Þórhildur Þorleifsdóttir :
Virðulegur forseti. Um leið og ég þakka hæstv. forsrh. hans svör og reyndar hæstv. fjmrh. líka að honum fjarstöddum verð ég að lýsa undrun minni á því hve fáu var svarað og jafnframt hve svörin voru oft og tíðum loðin.
Nú vill þannig til að ég á sæti í þeirri nefnd sem mun taka þessi lög til umfjöllunar og gefst þá væntanlega tími þar til þess að kanna hluti betur og eflaust vakna nýjar spurningar sem mann mun langa að spyrja við 2. umr. Eins mun þá gefast tækifæri til að ítreka sumar sem fram voru lagðar núna og athuga hvort menn sjá þá ástæðu til þess að svara.
Mig langar líka til að gera athugasemd við þau ummæli hæstv. forsrh. að það gleddi hann að hér væri ekki um sýningu að ræða. Mér finnast þetta satt að segja harla léttúðug orð, svo að ekki sé meira sagt, að ætla því fólki, sem hér mætir á palla til að hlusta á umræður, að það geri það hugsanlega fyrir mín orð eða einhverra annarra úr Kvennalista. Það væri í hæsta máta óeðlilegt í þessu alvarlega máli ef félagsmenn í BHMR hefðu ekki áhuga á að fylgjast með því. Og ég vil líka benda hæstv. forsrh. á að það var hvorki sú sem hér stendur eða aðrir þingmenn Kvennalistans sem lögðu fram þetta frv. sem hér er til umræðu í dag svo að varla var nú til þeirrar sýningar efnt af okkur.
Svarið við spurningu sem ég lagði fyrir hæstv. forsrh. um af hverju ekki hefði verið farið í neinar viðræður við BHMR frá þeim tíma að þjóðarsáttin var gerð í byrjun febrúar og fram til þess tíma þegar kjarasamningur BHMR skyldi koma til framkvæmda var að mínu viti nokkuð einkennilegt. Ef ég hef ekki misheyrt þá sagði hæstv. forsrh. að það væri vegna þess að hann hefði talið að ákvæði 1. gr. samningsins stæðust. Í því felst þá m.a. að það hafi verið talið tilgangslaust að ræða nokkuð við BHMR. En ekki er það síður merkilegt að hæstv. forsrh. skuli lýsa því yfir að hann hafi gert ráð fyrir því að ákvæði í kjarasamningnum stæðust. Bjóst hæstv. ráðherra við öðru? Þegar ríkisvaldið undirritar samning kemur það þá hæstv. forsrh. á óvart ef ákvæði samnings standast eða lýsir þetta einmitt því að það hafi aldrei staðið til að standa við samninginn? Það hlýtur að vera fyrst hæstv. forsrh. telur ástæðu til að lýsa því sérstaklega að hann hafi þarna reiknað með að ákvæðin mundu standast.
Ég spurði einnig hvort athugað hefði verið hve háar upphæðir væri um að ræða ef BHMR - félagar hefðu fengið greidda umsamda 4,5% launahækkun. Ég spurði ekki hvað það hefði kostað ef öllum öðrum hefði verið greidd þessi hækkun líka. Ég spurði einungis um áhrif hækkunarinnar ef hún hefði komið til greiðslu til BHMR og hvaða áhrif það hefði haft á verðlagningu ýmissar þjónustu og hvaða víxlverkunaráhrif það hefði hugsanlega sett í gang, ekki ef öll önnur stéttarfélög landsins, eða í þessu tilfelli ASÍ og BSRB, hefðu fengið sömu hækkun.
Það eru engin ákvæði í þjóðarsáttinni þess efnis að
þeim sem áttu aðild að þjóðarsáttinni bæri sama hækkun. Vissulega hafði sú skoðun verið látin í ljósi, a.m.k. af forustumanni ASÍ, að ef hækkunin kæmi til framkvæmda til BHMR þá mundi ASÍ sækja hverja krónu, hvern eyri. En það ákvæði er ekki að finna í þjóðarsáttinni svo að þar væri ekki um samningsbrot að ræða þótt sú hækkun hefði ekki verið færð yfir alla línuna, en það var vissulega um samningsbrot að ræða þegar það kom ekki til framkvæmda varðandi BHMR. Enn ítrekar hæstv. forsrh. að forsendum sem félagsdómur byggði á í sínu dómsorði hafi verið breytt og þess vegna hafi bráðabirgðalögin í rauninni ekki verið sett þvert á dómsúrskurð. Mér fannst það harla frjálsleg túlkun þegar hæstv. forsrh. heldur því fram
að víst hafi verið farið að niðurstöðu dómsins því að BHMR hafi fengið umsamda hækkun greidda tvisvar. Forsendur dómsins voru ekki þær að umsamin hækkun skyldi greidd tvisvar. Það var ekki tilgreint í dómnum. Það er því harla frjálslega með farið að reyna að koma því á félagsdóm að hann hafi úrskurðað að greiðslan skyldi koma til framkvæmda tvisvar. Það eru aftur aðgerðir ríkisstjórnarinnar sem gerðu það að verkum að það kom aðeins til framkvæmda tvisvar. Hvernig svo hægt er eftir að dómsorð er fallið að breyta þá samningi sem dómur byggðist á er að vísu utan og ofan við minn skilning. En það breytir ekki því að það er ekki mikill manndómsbragur yfir svona málflutningi að reyna nú að koma því yfir á félagsdóm að hann hafi úrskurðað tveggja mánaða greiðslu vegna þessarar hækkunar.