Utanríkisráðherra (Jón Baldvin Hannibalsson) :
    Virðulegi forseti. Örfá orð af gefnu tilefni. Það var spurt hér í umræðunni áðan hverjir hefðu boðað fórnarkostnað vegna samninga við Evrópubandalagið. Jafnframt var því haldið fram að hægt væri að nefna mörg dæmi um það hversu margt hefði breyst í málflutningi utanrrh. sem málsvara ríkisstjórnar í þessum málum. Sér í lagi er á því klifað að af hálfu talsmanna ríkisstjórnarinnar hafi því verið haldið fram að það væri mjög líklegt að Evrópubandalagið samþykkti að afnema þá stefnu sem bundin er í Rómarsáttmála og varðar fríverslun með fiskafurðir, þ.e. hina sameiginlegu fiskveiðistefnu.
Þessu var nú að fullu svarað í fyrri ræðu minni, af því að þetta verður náttúrlega að vera skýrt. Ég vitnaði til þessara orða, með leyfi forseta: ,,Það er ekki líklegt að Evrópubandalagið leggi af sína sameigin-legu fiskimálastefnu, enda eru menn ekki að fara fram á það. Allt sem við förum fram á er tollfrjáls og hindrunarlaus aðgangur að mörkuðum bandalagsins fyrir okkar sjávarafurðir.`` Er þetta sagt núna til þess að klóra yfir eitthvað sem áður var sagt? Nei. Þetta var sagt þremur dögum eftir harðar umræður hér á hinu háa Alþingi sem snerust um hverra kosta væri völ: EFTA - sporið, tvíhliða samningar eða bein aðild. Því var haldið fram að sá árangur sem náðist við að koma fram fríverslun með fiskafurðir innan EFTA hefði verið skref í rétta átt, mundi koma okkur að fullum notum hugsanlega síðar, hefði styrkt samningsstöðu okkar vegna þess að nú væri þessi krafa ekki lengur okkar einna, heldur studd af öllum hinum EFTA - löndunum. Allt sem síðan hefur gerst hefur staðfest að þetta var rétt. Það hefur styrkt stöðu okkar verulega. --- Hefur ekki hv. 1. þm. Suðurl. tekið svo til orða að menn þurfi tröppu til að standa á? Hér er trappa til að standa á. Hann hefur heyrt um stól til að sitja í.
    Krafan um fríverslun með fisk hefur stórlega styrkt stöðu okkar Íslendinga gagnvart Evrópubandalaginu. Það stendur skrifað og því hefur verið haldið fram af minni hálfu. Það er ekki líklegt, ég hef aldrei haldið því fram að það væri líklegt, að hún fengist fram í einni svipan. En því var haldið fram, og því er enn haldið fram af minni hálfu, að ... ( ÞP: Af hverju var hún stórsigur?) Hún styrkti samningsstöðu okkar stórlega, bæði vegna þess, til þess að svara því efnislega, að við flytjum ekki út miklar fiskafurðir til EFTA - landanna þannig að það eru ekki gríðarlegir hagsmunir í húfi að óbreyttu ástandi. Þegar hún er komin að fullu til framkvæmda mun hún hins vegar greiða fyrir og bæta samkeppnisskilyrði okkar og gæti leitt til þess að sá útflutningur færi vaxandi. Það var aldrei kynnt sem aðalatriði málsins, heldur hitt að þetta mundi styrkja samningsstöðu okkar. Rökin fyrir því hafa verið margyfirfarin nú, nefnilega þessi: Jafnvægið í þessum samningum, fórnarkostnaðurinn sem við erum alltaf að tala um, hver er hann? Annars vegar í tvíhliða viðræðum þar sem kröfurnar beinast að okkur einum eða hins vegar í marghliða viðræðum þar

sem kröfurnar um aðgengi að miðum, eða greiðari aðgangur fyrir landbúnaðarafurðir, eða aukin framlög EFTA - landa til þess að jafna lífskjör, beinist að EFTA í heild. Og þegar EFTA í heild stendur frammi fyrir þessum kröfum, vegur og metur ávinninginn sem þau ríki hafa af aðgengi að innri markaðnum og hins vegar það sem í þeirra augum er smávægilegur fórnarkostnaður, er enginn vafi á því að samningsstaða okkar hefur styrkst stórlega ef það kynni nú að koma á daginn að það gengi eftir að við næðum þessum samningum án þess að beygja okkur undir sameiginlega fiskveiðistefnu bandalagsins, án þess að þurfa að sætta okkur við, til þess að ná þeim árangri, að opna okkar landhelgi, hvað svo sem önnur EFTA - ríki gera, sum hafa þegar gert það, þá getur enginn neitað því með rökum að þetta hafi verið lykilatriði. Af hverju eru menn þá að halda öðru fram?
