Umhverfisráðherra (Júlíus Sólnes) :
    Virðulegi forseti. Það var í ársbyrjun 1989 að umhverfisráðherrar Norðurlanda ræddu um hvernig mætti draga úr umhverfismengun sem berst til Norðurlandanna frá grannríkjum í Austur - Evrópu. Embættismannanefnd umhverfisráðherranna kannaði ýmsar leiðir til að nýta norrænt fjármagn sem best í þessu augnamiði. Sýndi könnunin m.a. að lánsfé til umhverfisverndandi framkvæmda í löndum Austur - Evrópu er mjög takmarkað vegna lítils lánstrausts margra ríkjanna og vegna hárra vaxta á verkefnisútflutningslánum. M.a. var rætt um að setja á stofn sérstakan norrænan sjóð til að niðurgreiða vexti af fjárfestingarlánum til umhverfisverndandi framkvæmda í Austur - Evrópu. Niðurstaða embættismannanefndarinnar og síðar ráðherranefndarinnar, þ.e. umhverfisráðherranna, varð hins vegar sú að leggja til að stofnað skyldi norrænt fjármögnunarfélag á sviði umhverfismála. Með þessu móti skyldi stefnt að því að koma á fót framleiðslu á umhverfisverndandi tækjabúnaði í löndum Austur - Evrópu og draga þannig úr þörf landanna á erlendum gjaldeyri til að kaupa slíkan búnað og aðra tækniþekkingu. Tillögur um stofnun félagsins voru ræddar á aukaþingi Norðurlandaráðs sem var haldið á Álandseyjum í nóvembermánuði 1989. Þar fékk þessi hugmynd og þær tillögur, sem þá voru tilbúnar, góðar viðtökur. Málið var síðan rætt áfram á Norðurlandaráðsþinginu í Reykjavík 28. febr. 1990 þar sem lá fyrir formleg ráðherranefndartillaga um stofnun þessa félags. Sú tillaga var samþykkt og var síðan samningur um stofnun félagsins undirritaður af umhverfisráðherrunum hinn 1. mars 1990 í Reykjavík með fyrirvara um samþykki þjóðþinga allra Norðurlanda.
    Norræna ráðherranefndin hefur í tvo áratugi staðið fyrir margvíslegu samstarfi um umhverfismál á Norðurlöndum. Er þar helst að geta fimm ára samstarfsáætlana. Þá hefur ráðið samþykkt samnorræn markmið um hávaðamengun, loftmengun, mengun hafsins og um vernd ósonlagsins. Ráðherranefndin samþykkti nýja norræna umhverfisáætlun í janúar 1989 en Norðurlandaráð hélt aukaþing haustið 1988 til þess að fjalla um umhverfismál.
    Mengun í lofti og vatni virðir engin landamæri. Þrátt fyrir verulegt átak einstakra ríkja í umhverfismálum heima fyrir vex mengun lofts og hafs víða vegna aðgerðarleysis grannríkja. Víða í Austur - Evrópu eru umhverfismál í mesta ólestri eins og svo áþreifanlega hefur komið í ljós eftir að landamæri þar opnuðust og múrar hrundu. Hreinsibúnaður vegna útblásturs verksmiðja og orkuvera er í lágmarki og grunnvatni og vatni í ám er víða stórlega spillt. Þótt áhrifanna gæti mest í heimalandinu berast óhreinindi til grannlandanna með loftstraumum og með ánum til sjávar. Sérstaklega safnast mengunin saman í litlum innhöfum eins og í Eystrasalti. Sem dæmi má nefna að töluverður hluti brennisteinssambanda í úrkomu á Norðurlöndum er talinn koma frá Austur - Evrópu, eða sem nemur 22% í Danmörku, 40% í Finnlandi, 5% á Íslandi, 23% í Noregi og 34% í Svíþjóð. Þrjú Norðurlandanna fá meira af brennisteinssamböndum í úrkomu frá Austur - Evrópu en úr útblæstri eigin verksmiðja og orkuvera en heimaframleiðslan nemur 23% í Finnlandi, 7% í Noregi og 12% í Svíþjóð. Hlutfall köfnunarefnissambanda ættaðra frá Austur - Evrópu í úrkomu þessara landa er enn hærra.
