Jarðhitaréttindi
Þriðjudaginn 23. október 1990


     Flm. (Hjörleifur Guttormsson) :
    Virðulegur forseti. Ég þakka forseta fyrir að taka mál þetta á dagskrá hér í byrjun fundar. Ég ætla ekki að halda framsöguræðu fyrir þessu máli sem hefur verið flutt nokkrum sinnum á undanförnum þingum. Það var til meðferðar í iðnn. þessarar deildar á síðasta þingi og var nokkuð að því unnið þá. Málið er kunnuglegt fyrir hv. þingdeildarmönnum og ég ætla aðeins að leggja til að málinu verði nú vísað til hv. iðnn.