Valgerður Sverrisdóttir :
Hæstv. forseti. Ég vil, eins og fleiri hv. þm. hafa gert, lýsa stuðningi við þetta mál. Mér sýnist að hér sé um stórkostlegt réttlætismál að ræða og jafnréttismál jafnframt. Ég get tekið undir þær efasemdir sem komu fram hjá hv. 5. þm. Reykv. um að það megi vera að þetta ákvæði falli betur inn í önnur lög. Það verður eflaust skoðað í meðferð nefndar. En ég vildi bara að það kæmi fram að mér finnst vera hér um mikið réttlætis- og jafnréttismál að ræða sem ég styð.