Stefán Valgeirsson :
Virðulegi forseti. Ég ætla ekki að tala hér langt mál. Ég fagna því að sá háttur er tekinn upp að reyna að koma öllum þessum fjáraukalögum í gegnum þingið á skikkanlegum tíma á þessu ári þannig að það séu fullar heimildir fyrir þeim greiðslum sem hafa reynst nauðsynlegar umfram fjárlög á yfirstandandi ári.
Ég ætla ekki að ræða hér nema um einn lið. Til okkar þingmanna Norðurl. e. kom fulltrúi frá Leikfélagi Akureyrar og tilkynnti okkur að ef ekki kæmu frekari greiðslur til þeirra í þessu frv., fjáraukalögum, en 2,2 millj., þá mundi starfsemi stöðvast um næstu áramót. Við afgreiðslu fjárlaga sl. vetur, núgildandi fjárlaga, kom ég með tillögu um að hækka framlag til Leikfélags Akureyrar um að mig minnir 7,5 millj. Hæstv. menntmrh. kom upp í ræðustól og sagði að það mundi verða með einhverju móti reynt að mæta þörfum leikfélagsins og það var gert að því marki að það hefur enn þá gengið. En þetta er fyrst og fremst uppgjör við hið opinbera sem það mundi að sjálfsögðu ekki fá ef leikfélagið hætti þannig að hér er ekki um að ræða í sjálfu sér aukin útgjöld heldur bara að ljúka þeirri skuld sem leikfélagið stendur í við hið opinbera og gera þessu leikhúsi kleift að starfa áfram.
Það kom líka fram að það þyrfti að hækka framlagið ögn frá því sem er á fjárlögum nú. Það hefur hækkað á undanförnum árum en þetta er bara reynslan af þessari starfsemi sem er þó, að við teljum, nauðsynleg víðar en hér í Reykjavík. Ég ætla ekki að fara á þessu stigi málsins að koma hér með samanburðartölur hvað er verið að gera þar í samanburði við ýmislegt hér á höfuðborgarsvæðinu. Ég ætla ekki að gera það núna en það kann að vera að ég geri það ef ég neyðist til þess, eða við --- það er ekki ég heldur eru það við þingmenn Norðurl. e. sem gáfu fyrirheit um það að reyna með einhverju móti að koma þessu inn í fjáraukalög, annaðhvort með tillöguflutningi eða við óskum náttúrlega eftir því að hæstv. fjmrh. verði við þeim óskum þannig að við þurfum ekki sjálfir að koma með tillögu heldur að hann komi með hana um þessa lagfæringu.
Ég ætla ekki, þó að það sé ástæða til þess að ræða ýmislegt, að taka lengri tíma. En það er stórt mál í okkar augum og augum fólks fyrir norðan að hægt sé að tryggja starfsemi Leikfélags Akureyrar.