    Hv. 1. þm. Suðurl. nefndi það réttilega að reynt hefði verið að koma á tvíhliða viðræðum við Evrópubandalagið um fiskveiðimálefni og að í því efni hefði verið vakin upp spurningin um gagnkvæmni í fiskveiðiheimildum. Það er rétt hjá hv. 1. þm. Suðurl. Sá sem fyrstur lagði þetta fram var hæstv. sjútvrh. Halldór Ásgrímsson í viðræðum sínum við sjávarafurðadeild bandalagsins, beint við señor Marin, hinn margfræga. ( Gripið fram í: Hann hafði ekkert umboð til þess.) Hann hafði umboð ríkisstjórnar til þess, hann gerði þetta. Hver var fórnarkostnaður þess? Svarið er: Enginn. Ef menn eru að bjóða upp á gagnkvæmni um einhverjar málamyndaveiðiheimildir fyrir einhverjar málamyndaveiðiheimildir þá er fórnarkostnaðurinn nákvæmlega enginn. Og hvers vegna ætti þetta að vera svo svívirðilegt? Þetta er ekkert svívirðilegt af þeirri einföldu ástæðu að það vill svo til að við höfum veitt tveimur þjóðum fiskveiðiheimildir. Önnur heitir Belgar, frá fyrri tíð. Þau skip eru svona bráðum að fúna í naustum. Hin þjóðin heitir Færeyingar. Það er auðvitað álitamál hvort við eigum að halda áfram að veita fiskveiðiheimildir grannþjóð okkar, vinum, Færeyingum, ef þeir kynnu að nota þann hinn sama kvóta í samningum sínum við Evrópubandalagið. En aðalatriðið er einfaldlega það sem hér segir:
    Fórnarkostnaður. Var verið að snúa út úr fyrir hv. þm. Ragnhildi Helgadóttur með því að vekja athygli á því hversu gerólíkur málflutningur hv. þm. var málflutningi hv. þm. Eyjólfs Konráðs Jónssonar og reyndar hv. þm. og formanns Sjálfstfl. Þorsteins Pálssonar? Nei, það var ekki verið að snúa út úr neinu vegna þess að staðreyndin er þessi: Hv. þm. Ragnhildur Helgadóttir sagði: Ég óttast að dráttur á því að leggja fram aðildarumsókn gæti þýtt að við yrðum seinust í biðröðinni og það er slæmt fyrir oss. Ég skora á hæstv. ríkisstjórn að leggja fram umsókn hið fyrsta. Athugasemdin kom, kannski ekki í dag, kannski á morgun, vegna þess að nú er lag, það er stemning fyrir málinu, --- kvenlegt innsæi. (Gripið fram í.) Að leggja fram umsókn þýðir vilja til þess að ganga til samninga um aðild að Evrópubandalaginu. Einhver var að vitna hér til þess að Evrópubandalagið væri nú reiðubúið til þess að ganga til samninga fyrr en það

hefur sagt áður. Ég hef að vísu efasemdir um það. Söm er þeirra gjörð. Að leggja fram umsókn um aðild strax þýðir vilja til þess að ganga inn í Evrópubandalagið á þeim skilmálum sem þekktir eru. Þeir eru: Ekkert ríki gengur inn í Evrópubandalagið án þess að undirgangast Rómarsamninginn. Ekkert ríki hefur samið um frávik frá Rómarsamningnum. Rómarsamningurinn kveður á um hina sameiginlegu fiskveiðistefnu bandalagsins. Hin