Hulda Jensdóttir :
Virðulegi forseti. Góðir áheyrendur. Þegar Borgfl. kom inn í íslensk stjórnmál á vordögum 1987 kom hann sem ferskur andblær, eitthvað nýtt er fólk hafði beðið eftir um langan tíma enda létu viðbrögðin ekki á sér standa. Fólk flykktist til liðs við Borgfl., sér í lagi eftir að stefnuskrá hans var kunn. Þegar embættismenn við kjörkassana 25. apríl 1987 höfðu lokið störfum kom í ljós mikill sigur Borgfl.
Hver var ástæðan fyrir svo glæsilegum kosningasigri, sigri sem lengi mun í minnum hafður? Sjálfsagt yrðu svörin mörg ef þeirra væri víða leitað. Hins vegar þegar ég er um þetta spurð er svarið hreint og klárt: Vegna stefnuskrárinnar. Vegna þeirra nýju og björtu málefna sem Borgfl. lofaði að beita sér fyrir. Það var nýr andblær vors og grósku þar sem minnsti sprotinn var meðhöndlaður af mildi og kærleik um leið og stóra tréð og hið sterka var metið að verðleikum. Og þá er eðlilega spurt: Er stefnan enn sú sama? Og svarið er aftur hreint og klárt játandi. Ekkert hefur breyst. Við erum á sömu leið og í upphafi nema hvað sprotinn minnsti hefur skotið rótum og fest sig í sessi.
Nú er það svo að til eru þeir sem halda því fram að Borgfl. sé ekki lengur til, sé hreint og beint dáinn, sofnaður svefninum langa. Samkvæmt því erum við sem komum fram fyrir hönd Borgfl. á hinu háa Alþingi á þessu fagra haustkvöldi ekki til. Dæmið gengur ekki upp. Öllum má því ljóst vera að þetta er hinn mesti misskilningur. Því verður þó ekki neitað að á ýmsu hefur gengið. Sumir hafa skolast burt, jafnvel til fjarlægra landa og úr fjarlægðinni látið ýmislegt fjúka sem ekki telst til háttvísi. Aðrir hafa reynt að skjóta lasburða rótum sínum í nýjan jarðveg eða nýjan vettvang þar sem engan jarðveg er að finna. Eftir stendur sú staðreynd að við sem í upphafi vissum hvað við vildum og hvert við stefndum erum enn á sömu leið og fullviss um að mikilvægasti þátturinn til farsæls mannlífs í fjölskyldunni og utan hennar eru kristin siðgæðisáhrif. Við erum einnig sannfærð um, nú sem fyrr, að okkar er að hlúa að brákuðum reyrnum, búa sprotanum jarðveg þar sem hann fær að vaxa, þroskast og lifa.
Við sem á Íslandi búum búum á landi allsnægta þar sem engum þarf að úthýsa. Ef ein höndin getur ekki tímabundið valdið byrðum líðandi stundar tekur hin höndin við og hjálpar þar til úr leysist. Það er skylda velferðarsamfélagsins og það er stefna og markmið Borgfl. Umhyggja fyrir mannlegu lífi gagnstætt eyðingu þess er æðsta markmið góðrar ríkisstjórnar, segir í stefnuskrá Borgfl. Þar er einnig lögð megináhersla á að auka aðstoð við einstæða foreldra og að foreldrar geti annast börn sín sjálfir á heimilum sínum ef þess er óskað í stað þess að senda þau á dagvistarstofnanir. Enginn vafi leikur á því, hversu góðar sem dagvistarstofnanir eru, að þær ber að nota í hófi innan ákveðinna marka auk þess sem breytinga er þar þörf þó margt sé þar gott og til sóma. Það hlýtur að vera gæfa hvers barns og gæfa fyrir þjóðina alla miðað við eðlilegar aðstæður að barnið fái að njóta foreldra sinna sem allra mest á eigin heimili. Það hlýtur því að vera skýrt framtíðarmarkmið.
Á liðnu ári var stofnað nýtt ráðuneyti, ekki seinna vænna. Embætti ráðherra þess ráðuneytis, umhverfisráðherraembættið, varð eftirsótt mjög. Margir vildu í þann stól setjast og notuðu til þess sandkassaleik hinna fullorðnu sem oft var lítt við hæfi.
