Árni Gunnarsson :
    Virðulegi forseti. Góðir áheyrendur. Fyrst nokkur orð um ræðu hv. 2. þm. Norðurl. e. og þær fullyrðingar sem hann hafði í frammi um viljaleysi hæstv. iðnrh. til þess að koma álveri út á land.
    Ég get fullyrt að hæstv. iðnrh. barðist fyrir því með oddi og egg að álver risi á landsbyggðinni, hann gerði sér grein fyrir mikilvægi þess. Það voru hins vegar hinir erlendu samningsaðilar í viðræðunefnd um álver sem tóku af skarið um það að álver skyldi rísa á Keilisnesi. Um þetta er ekki deilt.
    Virðulegi forseti. Það er orðið áliðið kvölds, klukkan raunar langt gengin 12 og hér hefur mikið verið rætt um góðan árangur ríkisstjórnarinnar í efnahagsmálum. Það hefur líka mikið verið rætt um álver og kannski orðið tímabært að ræða um fleiri mál sem mikilvæg eru í nútíð og framtíð fyrir þessa þjóð.
    ,,Hreint umhverfi, land, loft, vatn og sjór mun þegar fram í sækir reynast mesta auðlind þessarar þjóðar.`` Þetta sagði hæstv. forsrh. í stefnuræðu sinni áðan. Þessari niðurstöðu mótmælir enginn maður. Það sem felst í þessum orðum leggur hins vegar miklar skyldur og þunga ábyrgð á þing og þjóð. Eftir áratuga andvaraleysi erum við að vakna til meðvitundar um þær hættur sem steðja að viðkvæmri náttúru landsins og matarkistunni miklu sem geymir fjöregg þjóðarinnar, hafinu sjálfu.
    Mikilvægt umhverfisráðuneyti er tekið til starfa þótt enn sé deilt um valdsvið þess. Utanrrh. hefur hvatt til umræðna um afvopnun á höfunum þar sem kjarnorkuknúin skip fara um og ógna lífsafkomu þjóðanna, einkum Íslendinga. En baráttan innan lands við landeyðingu og sóðaskap gengur hægt. Framlög til landgræðslu eru í lágmarki, sorpeyðing víða í lamasessi og sama gildir um frárennslismál. Og Íslendingar verða að gæta þess vandlega að hagvaxtarkrafan brengli ekki skynsamlegt mat á mengunarvörnum. Á alþjóðlegum vettvangi þurfum við að halda vöku okkar, enda ógnar margvísleg atvinnustarfsemi og framkvæmdir nágrannaþjóðanna hafsvæðum okkar.
    Í morgun barst mér skýrsla þar sem segir að forustumenn endurvinnslustöðvarinnar á Dounreay á Skotlandi hyggist undirrita um 50 samninga við margar þjóðir um endurvinnslu og geymslu á geislavirkum kjarnorkuúrgangi. Þegar er búið að undirrita einn samning. Þetta bendir til þess og segir mér það að verkefni stöðvarinnar verði mun meiri og víðtækari en gefið hefur verið í skyn. Enn á ný verða íslensk stjórnvöld að mótmæla harðlega við bresku ríkisstjórnina. Það þarf einnig að afla aukins stuðnings við mótmælin meðal nágrannaþjóðanna. Dounreay - stöðin gæti fljótlega haft afdrifaríkar afleiðingar á veiðar Íslendinga og sölu fiskafurða og þá gæti grundvöllur hins margumtalaða hagvaxtar brostið fljótlega.
    Nátengt umhverfismálum er hið gamla baráttumál Alþfl. um þjóðareign á landi. Rétt eins og þjóðin öll á tilkall til þeirra verðmæta sem í hafinu eru hlýtur hún að eiga landið sem hún býr í. Þingmenn Alþfl. hafa hvað eftir annað reifað þessi mál á þingi en

fengið litlar undirtektir. Á umtöluðu, kannski mjög umtöluðu, flokksþingi var samþykkt ályktun þar sem flokknum er falið að semja frv. um löggjöf um almannarétt og sameign þjóðarinnar á Íslandi öllu, gögnum þess og gæðum. Í þessari löggjöf verði kveðið á um frjálsan aðgang landsmanna að landi sínu og nýtingu þess. Þetta verði að sjálfsögðu gert með tilliti til takmarkana vegna atvinnustarfsemi, skipulagðrar landnýtingar og friðunar af náttúrufarsástæðum.
    Ekki er vafi á því að málið kemur fljótlega á dagskrá, enda tímabært orðið að þjóðin öll fái það staðfest að hún eigi landið sem hún býr í. Með því móti mun hún öðlast ríkari tilfinningu fyrir umhverfi sínu og náttúru og öll landvernd verður auðveldari og aðgerðir líklegri til árangurs. Þá ber hver maður ábyrgð á eign sinni.
    ,,Það er fleira matur en feitt kjöt,`` segir öldruð vinkona mín tíðum þegar henni finnst nóg um bruðl og óhóf. Og stjórnmál snúast um fleira en efnahagsmál. Þótt hagvöxtur sé mikilvægur má hagvaxtarkrafan ekki um of beina athygli okkar frá þörfum mannsins fyrir annað og fleira en hagsældina eina.
    Á fyrrnefndu flokksþingi Alþfl. fjallaði kunnur læknir í ræðu um nauðsyn mannverndar sem taki mið af þörfum fjölskyldunnar, málefnum barna og unglinga, skólamálum og heilsuverndarstarfsemi. Hann sagði m.a. að stefnumið þessa þjóðfélags virtist aðeins varða manneskjuna óbeint því hér hefði sú fullvissa ávallt ráðið ríkjum að meira magn jafngilti meiri gæðum og meiri neysla jafngilti meiri velferð. Þá sagði hann m.a.:
    ,,Hér á landi má sjá merki um hvernig okið af hagvaxtarkerrunni veldur álagi og spennu. Því fylgir hálfgert neysluæði sem er jú undirstaða hagvaxtarins. Þannig er það að hagvöxturinn hlýtur að eyða sjálfum sér því smám saman dregur úr þreki þeirra sem kerruna draga. Það er með öðrum orðum næsta víst að vinnuþreki og heilsu þeirrar þjóðar sem dregur of þungt hlass mun hraka nema viðeigandi ráðstafanir verði gerðar. Það eru ekki einungis auðlindir náttúrunnar sem eru takmarkaðar heldur á þrek mannsins til að halda uppi flóknu neyslusamfélagi samtímans einnig sín takmörk.``
     Rauði þráður þessarar ræðu er sá að við eigum að viðurkenna þann hagvöxt sem tryggir aukinn jöfnuð meðal fólksins en afneita þeim hagvexti sem eykur ójöfnuð.
    Í landi þar sem misnotkun vímuefna fer vaxandi, ofbeldi og afbrot aukast og vandamál yngstu kynslóðarinnar hrannast upp er nauðsynlegt að auka umræður og aðgerðir er snúast um mannvernd. Með samþykkt ályktunar í þessum málaflokki vill Alþfl. leggja sitt af mörkum og hvetur aðra til samstarfs.
    Það jafnvægi sem nú hefur náðst í efnahagsmálum getur orðið góður grundvöllur til að bæta kjör þeirra lakast settu. Það gæti einnig skapað svigrúm til að græða þau sár sem upplausn og öryggisleysi hefur opnað. Veigamestu verkefnin eru að styrkja stöðu fjölskyldunnar, draga úr vinnuálagi og stöðva háskalega byggðarröskun og hvetja til endurskoðunar á því gildismati sem hér hefur verið ríkjandi. --- Lifið heil.