Ársreikningar og endurskoðun lífeyrissjóða
Miðvikudaginn 24. október 1990


     Flm. (Guðmundur H. Garðarsson) :
     Virðulegur forseti. Ég vil fá að gera athugasemd við það sem hæstv. fjmrh. sagði hér áðan. Það er náttúrlega fyrir neðan allar hellur þegar hv. þm. eða hæstv. ráðherrar eru að blanda inn í umræðuna mönnum sem geta ekki talað sínu máli hér. En með mjög, mjög ósæmilegum hætti reyndi hæstv. fjmrh. að sá ákveðnu ósætti milli vinar míns og samstarfsmanns, Davíðs Oddssonar borgarstjóra, í því máli sem hér er til umræðu. Þetta er náttúrlega bragð manns sem er þekktur fyrir það að vera pólitískur refur og kunna að matreiða í fjölmiðla þannig að það geti komið sumum vel og öðrum illa þegar það er gert með þeim hætti sem hæstv. fjmrh. gerði hér áðan. Það er eiginlega fyrir neðan virðingu mína að þurfa að standa hér upp, virðulegur forseti, og svara þessu eins og ég geri hér nú. En það er skiljanlegt að hæstv. fjmrh. vilji auðvitað reyna að koma á ósætti milli þeirra manna sem eru í forustu Sjálfstfl. með þeim hætti sem hann gerði hér áðan.
    Það get ég fullyrt og fullvissað hæstv. fjmrh. um að svona yfirlýsingar duga hvorki honum eða öðrum til þess að rjúfa það góða samstarf sem er á milli mín, sem þingmanns Sjálfstfl. í Reykjavík, og borgarstjórans, Davíðs Oddssonar.
    Ég kom aldrei inn á það hvernig ætti að skipta tekjuskattinum á milli ríkis og sveitarfélaga. Það er annað atriði sem vert væri að ræða en það mun ég auðvitað ekki gera hér undir þessum lið sem fjallar um að gera athugasemdir við ræðu hæstv. fjmrh. Ég legg hins vegar áherslu á það að ég vil láta hækka skattleysismörkin og ég vil láta lækka tekjuskatta. Ég legg áherslu á það að lág - og millitekjufólk sé skattlaust. Hvernig sá niðurskurður eða lækkun tekjuskatts kemur niður gagnvart ríkinu annars vegar og sveitarfélögunum hins vegar skulum við ræða undir þeim lið þegar það frv. verður lagt fyrir hið háa Alþingi.