Jöfn staða og jafn réttur kvenna og karla
Þriðjudaginn 30. október 1990


     Félagsmálaráðherra (Jóhanna Sigurðardóttir) :
    Virðulegi forseti. Ég mæli hér fyrir frv. til laga um jafna stöðu og jafnan rétt kvenna og karla sem er 69. mál Ed. á þskj. 71.
    Frv. hefur tvívegis áður verið lagt fyrir Alþingi en ekki náð fram að ganga. Sl. vor þegar frv. var lagt fram öðru sinni náðist um það víðtæk samstaða og voru gerðar á því nokkrar breytingar við meðferð málsins í Nd. Þannig breytt var frv. afgreitt með samhljóða atkvæðum til Ed. og var það afgreitt þar til nefndar og fékk þar einnig umfjöllun. Vegna anna í þingflokki í vor tókst Ed. ekki að ljúka umfjöllun um frv. og þess vegna er það endurflutt.
    Þar sem ég hef tvívegis áður fylgt frv. úr hlaði og gert grein fyrir því mun ég að þessu sinni einungis gera grein fyrir helstu breytingum frá núgildandi jafnréttislögum sem leiðir af samþykkt frv. en frv. er flutt núna eins og það var afgreitt samhljóða frá Nd.
    1. Lagt er til að hinu tvíþætta hlutverki Jafnréttisráðs verði skipt þannig að skipuð verði sérstök kærunefnd jafnréttismála sem eingöngu hafi það hlutverk að fjalla um kærur sem berast nefndinni og fylgja þeim eftir fyrir dómstólum. Með þessum hætti getur Jafnréttisráð einbeitt sér að því að gegna öðrum verkefnum, svo sem að vera stefnumótandi í jafnréttismálum, sinna rannsóknaskyldu, fræðslu og fleira.
    2. Í frv. er skýrara ákvæði um skipan jafnréttismála í stjórnkerfinu. Kveðið er á um að félmrh. fari með jafnréttismál. Ástæðan fyrir þessari breytingu er sú að samkvæmt núgildandi lögum er stjórnskipuleg ábyrgð ráðherra á jafnréttismálum mjög óljós. Sama gildir um stöðu Jafnréttisráðs í stjórnkerfinu. Forsenda markvissra vinnubragða á þessu sviði er eins og á öllum öðrum að ábyrgð og skyldur séu ljósar. Á þessu er tekið í frv.
    3. Samkvæmt frv. er félmrn. heimiluð ráðning jafnréttisráðgjafa sem starfi í náinni samvinnu við Jafnréttisráð. Með þessu ákvæði er komið til móts við óskir sem fram hafa komið um þetta efni, m.a. á Alþingi, þar sem tvívegis hafa verið lagðar fram þingsályktunartillögur um að ríkisstjórninni verði falið að ráða jafnréttisráðgjafa.
    Í greinargerðum með þingsályktunartillögunum hefur verið bent á að þrátt fyrir lagaákvæði um jöfnuð kvenna og karla séu konur verr settar en karlar á flestum sviðum þjóðlífsins. Bent er á að konur séu í miklum meiri hluta í láglaunastörfum og að meðallaun þeirra hafa farið lækkandi undanfarin ár í samanburði við laun karla.
    4. Í upphaflega frv. var lagt til að beitt yrði öfugri sönnunarbyrði í þeim kærumálum sem kærunefnd jafnréttismála berast. Í þessu fólst að sá sem veitir stöðu eða ræður starfsmann verður að sýna fram á með verulegum líkum að þar hafi kynferði ekki ráðið vali á starfsmanni.
Í því frv. sem nú er lagt fyrir Alþingi er gert ráð fyrir að telji einhver rétt á sér brotinn skuli atvinnurekandi sýna kærunefnd jafnréttismála fram á að aðrar ástæður en kynferði hafi legið til grundvallar ákvörðun hans. Þessi breyting þýðir að öfug sönnunarbyrði skuli einungis gilda fyrir kærunefnd en ekki í dómsmálum um jafnréttismál.
    5. Nefndin, sem endurskoðaði núgildandi jafnréttislög, gerði það að tillögu sinni í upphaflegri gerð frv. að nefna skuli tvo, karl og konu, þegar tilnefnt er í nefndir, stjórnir og ráð á vegum ríkis og sveitarfélaga. Við skipunina skyldi þess síðan gætt að hlutfall kynjanna verði sem jafnast. Ekki tókst samstaða um þessa breytingu við meðferð málsins hér á hv. Alþingi. Hins vegar er nú lagt til að þegar óskað er tilnefningar í stjórnir og ráð verði ávallt á það minnt að í þeim skuli sitja sem næst jafnmargar konur og karlar.
    6. Ákvæði er í frv. um heimild til þess að dæma miskabætur, en dómstólar hafa komist að þeirri niðurstöðu að slíka heimild sé ekki að finna í núgildandi jafnréttislögum. Hér er því um nýmæli að ræða í frv.