sameiginlega fiskveiðistefna bandalagsins kveður á um það að forræði yfir fiskveiðilögsögunni fer til --- ekki Rómar heldur Brussel. Sá sem segir: Ég er reiðubúinn og vil sækja um aðild að Evrópubandalaginu á skilmálum þess strax, er að segja: Ég er reiðubúinn til þess að una því að forræðið yfir auðlindinni fari til Brussel. Það er ekki til meiri ágreiningur milli tveggja einstaklinga í þessu máli en milli þess hv. þm. sem segir að aldrei, aldrei megi það heyrast úr íslenskum barka og hins þingmannsins í sama flokki sem segir: Þetta á að gera strax. Þetta er ekki útúrsnúningur. ( RH: Er hæstv. ráðherra að smíða viðsemjendum okkar vopnin í hendur?) Hæstv. ráðherra er ekki að smíða neinum viðsemjendum vopn í hendur. Hann er hins vegar læs á ári læsis. Og það fer ekkert á milli mála að það er ekkert land til sem er reiðubúið að undirgangast skuldbindingar fullrar aðildar. Það semur ekkert um undanþágur af slíku tagi. Förum yfir það: Danmörk, Stóra - Bretland, Írland, Spánn, Portúgal. Þau fengu tímabundna aðlögun í ýmsum málum. En þau sömdu sig ekki frá Rómarsáttmálanum. Þau sömdu sig ekki frá sameiginlegri fiskveiðipólitík. Þau sömu sig ekki frá hinni sameiginlegu landbúnaðarpólitík. Þau sömdu sig ekki frá þeirri staðreynd að öll þessi ríki afhentu forræði yfir fiskveiðilögsögu sinni í hendur framkvæmdastjórnarinnar umfram 12 mílur. Það er framkvæmdastjórnin sem fer með það mál. Það er framkvæmdastjórnin sem fer með fiskveiðipólitíkina. Það er framkvæmdastjórnin sem úthlutar kvótum. Munurinn er einfaldlega þessi.
    Ég hef aldrei sagt að það sé einhver goðgá að orða spurninguna um aðild að Evrópubandalaginu. Ég hef aldrei neitað því að það kunni að vera að samningurinn um Evrópskt efnahagssvæði sé bráðabirgðaráðstöfun. Ég bendi að vísu á að núverandi ástand Evrópubandalagsins er líka bráðabirgðaástand vegna þess að það liggja fyrir sjö áætlanir um framkvæmdir á vegum Evrópubandalagsins sem munu breyta því innan fárra ára. En fram hjá því verður ekki komist og það segi ég alveg skýrt: Það reynir á það í samningum um hið Evrópska efnahagssvæði hvort Íslendingar geta fengið samninga sem tryggja grundvallarlífshagsmuni þessarar þjóðar sem er: Markaðsaðgengi fyrir sjávarafurðir án þess að á móti komi krafan um veiðiheimildir. Ég er ekki reiðubúinn að segja: Við erum tilbúnir til að leggja fram aðildarumsókn að Evrópubandalaginu fyrr en ég hef það í hendi. Það er það minnsta. Og ég bæti við: Þó að ég hefði það í hendi er ég ekki þar með búinn að gera upp hug minn um það að það leiði rökrétt til þess að við eigum að gerast aðilar að Evrópubandalaginu. Ég er alls ekki búinn að gera það upp við mig.
