Lágmarksframfærslukostnaður
Fimmtudaginn 25. október 1990


     Anna Ólafsdóttir Björnsson :
    Virðulegi forseti. Það mál sem hér er til umræðu er að mínu mati mjög brýnt. Ég vil taka undir röksemdir flm. og benda á að það er af ýmsum ástæðum mjög nauðsynlegt að þekkja hver lágmarksframfærslukostnaður er í landinu, einkum þar sem það blasir við að heimtur er skattur af launum sem eru langt undir framfærslumörkum. Þótt það hafi ekki verið mælt þá er það augljóst að þegar fólk getur ekki framfleytt sér af launum sínum þá eru þau laun einfaldlega óhæf til framfærslu. Mæling af þessu tagi tel ég að yrði mjög til bóta. Og vegna þess að flm. nefndi sérstaklega að með henni væri hægt að hafa einhverjar tölur á bak við tillögur um lágmarkslaun þá vil ég vekja athygli á að við kvennalistakonur höfum flutt oftar en einu sinni frv. um lögbindingu lágmarkslauna. Það er okkar sannfæring að nauðsynlegt sé, ef önnur ráð duga ekki, að binda í lögum að ekki séu greidd laun sem ekki duga til framfærslu. Það var hugsun okkar í þessu frv.
    Samkvæmt þeirri tillögu sem hér liggur fyrir er ekki beðið um mikið. Þarna er um alger þurftarmörk að ræða. Engu að síður held ég að hverjum og einum væri það hollt að gera sér grein fyrir hver þessi mörk eru. Þær röksemdir sem komið hafa fram um að ekki sé hægt að reikna út nákvæmlega þessar stærðir tel ég ekki vera eins mikilvægar og mikilvægi þessa máls og í raun ekki gildar. Séu þær vandamál, sem ég geri mér vissulega grein fyrir að eru, þá ber að leysa þau en ekki gefast upp fyrir þeim.
    Við kvennalistakonur höfum gert tilraun til þess að fá reiknaðan út eðlilegan framfærslukostnað manneskju sem lifir engu lúxuslífi og veitir sér ekki neitt umfram það sem telja mætti eðlilegt til að lifa mannsæmandi lífi. Þau viðbrögð sem við fengum frá Hagstofu voru að ótal fyrirvarar voru á þeim tölum sem við þó að lokum fengum. Talin voru öll tormerki á því að hægt væri í rauninni að reikna þetta út. Það skýtur því nokkuð skökku við að sjá að ekki virðist þetta vera alveg útilokað þegar reiknuð hefur verið út framfærsla námsmanns sem Hagstofa Íslands gerði fyrir Lánasjóð ísl. námsmanna. Þá kom í ljós að framfærsla námsmanns er í kringum 80 þús. kr. og raunar rúmlega það. Þetta eru tölur frá því núna í sumar. Ekki get ég ímyndað mér að allt það sem í þeirri tölu felst sé bókakostnaður, þannig að kannski eru framfærslumörk ekkert langt frá þessari tölu.
    Það er auðvitað rétt að geta þess að sama námsmanni eru ætlaðar u.þ.b. 50 þús. kr. til að framfleyta sér. Samt er mikið talað um hve gott námsmenn hafi það. Það er auðvitað ekki rétt heldur hafa þeir það kannski skárra en aðrir sem hafa það mjög slæmt og er ætlast til að lifi á launum sem eru alveg hreint smánarleg.
    Ég fagna því þeirri þrautseigju að nú skuli þessi þáltill. flutt enn einu sinni og ítreka að það er mikilvægt að þessar upplýsingar séu fyrir hendi. Ef opinberar stofnanir telja einhver tormerki á að reikna lágmarksframfærslukostnað út vænti ég þess að þær

geri tillögur um hvernig best væri að standa að þessu máli en vísi málinu ekki frá sér. Ég treysti þingmönnum til að veita þessu máli brautargengi að slíkum tillögum fengnum.