    7. Þá nefni ég mjög mikilvægt ákvæði í 17. gr. frv. Er þar kveðið á um að félmrh. leggi fyrir Alþingi áætlun um jafnréttismál til fjögurra ára í senn í formi þáltill. Áætlun Jafnréttisráðs og áætlanir einstakra ráðuneyta og stofnana í jafnréttismálum verði síðan felldar inn í þessa heildaráætlun. Lagt er til að áætlun þessi verði endurskoðuð á tveggja ára fresti. Benda má á það nýmæli í frv. að gert er ráð fyrir að einstök ráðuneyti og stofnanir semji áætlanir í jafnréttismálum. Með þessum hætti er Alþingi gefinn kostur á að taka virkan þátt í að móta stefnuna í jafnréttismálum.
    Þar sem Jafnréttisráði er ætlað breytt hlutverk frá gildandi lögum er verkefnisgrein ráðsins að nokkru leyti breytt. Annars vegar er kveðið á um það í 2. tölul. greinarinnar að endurskoða eigi stefnumarkandi áætlun ráðsins á tveggja ára fresti. Hins vegar er lagt til að 8. tölul. 15. gr. gildandi laga, sem fjallar um ábendingar við brotum, verði felldur undir verksvið kærunefndar jafnréttismála.
    Auk framangreindra verkefna samþykkti félmn. Nd. Alþingis nokkrar aðrar breytingar á verkefnum Jafnréttisráðs eins og þeim var lýst í fyrri gerðum frv. Nd. samþykkti að í 7. tölul. skuli kveðið á um það verkefni ráðsins að taka til rannsóknar, að eigin frumkvæði eða annarra, stöðu kvenna og karla. Einnig samþykkti deildin að bæta nýjum tölulið við greinina þar sem kveðið yrði á um að haldið skuli jafnréttisþing á a.m.k. þriggja ára fresti. Í áliti félmn. kemur fram að gert er ráð fyrir að ráðherra setji nánari ákvæði í reglugerð um skipulag og hlutverk þingsins. Nefndin tekur þó fram í ályktun sinni að eðlilegt sé að verkefni slíks þings séu ráðgjafar - og umsagnarstörf á sviði jafnréttismála fyrir Jafnréttisráð, ekki síst vegna aðildar ráðsins að mótun jafnréttisáætlunar. Um leið gæti þingið orðið vettvangur almennrar umræðu um jafnréttismál og uppspretta og farvegur nýrra hugmynda um þau mál. Nefndin telur jafnframt eðlilegt að aðild að þinginu eigi auk Jafnréttisráðs fulltrúar jafnréttisnefnda, stjórnmálaflokka og fulltrúar félagssamtaka er láta sig jafnréttismál varða.
    Virðulegi forseti. Ég vil geta þess að frv., eins og

því hafði verið breytt í meðförum Nd., var sent Jafnréttisráði til umsagnar í sumar. Í umsögn ráðsins segir m.a. að ráðið telji miður að mörg ákvæði upphaflega frv. hafi verið felld niður í meðförum Alþingis, t.d. tillaga um að lögfesta svonefnda tilnefningarleið þegar tilnefnt er í stjórnir, nefndir og ráð. Jafnframt lýsir ráðið yfir furðu sinni á því að ekki skuli vera samstaða meðal þingmanna um að lögfesta reglur um sönnunarbyrði í jafnréttismálum sem taki til meðferðar þeirra mála, bæði á stjórnsýslustigi og fyrir dómstólum. Jafnréttisráð vekur athygli á því að þetta gerist á sama tíma og verið sé að yfirfara íslensk lög og reglugerðir með tilliti til reglna Evrópubandalagsins. Ráðið telur hins vegar að frv., eins og það liggur fyrir eftir afgreiðslu félmn. Nd. Alþingis, sé spor í rétta átt. Í frv. sé gert ráð fyrir að lögfesta nýtt fyrirkomulag í framkvæmdaáætlun hins opinbera og gert sé ráð fyrir skýrri lagaheimild til þess að dæma bætur. Enn fremur er lagt til að sérstakri nefnd verði falin meðferð kærumála, svo að nokkur dæmi séu tekin um nýmæli frá núgildandi lögum. Jafnréttisráð telur því æskilegt að frv. verði lögfest í núverandi mynd, þ.e. eftir afgreiðslu Nd. Alþingis í vor.
    Ég sé ekki ástæðu til að fjalla frekar um frv., enda fékk það ítarlega umfjöllun á síðasta þingi. Þó að ég hefði viljað sjá mörg ákvæði í þessu frv. á annan veg en það er lagt fram nú, þá hef ég valið þá leið að leggja frv. fram í þeirri mynd sem Nd. afgreiddi það. Fulltrúar allra flokka á þingi stóðu að afgreiðslu frv. með þeim hætti og taldi ég það rétt í þeirri von að um það gæti tekist samstaða hér á Alþingi að lögfesta frv. í þessari mynd.
    Ég vil, virðulegi forseti, í lokin einungis láta í ljós þá von að þetta frv. fái skjóta afgreiðslu á Alþingi þannig að ný jafnréttislög geti tekið gildi sem allra fyrst. Ég vil leggja til að að lokinni þessari umræðu verði frv. vísað til 2. umr. og hv. félmn.