Umhverfismál eru mál allra mála um gervalla heimsbyggðina í dag. Þess vegna setur að ýmsum ónotahroll þegar rætt er um risaálver, staðsett á einum ómengaðasta byggðum bletti jarðar, Íslandi. Víst á stórhugur rétt á sér. Án hans gerist lítið og smátt og ekkert fer á milli mála að þeir sem að álmálinu vinna starfa eftir bestu samvisku, leggja hart að sér með hag íslenskrar þjóðar og efnahagslíf í fyrirrúmi svo að velferðarríkið dragist ekki aftur úr í velferð. Að sjálfsögðu vill enginn missa neitt af því sem áunnist hefur í lífsgæðum þótt um megi deila hvort allt sé þar til heilla. Lífsgæði í dýpstu merkingu þess orðs geta þó aldrei mælst með mælistiku neyslusamfélags því að sú stika sýnir rangar breiddir og víddir. Hin raunverulegu lífsgæði eru við dyr okkar sjálfra í gróðurmold þess lands sem við erum borin til, í fallvötnum okkar, beitilöndum og fiskimiðum, að ógleymdum þeim forréttindum að anda að sér hreinu lofti. Í þessu er okkar framtíð fyrst og fremst.
Ál er eitt af frumefnum jarðarinnar en kirfilega bundið í torleystum efnasamböndum. Að sjálfsögðu er það liður í alltumvefjandi jafnvægi sköpunarverksins, þannig ætlar náttúran því greinilega að vera og trúlega viturlegast að hrófla sem minnst þar um. Þekkt er að sívaxandi magn áljóna leysist út í jarðveg, í ár og vötn. Fiskar missa lífið, tré og gróður sömuleiðis. Það þykir einnig sannanlegt í framhaldi að fólk verði fyrir eituráhrifum af því sama í gegnum drykkjarföng og matvæli. Rannsóknir benda einnig til að fólk með ákveðna sjúkdóma fari illa út úr áleituráhrifum. Frá álveri kemur mengunarvaldurinn flúor í miklum mæli, einnig brennisteinsdíoxíð, en það er aðalvaldur súrs regns, svo margs er að gæta. Ég bið því af heilum hug vegna okkar allra og afkomenda okkar að ekki verði flanað að neinu.
Virðulegi forseti. Ég leyfi mér að víkja að því sem áður er nefnt. Þúsundir hektarar lands bíða þess að um það sé farið varfærnum höndum, vel um það hugsað og endurnýjað, ræktað og byggt upp á lífrænan hátt þar sem eitur og gerviefni eru forboðin, koma hvergi nálægt. Ræktað land og hvað það annað sem landið sjálft gefur af sér er auðlindin hin allra besta og verðmætasta því sú lind er undirstöðuauðlind, forsenda alls lífs. Frá þeirri staðreynd komumst við hvergi. Ekkert væri meiri gæfa íslenskri þjóð en að stjórnvöld veðjuðu á lífið og settu til þess fjármagn sem ekki væri skorið við nögl og sem þyrfti þó ekki að vera nema brot af þeim milljörðum sem álver kostar íslenska þjóð. Ræktun og aðra uppbyggingu í kjölfar hennar mætti taka í áföngum sem þátt í byggðastefnu og eðlilegri uppbyggingu um land allt.
Að sjálfsögðu vinnst ekki tími til á þeim stutta
tíma sem ég hef til umráða í kvöld að rökstyðja þessa hugmynd frekar en ég velti henni áfram til forráðamanna íslenska þjóðarbúsins og þeirra sem hafa álmálið á sínum höndum. Ég bendi á í leiðinni hvílíkt gósenland Ísland er með heilsulindir sínar og ótrúlegan ferskleika. Okkar er að standa vörð um það sem við höfum og gæta þess fjöreggs sem okkur var trúað fyrir.
Má ég að lokum taka undir orð hæstv. forsrh. þegar hann fyrr í kvöld sagði í stefnuræðu sinni: ,,Hugmyndir manna um fulla aðild að Evrópubandalaginu lýsa fyrst og fremst uppgjöf á því að ráða eigin málum farsællega.`` Ógæfan sem í því felst að við í skammsýni gefum erlendum fjársterkum aðilum færi á því að eignast hlut í okkur sjálfum og því dýrmætasta sem við eigum er slys sem verður að afstýra með öllum hugsanlegum ráðum. Okkar sjálfra er að standa vörð um og vernda þetta fagra land sem guð gaf. Ísland er einstakt, möguleikar þess ótrúlegir ef hugvit og ást til þess fara saman. Þetta er paradísareyja þar sem smjör drýpur af hverju strái ef rétt er á málum haldið. --- Ég þakka áheyrnina. Góðar stundir.