    Hv. 1. þm. Suðurl. beindi síðan til mín einni þýðingarmikilli spurningu sem er þessi: Hver er afstaða íslensku ríkisstjórnarinnar varðandi fyrirvara um rétt erlendra aðila til þess að kaupa land ef þessir samningar ná fram að ganga? --- og vísaði til þeirra deilna sem upp hafa risið í Noregi og leiddu til falls ríkisstjórnarinnar. Svarið er þetta: Af hálfu íslenskra stjórnvalda hefur verið skráður fyrirvari um takmarkanir á rétti erlendra aðila til þess að kaupa bújarðir á Íslandi. Ef spurt er: Erum við reiðubúnir til þess að falla frá þeim fyrirvara með formlegum hætti, eins og Norðmenn voru spurðir að, þá er svarið þetta: Ef unnt er að tryggja forræði íslenskra stjórnvalda yfir bújörðum og lendum, sem og auðlindum, þá værum við tilbúnir til þess að skoða það mál. Og það er hægt að mínu mati. Íslensk lög, jarðakaupalög, tryggja sveitarfélögum forkaupsrétt sem reynslan sýnir að mikið hald er í. Það sem varðar þessa samninga við Evrópubandalagið af hálfu EFTA varðar aðeins eina spurningu, nefnilega að samkvæmt þeim reglum má ekki mismuna aðilum eftir þjóðerni, erlendur aðili/innlendur aðili, ef um er að ræða kaup á bújörð í hagnaðarskyni. Það er hins vegar á valdi íslenskra stjórnvalda að segja: Það kaupir enginn íslenska bújörð nema sá sem situr hana og nytjar hana. Og það er á valdi íslenskra stjórnvalda að herða á ákvæðum jarðakaupalaga á þann veg, ekki aðeins að sveitarfélög hafi forkaupsrétt heldur að tryggja það líka, með aðild ríkisvaldsins, að ekki komi upp sú staða að erlendur auðkýfingur sem vill kaupa jörð með laxveiðihlunnindum geti gert það hindrunarlaust. Sveitarfélagið segir: Við viljum neyta forkaupsréttar, en við höfum ekki fjármagn til þess. Ríkið getur gengið inn í það, svo að ég nefni eitt dæmi um þá lagabreytingu sem við getum gert. Þetta er dæmi um það að við getum í mörgum tilvikum breytt íslenskum lögum þannig að þau standist án þess að settir séu formlegir fyrirvarar og munum ná sömu efnislegu niðurstöðu, þ.e. ráða yfir því hver er ráðstöfunarréttur, eða kauparéttur, fjárfestingarréttur varðandi bújarðir, hlunnindi, náttúruauðlindir. Ef við getum tryggt það með íslenskri löggjöf, fengið sömu niðurstöðu, hverju er þá fórnað? Engu.
    Spurt var síðan: Hvað líður stefnu stjórnvalda varðandi áform um breytingar á ríkisbönkum í hlutafélög? Svarið er þetta: Það er ekkert sem varðar þessa samninga, þ.e. það er ekkert í lögum eða reglum Evrópubandalagsins sem segir að ríkið megi ekki eiga banka. Lög og reglur Evrópubandalagsins kveða ekkert á um eignarform að því leyti. Það eru til margir ríkisbankar í Frakklandi, Ítalíu, Skandinavíu og víðar, vissulega. Þannig að sú skoðun, sem er rétt skoðun, skynsamleg skoðun, að það sé miklu hagkvæmara rekstrarform banka að þeir séu hlutafélög kemur þessu máli út af fyrir sig ekkert við. Hitt er svo annað mál að hæstv. viðskrh. hefur ekki einasta lýst þeirri skoðun, þeirri stefnu sinni, að að þessu beri að keppa. Hann hefur gefið Seðlabankanum fyrirmæli um að skoða það mjög rækilega og skila um það greinargerð hverjir séu kostir og gallar þess að breyta ríkisbönkum í

hlutafélagabanka. Þess er vænst innan mjög skamms tíma að sú greinargerð liggi fyrir og hún verður þá kynnt hér á Alþingi. Síðan er óhjákvæmilegt að bæta því við: Hæstv. viðskrh. hefur fylgt þessari sannfæringu sinni eftir vegna þess að hann hefur náð þeim árangri á stuttum tíma að leysa mál sem uppi hefur verið í íslenskri þjóðmálaumræðu á annan áratug, nefnilega að fækka bönkum, að sameina banka sem hlutfjárbanka og efla þann þátt í íslensku fjármagnskerfi.
