Viðskiptaráðherra (Jón Sigurðsson) :
Hæstv. forseti. Hv. 1. þm. Norðurl. e. spyr hvað líði framlagningu frv. til nýrra samvinnulaga og vísaði í því sambandi til umræðna sem urðu hér í þinginu á liðnum vetri. Ég vil í því sambandi taka fram að ég skipaði nefnd til þess að endurskoða lögin um samvinnufélögin, sem eru nr. 46/1937, og til að semja frv. til nýrra laga um þetta efni í apríl sl. Þessi nefnd hefur starfað nú frá því að hún var skipuð og mun að líkindum ljúka störfum í þessum mánuði. Ég veit að hún hafði lokið við að semja drög að frv. þegar í lok september, er með greinargerð í smíðum og ég vænti þess að fullbúið frv. megi leggja fram í byrjun næsta mánaðar.
Það er rétt sem kom fram hjá hv. 1. þm. Norðurl. e. að það er þörf fyrir fjölþætt nútímaform fyrir atvinnurekstur, einnig þann sem er á vegum samvinnufélaganna. Það þarf að auðvelda eiginfjármögnun í þeim atvinnurekstri eins og tekist hefur hvað hlutafélögin varðar. Fyrirspyrjandi nefndi þá þróun sem orðið hefur nokkuð hröð og að mínu viti ánægjuleg á undanförnum missirum, að það færist í vöxt að fyrirtæki afli sér nauðsynlegs fjármagns með útboði hlutafjár. Þar fer margt saman, betri skilyrði á fjármagnsmarkaðnum, almennar reglur og skipulag hans, og svo skattameðferð sem nú hefur færst í heppilegra horf. Ég tek undir með fyrirspyrjanda að það er nauðsyn á því að samvinnufélögin og fyrirtæki á þeirra vegum njóti sams konar aðgangs að fjármagnsmarkaðnum.