    Talið er að með tiltölulega ódýrum aðgerðum megi draga verulega úr skaðlegum efnum í frárennslisvatni og útblæstri verksmiðja og orkuvera í Austur - Evrópu þótt ekki verði gerðar jafnstrangar kröfur um hreinsibúnað strax og gilda á Norðurlöndum. Lítið gagn er þó í að flytja hreinsibúnað frá Norðurlöndum og setja upp á stöku skorstein þar eystra. Mestum árangri má væntanlega ná með því að koma á fót fyrirtækjum í hinum ýmsu löndum Austur - Evrópu sem framleiða hreinsibúnað eða stuðla á annan hátt að umhverfisverndandi framkvæmdum. Með því að leggja fé í stofnun slíkra fyrirtækja er vonast til að árangurinn verði margfalt meiri en ef sama fjármagn væri lagt í t.d. hreinsibúnað á einstök orkuver eða einstakar sorphreinsistöðvar.
    Markmið stofnunar fjármögnunarfélagsins er að auka umhverfisverndandi framkvæmdir og uppbyggingu framleiðslu á t.d. hreinsibúnaði fyrir verksmiðjur í Austur - Evrópu. Félagið mun leggja fram áhættufjármagn, t.d. hlutafé, ábyrgðir og lán, sem í vissum tilvikum geta verið víkjandi, til samstarfsfyrirtækja í eigu norrænna fyrirtækja og heimamanna. Þessi fyrirtæki geta unnið að framleiðslu á hreinsibúnaði, verklegum framkvæmdum, umhverfisbætandi verkefnum og ráðgjöf. Samstarfsverkefnin þurfa að vera arðbær og tæknilega framkvæmanleg. Fyrst um sinn mun stuðningur félagsins bundinn við samstarfsfyrirtæki eða samstarfsverkefni með norrænum hagsmunum sem gætu átt sér stað í Austur - Þýskalandi, Póllandi, Sovétríkjunum, Tékkóslóvakíu og Ungverjalandi. Gert er ráð fyrir að Norræni fjárfestingarbankinn í Helsinki sjái um rekstur fjármögnunarfélagsins.
    Hvað varðar íslenska hagsmuni í þessu sambandi má geta þess að Peter Laurson, bankastjóri Norræna fjárfestingarbankans og yfirmaður alþjóðadeildar bankans, kynnti forsvarsmönnum ýmissa íslenskra fyrirtækja og stofnana, sem tengjast verkefnaútflutningi, undirbúning að stofnun fjármögnunarfélagsins á fundi í Reykjavík 26. febr. 1990. Á fundinum var rætt um á hvern hátt íslensk fyrirtæki gætu tengst starfsemi fjármögnunarfélagsins. Fram kom að t.d. hitaveituframkvæmdir munu falla undir verksvið sjóðsins. Þannig geti fjármögnunarfélagið lagt fram hlutafé eða áhættufjármagn í sameignarfyrirtæki íslenskra aðila og heimamanna t.d. í Ungverjalandi og Tékkóslóvakíu sem hafa það að markmiði að hanna og/eða byggja hitaveitur í Austur - Evrópu. Eins mun framleiðsla og uppsetning hreinsibúnaðar í verksmiðjur og fiskvinnslustöðvar falla undir verksvið fjármögnunarfélagsins.
    Þá gekkst umhvrn. fyrir sérstökum fundi í Reykjavík 1. júní sl. Þangað kom sem gestur ráðuneytisins Þorsteinn Ólafsson sem er nú framkvæmdastjóri Norræna verkefnaútflutningssjóðsins í Helsinki. Hann hefur einmitt unnið mjög að verkefnum á þessu sviði og hefur fyrir hönd okkar Íslendinga átt sæti í þeirri undirbúningsnefnd sem hefur undirbúið stofnun hins nýja fjármögnunarfyrirtækis.
    Ef litið er þröngt á hagsmuni einstakra Norðurlanda má halda því fram að stofnun fjármögnunarfélagsins nýtist hinum Norðurlöndunum betur en Íslandi. Hins vegar ber að minnast á nauðsyn þess í náinni framtíð að stórauka rannsóknir á mengun Norður - Atlantshafsins og stemma stigu við mengun þess. Með þátttöku í fjármögnunarfélaginu sem miðar að hreinsun Eystrasalts og að draga úr loftmengun á hinum Norðurlöndunum geta Íslendingar auðveldar farið fram á sameiginleg fjárframlög Norðurlanda til umhverfisverkefna í Norður - Atlantshafi þegar þar að kemur. Fyrir svo utan þá beinu hagsmuni sem íslensk fyrirtæki gætu haft af því að leita eftir verkefnum í Austur - Evrópu og fá til þess stuðning hins nýja fjármögnunarfélags. Reyndar hefur eitt íslenskt fyrirtæki, Virkir - Orkint hf., þegar tekið að sér slík verkefni m.a. í Ungverjalandi og er nú að þreifa fyrir sér með verkefni í Sovétríkjunum, eins og var reyndar nýlega skýrt frá í fréttum. Mun hið nýja fjármögnunarfyrirtæki koma þar inn í til að auðvelda slíkt samstarf.
