Fyrirspyrjandi (Danfríður Skarphéðinsdóttir) :
Virðulegur forseti. Á degi Sameinuðu þjóðanna í fyrra urðu ýmsir til að efna til umræðu um réttindi barna í þjóðfélaginu. Hér á landi voru stofnuð samtökin Barnaheill sem hafa unnið að því að stuðla að vernd og betri aðbúnaði barna. Nýlega var haldin ráðstefna helstu þjóðarleiðtoga heimsins um stöðu barna í heiminum. Það er nú því miður svo að geysileg mótsögn er oft í viðhorfum til barneigna í þjóðfélaginu. Sjálfsagt þykir að eignast börn en þegar þau eru fædd má segja að þjóðfélagið sé þeim á margan hátt fjandsamlegt. Fæðingarorlof er of stutt, barnabætur skammarlega lágar, skóladagur sundurslitinn og víða úti á landi þurfa mörg börn að búa fjarri foreldrum sínum allt frá 6 -- 7 ára aldri vegna skólagöngu. Þarfir barna hafa allt of oft lotið í lægra haldi fyrir þörfum vinnumarkaðarins og stóraukinni atvinnuþátttöku mæðra hefur ekki verið mætt sem skyldi með öruggri barnagæslu, samfelldum skóladegi og skólamáltíðum. Þetta eru allt þættir sem ætti að gefa miklu meiri gaum því samfélaginu ber skylda til að búa vel að öllum börnum. Þau eru framtíð þjóðarinnar og því getur verið okkur dýrkeypt að spara fé til aðbúnaðar þeirra.
Burt séð frá þessum daglegu aðstæðum barna er réttur þeirra oft óljós og á það ekki síst við um börn sem verða að bitbeini foreldra sinna ef til hjónaskilnaðar kemur. Því miður virðist ekkert lát vera á fjölgun hjónaskilnaða þannig að það er stöðugt stærri hópur barna sem lendir í þeirri stöðu. Það verður að tryggja að þegar slíkar aðstæður koma upp sé börnum tryggður sjálfstæður réttur með stoð í lögum.
Á fyrsta þingi þessa kjörtímabils var lagt fram frv. til laga um breytingu á barnalögum og má segja að það hafi verið til þess að sníða helstu agnúa af þeim lögum sem tóku gildi árið 1981. Þar var þó reyndar eitt atriði sem var sérstaklega umdeilt, þ.e. um sameiginlega forsjá. En ég tel fulla þörf á því að skilgreina betur rétt barna og tryggja að þau eigi sér öruggan málsvara, hvernig svo sem ákvæðið um sameiginlega forsjá yrði afgreitt við afgreiðslu málsins. Þess vegna hef ég leyft mér að spyrja hæstv. dómsmrh. hvort von sé á því að hann leggi fram endurskoðuð barnalög nú á þessu þingi. Og fróðlegt væri að vita hvort það frv. yrði eins og það sem var lagt fram hér fyrr eða hvort þar yrðu einhverjar breytingar fyrirhugaðar.