Fjárlög 1991
Fimmtudaginn 25. október 1990


     Geir H. Haarde :
    Virðulegi forseti. Hæstv. félmrh. sagðist nú ekki ætla að flytja ræðu um húsnæðismál en mig fýsir að vita þá hvernig ræður hennar um húsnæðismál eru ef þetta var ekki ein af þeim. En ég verð að segja það, virðulegi forseti, að eftir þessa ræðu hæstv. félmrh. og það sem hér hefur komið fram í hennar máli þá sé full ástæða til þess, t.d. fyrir mig, að óska eftir utandagskrárumræðum um þetta mál í næstu viku, einhvern tíma þegar tími gefst til.
     Ég kannast ekki við það að það hafi legið einhverjir pappírar í fjmrn. árið 1986 sem hafi verið einhver sérstök leyndarmál í sambandi við húsnæðismál. Það sem ég átti við með því að vandinn hefði lengi verið ljós og það hefði verið trassað að taka á honum varðandi Byggingarsjóð ríkisins er auðvitað það að strax á árinu 1987, þegar þetta kerfi hafði verið í gangi í hálft ár eða níu mánuði, þá lá fyrir að vaxtamunurinn í því var orðinn allt of mikill, miklu meiri en kerfið réði við. En hvað lá þá beinast við að gera? Það var auðvitað að hækka vextina. Það var það sem var trassað. Hver ber ábyrgð á því? Félmrh.
    Þannig er nú þetta mál, það sem ég var að tala um. En það sem kemur hins vegar fram og er auðvitað aðalatriðið í ræðu félmrh., virðulegi forseti, og ég vænti þess að fjmrh. hafi hlustað vel á þau ummæli, er það að þetta fjárlagafrv. er ekki frv. sem félmrh. styður. Það liggur fyrir hér af hálfu félmrh. að hún gerir ágreining og hefur fyrirvara við þetta frv. sem á þó að heita stjfrv. og aðalfrv. hverrar ríkisstjórnar er að sjálfsögðu fjárlagafrv. Ég hygg að þetta sé nú nokkurt nýmæli og þetta eru nokkur tíðindi að það kemur fram hér í ræðustól að félmrh. ætlar ekki að styðja þetta frv. óbreytt. Það er það sem fram kom. Félmrh. ætlar ekki að styðja fjárlagafrv. óbreytt. Í hvaða stöðu er þá hæstv. fjmrh. og í hvaða stöðu er þá ríkisstjórnin þegar þessi yfirlýsing liggur hér fyrir í sölum Alþingis og er ekki bara eitthvert tal milli manna úti í bæ eða eitthvert tal eða skrif í fjölmiðlum? Ég hygg að fjmrh. verði að skoða stöðu sína mjög vel í þessu máli eftir að þessar upplýsingar eru komnar hér fram.
    En það sem ég vildi ljúka með, virðulegi forseti, er að ítreka þá ósk mína að við fáum tækifæri í næstu viku til þess að ræða almennilega um húsnæðismálin. Það liggja fyrir tvær ef ekki þrjár skýrslur frá sl. sumri sem fram hafa komið og ekki hafa fengið neina umfjöllun á hinu háa Alþingi. Ég held að það sé fyllsta ástæða til þess að taka hér utandagskrárumræðu af lengri gerðinni til þess að fjalla um þau mál og horfur og stöðu almennt í þessum málum og þá er tækifæri til þess að ræða þau til hlítar. Ég vænti þess að forseti geti orðið við þessari ósk.