    Hvað varðar afstöðu Íslands til hins nýja fjármögnunarfyrirtækis þá féllst ríkisstjórnin á tillögu ráðherranefndarinnar fyrir sitt leyti á fundi sínum 23. febr. sl. Hinn 23. apríl sl. barst svo umhvrn. bréf frá utanrrn. þar sem á það var bent að nauðsynlegt mundi að leggja fyrir Alþingi á næsta löggjafarþingi frv. til laga um þetta mál og jafnframt þáltill. um heimild fyrir ríkisstjórnina til þess að staðfesta samninginn. Þegar þetta gerðist var farið að líða að þinglokum og því ekki talið að auðið mundi að fá málið afgreitt á þessu stigi. Upphaflega hafði þó verið hallast að því að lagasetning um þetta atriði væri ekki nauðsynleg.
    Reyndar má líta svo á að Alþingi hafi efnislega samþykkt aðild að samningnum með því að á fjárlögum ársins 1990 var veitt fé til greiðslu á framlagi Íslands skv. ákvæðum samningsins. Til þess að árétta þennan skilning enn frekar ritaði utanrrn. bréf til aðstandenda fyrirtækisins í Helsinki og staðfesti aðild Íslendinga að fyrirtækinu í ágústmánuði sl. Engu að síður er talið nauðsynlegt að leggja hér fram frv. til laga til að staðfesta aðild Íslands að þessu félagi, enda er um að ræða ákvæði í þeim samningi sem var undirritaður í Reykjavík hinn 1. mars sl. sem kveður á um vissa undanþágu frá ýmsum skattaákvæðum sem í lögum eru hér á landi. Í 6. gr. samningsins, sem var undirritaður í Reykjavík, segir svo, með leyfi hæstv. forseta:
    ,,Félagið skal undanþegið greiðslu - og gjaldeyrishömlum og ráðstöfunum á lánsfjármarkaði sem gætu komið í veg fyrir eða torveldað starfsemi þess. Eignir og tekjur félagsins skulu undanþegnar skattlagningu. Að því er fjármögnunarstarfsemina varðar skal félagið undanþegið stimpilgjöldum og öðrum gjöldum til hins opinbera.``
    Stofnfé þessa fyrirtækis er 36 millj. sérstakra dráttarréttinda, SDR, og skiptast framlög Norðurlanda

þannig að Danmörk greiðir 7,8 millj., Finnland 7,4 millj., Ísland 0,4 millj., Noregur 7 millj. og Svíþjóð 13,4 millj. Er gert ráð fyrir því að þessar greiðslur verði inntar af hendi sex sinnum, þ.e. á ári hverju næstu sex árin. Framlag Íslendinga er því um það bil 5 millj. kr. árlega næstu sex árin.
    Að öðru leyti skýrir þetta lagafrv. sig sjálft. Í 1. gr. frv. er einungis staðfestur sá ásetningur að stofna fjármögnunarfélagið skv. þeim samningi sem var undirritaður, en 2. -- 4. gr. frv. fjalla um þær nauðsynlegu undanþágur sem þetta fyrirtæki verður að fá í samræmi við þær venjur sem hafa skapast um slík alþjóðleg fyrirtæki sem við eigum aðild að.
    Ég get svo að lokum getið þess, virðulegi forseti, að á sunnudag og mánudag n.k. verður haldin viðamikil ráðstefna í Helsinki þar sem þetta fyrirtæki verður sérstaklega kynnt. Þangað hafa verið boðaðir allir umhverfisráðherrar Norðurlanda, svo og allir umhverfisráðherrar þeirra Austur - Evrópulanda sem gert er ráð fyrir í upphafi að geti fengið aðstoð fyrir tilstilli hins nýja fyrirtækis. Mikill undirbúningur hefur verið að þessum fundi og við hann bundnar miklar vonir. Þar er hugmyndin að kynna verkefni Norðurlanda á sviði umhverfismála og með hvaða hætti Norðurlöndin geta komið Austur - Evrópulöndum til aðstoðar með því að bæta umhverfi og efla mengunarvarnir í Austur - Evrópu sem gæti síðan komið öllum Norðurlöndunum til góða.
    Ég held að ég þurfi ekki að hafa fleiri orð um þetta mál, hæstv. forseti, en leyfi mér að lokinni þessari umræðu að vísa málinu til 2. umr. og meðhöndlunar allshn.