið upp úr öldudalnum. Það má einnig segja að við séum á krossgötum. Undir forustu Alþfl. hefur verið undirbúið nýtt átak í stóriðju - og virkjunarmálum. Þar munu samningar vonandi takast sem fyrst. Þessar framkvæmdir verða öllu atvinnulífi í landinu mikil lyftistöng, ekki bara þeim svæðum þar sem framkvæmt verður, heldur hríslast áhrifin miklu víðar. Það er deginum ljósara að um þessar framkvæmdir hefur skapast óvenjulega breið þverpólitísk samstaða. Þess vegna er það furðulegt og öldungis óskiljanlegt að af hálfu stærsta
stjórnmálaflokks landsins, Sjálfstfl., skuli hafa verið hafðir uppi tilburðir til að spilla þessu máli. Í álmálinu hefur Sjálfstfl. bilað og gert einhvers konar óskundabandalag við öfl í Alþb. Þar hafa öfundin og afturhaldið tekið höndum saman því auðvitað er öllum ljóst að afstaða Sjálfstfl. til álmálsins væri allt önnur ef sá flokkur væri í ríkisstjórn. Ég hef þá trú að fólki finnist þetta heldur ómerkilegt. En þetta er ekki bara ómerkilegt. Þetta er þjóðhættulegt ábyrgðarleysi og það er sorgleg staðreynd að í forustuliði Sjálfstfl. skuli að finna leiðtoga sem hegða sér eins og pólitískir pörupiltar í þessu mikilvæga máli. Þegar á reynir bilar Sjálfstfl. og ástundar ábyrgðarleysi og pólitíska hrekki. Ég spái því að það verði ekki þeim flokki til framdráttar.
Þótt mikill árangur hafi náðst þá blasa víðs vegar um land við vandamál sem bíða úrlausnar og þola ekki bið. Við þurfum að treysta byggðina í landinu, ekki endilega eins og hún er, heldur með eflingu byggðakjarna. Raunhæfasta byggðastefnan er að byggja upp öflugt landskerfi í samgöngum, opinberri þjónustu, fjarskiptum og orkubúskap, orkukerfi sem tryggir jöfnun orkuverðs. Uppbygging iðnaðar og þjónustu á landsbyggðinni hlýtur að vera forgangsverkefni næstu ára. Víða er atvinna ótrygg og sums staðar hefur atvinnuleysi verið landlægt allt of lengi, eins og t.d. hjá konum á Akranesi, og víða eru ótryggar horfur í skipasmíðum og málmiðnaði. Þar gæti þó ræst verulega úr þegar hafist verður handa um byggingu nýs álvers. Það fer heldur ekki hjá því að menn hafi áhyggjur af erfiðri og ótryggri stöðu rótgróinna fiskvinnslufyrirtækja, stöðu sem m.a. á rætur að rekja til vaxandi útflutnings á ferskum fiski og meingallaðrar umgerðar kvótakerfisins sem getur leitt til örlagaríkrar byggðarröskunar.
Þáttur í því að efla og styrkja byggð um landið er efling félagslega íbúðakerfisins. Aldrei fyrr hefur eins mikil uppbygging verið í félagslega íbúðakerfinu og á þessu kjörtímabili. Lög um kaupleiguíbúðir og nýskipan félagslega kerfisins hafa gjörbreytt stöðunni í húsnæðismálum láglaunafólks. Þessu verður að halda áfram og því er brýnt að tryggja fjárhagsstöðu félagslega kerfisins betur en nú er gert. Gamla húsnæðislánakerfið frá 1986 er hrunið. Undir forustu Jóhönnu Sigurðardóttur félmrh. hefur húsbréfakerfinu verið komið á fót til að leysa gamla kerfið af hólmi. Allir þeir 5500 einstaklingar og fjölskyldur sem bíða nú í röðinni eiga þess kost að fara yfir í húsbréfakerfið. Á döfinni eru ráðstafanir sem gera húsbréfin að enn betri kosti fyrir láglaunafólk. Jafnframt verði fólki sem á í greiðsluerfiðleikum vegna húsnæðiskaupa veittur aðgangur að húsbréfakerfinu. Það er hagkvæm lausn og getur komið í veg fyrir gjaldþrot fjölmargra fjölskyldna. Enn frekari breytingar eru á döfinni í húsnæðiskerfinu. Það er stofnun umboðsskrifstofa í öllum kjördæmum sem færir þjónustuna nær fólkinu og enn fremur er ætlunin að færa húsbréfaviðskipti inn í bankastofnanir um land allt. Þetta eru breytingar og umbætur sem svo sannarlega eru til hagsbóta fyrir fólkið í landinu.
Virðulegi forseti. Góðir tilheyrendur. Alþfl. er búinn að eiga aðild að landsstjórninni allt þetta kjörtímabil. Margt hefur áunnist en margt er ógert. Mikilvæg verkefni bíða. Við höfum átt þátt í að stýra efnahagsmálum þjóðarinnar til betra jafnvægis en náðst hefur um áratuga skeið. Nýtt framfaraskref er í augsýn og brautin hefur verið rudd fyrir efnahagslegar framfarir, aukinn hagvöxt, tryggari atvinnu og tryggari afkomu. Þetta höfum við gert með hugsjónir jafnaðarstefnu að leiðarljósi, þetta munum við halda áfram að gera og við leggjum þessi verk okkar, góðir áheyrendur, óhikað í ykkar dóm. --- Góðar stundir.