    Virðulegi forseti. Ég held að ég hafi hér svarað því sem brýnast var af því sem fram kom í þessum umræðum og beint var til mín. Að lokum þetta:
    Því var haldið fram í þessum umræðum að af hálfu EFTA hefðu engar lausnir verið lagðar fram varðandi stjórnun hins Evrópska efnahagssvæðis. Þetta er ekki rétt. Af hálfu EFTA hafa verið lagðar fram ótal tillögur um það með hvaða hætti megi haga því út frá grundvallarreglum um jafnræði. Það er heldur ekki rétt sem hv. 1. þm. Suðurl. sagði að sjálfgefið væri að frumkvæðið yrði Evrópubandalagsins. Mér finnst þýðingarmikið að menn átti sig á þessu. Vissulega er Evrópubandalagið tíu sinnum fjölmennara að mannfjölda en EFTA. Vissulega er hins vegar líka rétt að þjóðir EFTA búa við betri efnahag en Evrópubandalagið, eru sterkari á efnahagssviðinu á hvaða kvarða sem metið er, út frá hlutdeild í alþjóðaviðskiptum, út frá hlutdeild í milliríkjaviðskiptum við Evrópubandalagið, út frá þjóðartekjum á mann, út frá þjóðarframleiðslu, út frá ,,lifistandard`` og þannig mætti lengi telja.
    Síðan ætla ég að bæta því við. Reynslan hefur kennt okkur EFTA - mönnum, sem þátt höfum tekið í þessum samningum, að það eru stundum ekki innihaldslaus orð að segja: Smátt er fagurt. Það er staðreynd að EFTA hefur haft frumkvæði í þessum viðræðum frá upphafi vega og til þessa dags, hafði frumkvæði í undirbúningsviðræðunum. EFTA er aðilinn sem hefur lagt fram meginið af vinnunni, EFTA er aðilinn sem hefur lagt fram tillögurnar, EFTA er aðilinn sem hefur knúið á um að halda þessum viðræðum, viðhalda mómentum, viðhalda hraða samninganna. Hvað eftir annað hefur það gerst að fulltrúar hins stóra bandalags hafa sagt: Herrar mínir, farið ekki svona hratt. Við ráðum ekki við þetta. Og þeir hafa sagt: Við stöndum frammi fyrir svo mörgum vandamálum. Við höfum ekki nægilegu starfsliði á að skipa til þess að fást við öll þessi flóknu mál. Þið verðið að afsaka að við getum ekki komið með svör við þessum spurningum.
    Þetta eru staðreyndir málsins. Um þetta ber öllum aðilum, sem nálægt málinu hafa komið frá báðum hliðum, saman um. Það er ekkert sjálfgefið við það að fjölmennari ríkjasamsteypan hafi frumkvæðið. Það er ekkert sjálfgefið við það að EFTA - aðilinn í þessari tveggja stoða lausn geti ekki hugsað, geti ekki unnið, geti ekki lagt fram tillögur, ekki aðeins til jafns við heldur jafnvel haft frumkvæði. Þessi orð sem lýsa þessu á annan veg eru ekki rétt lýsing á veruleikanum og bera reyndar vott ákveðinni vanmetakennd. Vanmetakennd er ekki besta veganestið í erfiðum samningum. Þó að okkur kunni að greina á um hvernig beri að túlka eitt eða annað í þessum umræðum árétta ég það að út frá mínum bæjardyrum séð hafa þessar umræður verið afar gagnlegar.
Það hefur kveðið mjög við annan tón en áður var. Það er ekki rifrildistónn eða vilji til þess að búa sér til ágreiningsefni. Það er vilji til þess að ræða þessi mál málefnalega. Það er mikil samstaða um markmiðin. Það er mikið sameiginlegt í matinu á hagsmununum. Það er eðlilegt að sitt sýnist hverjum um suma þætti í leiðunum og í tæknilegum álitamálum, allt saman eðlilegt og sjálfsagt. En umræða sem byggist á haldgóðum upplýsingum og góðum vilja er í sjálfu sér góð og gagnleg og mun færa okkur nær góðum árangri í þeim samningum sem fram undan eru og enginn deilir um að eru einhverjir þýðingarmestu samningar sem við höfum nokkurn tíma staðið í í sögu lýðveldisins.