Jón Helgason :
Hæstv. forseti. Ég vil taka undir þær þakkir sem hv. flm. hafa verið færðar fyrir að endurflytja þetta frv. En ég vil aðeins gefa þá skýringu að málið var ekki afgreitt á síðasta þingi frá þeirri nefnd, sem ég var þá formaður fyrir, sökum þess hversu seint það var borið fram. Ég hygg að það hafi notið stuðnings meiri hluta í þeirri nefnd og hefði ekki staðið á því nema vegna þess að það var á allra síðustu dögum þingsins sem málið kom til nefndarinnar.
En ég vil taka undir efni þess. Og vegna þess að ég hef mikinn áhuga á því að þetta mál verði afgreitt þá vildi ég beina því til nefndarinnar nú hvort ekki þurfi að athuga 2. gr. frv., þ.e. lög þessi öðlist þegar gildi. Sjálfsagt kæmu þá þau andmæli að ekki væri hægt að gera svona lagað í einu vetfangi svo það þarf að hafa einhvern hæfilegan fyrirvara í lögunum þannig að sú viðbára sé ekki fyrir hendi að þetta séu ekki framkvæmanleg lög. En að öðru leyti vil ég taka undir þau orð sem hér hafa fallið um þetta mál. Þessar setningar eru bæði ábendingar og aðvörun og ég tel þá líka að þær höfði til hvers og eins sem
áfengi veitir, ekki aðeins þeirra sem neyta heldur einnig þess sem veitir, hvaða afleiðingar slíkar veitingar hafa.