Fjármálaráðherra (Ólafur Ragnar Grímsson) :
Virðulegi forseti. Ég vil fyrst biðjast afsökunar á því að hafa ekki verið viðstaddur hér í upphafi umræðunnar en það var af ástæðum sem forseti hefur greint frá. Ég verð einnig að taka það fram að fyrir mörgum vikum síðan skuldbatt ég mig til þess að vera annars staðar stundarkorn frá því korter fyrir sex og verð að standa við það fyrirheit mitt og vona að það trufli ekki umræður hér.
Hæstv. forsrh. hefur nú vikið að velflestum þeim atriðum sem spurt hefur verið um í þessari umræðu. Það eru þó tvö atriði sem ég vil bæta við. Í fyrsta lagi spurði hv. þm. Þórhildur Þorleifsdóttir hver væri afstaða mín til greiðslu á málskostnaði vegna þessa máls með tilliti til dómsmáls sem ákveðið hefur verið að höfða. Ég tel ekki rétt að ég sé að svara því hér vegna þess að sú venja hefur skapast í okkar landi að slík mál eru afgreidd fyrir dómstólum og á þeim vettvangi og tel ekki eðlilegt að annar málsaðilinn sé hér á Alþingi að lýsa yfir skoðun sinni á því máli. Venjan hefur þar að auki verið sú að það eru oftast nær dómararnir í málunum sem ákveða hvernig með málskostnað skuli fara. Ég tel ekki rétt að ganga gegn þeirri venju.
Hin spurningin sem hv. þm. beindi til mín var hvernig ég hygðist halda áfram þessum málum hvað snertir samskipti við háskólamenntaða ríkisstarfsmenn. Í því sambandi vil ég greina frá því að ég skrifaði aðildarfélögum BHMR fyrir nokkrum vikum síðan og óskaði eftir viðræðum við hvert þeirra fyrir sig um framtíð kjaramála þeirra. Þetta eru viðræður sem ég og aðstoðarmaður minn, Svanfríður Jónasdóttir sem er einnig í stjórn samninganefndar ríkisins, tökum þátt í og síðan stjórnarmenn hvers aðildarfélags BHMR. Ég hef þegar átt nokkra slíka fundi sem hafa verið mjög gagnlegir, vona ég, fyrir báða aðila. Þar hefur margt komið fram og farið yfir bæði málin almennt og eins þau vandamál sem snúa að hverju einstöku félagi. Ég tel að þessar viðræður sem ég ákvað að beita mér fyrir og eru þegar hafnar og aðildarfélög BHMR tóku vel séu vonandi árangursrík leið til þess að reyna áfram að greiða úr þeim vandamálum sem hafa komið upp í samskiptum BHMR og ríkisins. Þau vandamál eiga sér, eins og hér hefur komið fram í þessum umræðum, mjög langa sögu, margra ára sögu, löngu áður en núv. ríkisstjórn komst til valda og löngu áður en núv. fjmrh. kom í það embætti.
Ég mun núna á næstu tveimur til þremur vikum halda áfram þessum viðræðum við hvert og eitt félag. Þær taka þó nokkurn tíma eins og gefur að skilja. Félögin eru mjög mörg og viðræðufundirnir hafa verið alllangir hver og einn þannig að nokkuð stór hluti af mínum tíma hefur farið í þessar viðræður þegar ég hef getað komið þeim við. En vegna anna núna við þingbyrjun hefur verið nokkuð hlé á þeim, í um það bil tveggja til þriggja vikna skeið, en þær munu hefjast aftur nú. Eins og ég gat um áðan verður rætt við hvert og eitt félag og þeir fundir sem nú þegar hafa átt sér stað hafa verið mjög árangursríkir og gagnlegir.
Ég hef ekki átt þess kost áður að eiga slíkar viðræður við einstök aðildarfélög BHMR einfaldlega vegna þeirra aðferða sem BHMR kaus að hafa á viðræðum og fagnaði því þess vegna sérstaklega að því var tekið jákvætt af hálfu BHMR að hvert og eitt félag gæti rætt við fjmrh. um þessi vandamál.
Ég vil svo að lokum láta það koma fram að það er missagt sem hér hefur verið sagt að í tíð núv. fjmrh. hafi verið endalausar deilur um kjör háskólamenntaðs fólks. Það er ekki rétt og það er ekki heldur rétt að það hafi verið um kjör háskólamenntaðra kennara. Það er að vísu rétt að það er eitt félag, HÍK, sem er innan BHMR sem þarna á í hlut en í minni tíð sem fjmrh. hafa verið gerðir kjarasamningar við nokkur önnur félög háskólamenntaðra kennara, þ.e. félög kennara við Háskóla Íslands, Kennarasamband Íslands og ýmis önnur kennarafélög. Það er nefnilega þannig að það eru nokkur fleiri stéttarfélög kennara en HÍK og kjarasamningamál við hin kennarafélögin hafa gengið það vel að varla er hægt að segja að snurða hafi hlaupið á þann þráð. Þar hefur ekki verið um verkföll að ræða. Þar hafa kjarasamningar verið gerðir sem hafa verið samþykktir af félagsmönnum í þeim félögum með yfirgnæfandi stuðningi. Þar eiga bæði hlut að máli félög kennara við Háskóla Íslands, Kennarasamband Íslands og önnur kennarafélög sem eru á Íslandi.
Ég tek hins vegar eftir því að í þessari umræðu tala menn um þetta eins og þetta séu deilur við alla kennara eða alla háskólamenntaða kennara eða alla háskólamenntaða menn í þjónustu ríkisins en svo er ekki. Þetta er við hluta kennara, hluta háskólamenntaðra manna í þjónustu ríkisins. Þetta finnst mér nauðsynlegt að komi hér fram vegna þess að ég hef tekið eftir því, bæði hér í þessari umræðu og eins úti í þjóðfélaginu, að menn nota almennt orð yfir þessar deilur sem gefa villandi mynd af því hverjir eru deiluaðilar.