Jöfn staða og jafn réttur kvenna og karla
Þriðjudaginn 30. október 1990


     Salome Þorkelsdóttir :
    Hæstv. forseti. Eins og kom fram í máli hæstv. félmrh. er þetta frv. ekki nýtt af nálinni. Það komst til nefndar hér í hv. deild á síðasta þingi en tími vannst ekki til þess að afgreiða það. Ég sé ekki ástæðu til þess að fara um það mörgum orðum. Ég vildi aðeins taka undir orð hæstv. félmrh. að ég sé ekki að frv. þurfi að fá langa umfjöllun vegna þess að fjallað hefur verið um það fyrr. Hv. þingdeildarmenn ættu að þekkja efnisatriðin, enda er þetta frv. samkomulagsmál, eins og reyndar kom fram í máli hæstv. ráðherra. Ég vildi aðeins taka undir þau orð hennar að ég vænti þess að hægt verði að afgreiða þetta frv. nokkuð fljótlega.