Kristinn Pétursson :
Hæstv. forseti. Ég lýsi yfir ánægju minni með þetta frv. Þó að ég sé ekki í sátt við hvernig það er upp sett þá er það samt áfangi í því að Alþingi taki fastari tökum meðferð fjármuna og rekstur ríkissjóðs. Mér finnst þetta frekar ógreinilegt plagg, ég verð að segja það, og ég vil spyrja hæstv. fjmrh. að því hvort það væri ekki eðlilegt að alþingismenn fái rekstraráætlun til 31. des. hjá ríkissjóði, nákvæma rekstraráætlun, sem fylgiskjal með þessu frv. til fjáraukalaga. Ég ítreka að slík rekstraráætlun er auðvitað nauðsynleg með fjáraukalagafrv. þannig að menn viti hvort hér er um fjáraukalagafrv. að ræða sem nær til áramóta, sem er auðvitað markmiðið með fjáraukalögum að vera ekki að leggja þau fram mörgum sinnum á ári.
Hæstv. fjmrh. hefur þegar lagt fram frv. til fjáraukalaga einu sinni á þessu ári og ég tel að það hafi verið óeðlilegt. Ég held að það sé eðlilegt, og minn skilningur á fjármálaákvæðum stjórnarskrárinnar er sá, að það eigi að leggja fram ein fjárlög og ein fjáraukalög en ekki mörg af hvoru tagi. Vegna þess að fjáraukalög eru einungis til þess að stemma af fjárlögin einu sinni og eiga þá að ná til 31. des.
Ég tel ekki nauðsynlegt að kalla þing saman neitt fyrr. Það er einfaldlega nauðsynlegt að leggja fjáraukalögin fram um leið og þing kemur saman og afgreiða þau á ekki minna en hálfum mánuði þannig að hér sé um vitræn vinnubrögð að ræða.
Ég tek undir það sem hv. þm. Pálmi Jónsson sagði varðandi Verðjöfnunarsjóðinn. Ég minni hæstv. fjmrh. á það að það voru samþykkt lög hér á Alþingi 5. maí sl. um að ríkissjóður skyldi taka við öllum skuldbindingum Verðjöfnunarsjóðs fiskiðnaðarins. Það er alveg útilokað annað en það verði að taka þetta á gjaldfærslu í ríkissjóði og fyrir því verði Alþingi að gefa heimild.
Ég ætla að rifja hér upp lög um ríkisbókhald, gerð ríkisreiknings og fjárlaga. Þessi lög eru frá 1966. Með leyfi forseta hljóðar 4. gr. þessara laga svo:
,,Færslur hvers reikningsárs skal miða við raunveruleg skipti ríkisins við aðra aðila, athafnir þess og framkvæmdir, án tillits til þess, hvort greiðsla hefur farið fram í reiðufé. Öll skuldaskipti, sem koma fram við lokun ríkisreiknings, hvort sem eru útistandandi kröfur ríkissjóðs eða skuldir, skulu færð á viðskiptamannareikninga eða aðra reikninga, er gefi tegund kröfuréttindanna til kynna. Reikningarnir skulu sýna stöðu sjóðs og bankareikninga um áramót að afloknum lokunarfærslum, svo sem færslu áfallinna vaxta.``
Hér er bæði um að ræða yfirtöku láns og áfallinna vaxta og hvort tveggja vantar í þetta ágæta fjáraukalagafrv. Enn fremur vil ég minna á 30. gr. þessara sömu laga, en þar stendur skýrum stöfum:
,,Gjöld skulu færð á því ári, er afhending verðmæta fer fram og hvers konar vinna eða þjónusta er innt af hendi, er hefur í för með sér fjárhagslega skuldbindingu fyrir ríkið eða greiðslu úr ríkissjóði.``
Þessi texti er alveg skýr, hæstv. fjmrh. Gjöld um þennan verðjöfnunarsjóð átti að færa árið 1988 að
hluta til, eins og ég sagði þá þegar og hef verið að minna fjmrh. æ síðan á þetta mál. Ég hef komið hér með fyrirspurn og fjmrh. hefur alltaf snúið sig út úr þessu máli, eins og hann er þekktur fyrir að geta snúið sig út úr hlutunum.
Ég má til með að minna á það að það var líka um fleiri atriði að ræða 1988, þ.e. stofnun Hlutafjársjóðs og Atvinnutryggingarsjóðs. Ég tel að það sé ekkert annað að gera fyrir alþingismenn í dag, og ég mun reyna að beita mér fyrir því, en að við sem viljum hafa þetta í lagi krefjumst þess að Ríkisendurskoðun fái löggilta endurskoðendur til að meta höfuðstól þessara sjóða svo að það sé hægt að
gjaldfæra það sem er tapað fé, þannig að þjóðin geti fengið að sjá hvað þessir hæstv. herramenn hafa verið að gera. Það er auðvitað fyrir neðan allar hellur að einhver ríkisstjórn, t.d. 1991 eða 1992, eigi að draga fram reikning fyrir því sem þessir herrar voru að gera 1988. Það er hvorki í samræmi við lögin um ríkisbókhaldið eða fjárlög og fjáraukalög. Alþingi hefur ekki gefið heimild til þess að þessir peningar væru gefnir. Þetta væri raunverulega það sama og hæstv. fjmrh. mundi fara hér út í búð og fá ísskáp, fara með hann heim og segja: Ég ætla að borga hann seinna --- og gæfi síðan út lög um það að hann ætlaði að borga ísskápinn 1992. Svona sukk í ríkisbókhaldi gengur einfaldlega ekki upp.
Það er ekki hlutverk hæstv. fjmrh. að vera einhvers konar yfirjólasveinn yfir fjármálum á Íslandi, þar sem hann er svona yfir því að gefa í skóinn fyrir jólin. Það er hlutverk hæstv. fjmrh. að virða lög um ríkisbókhald og lög um gerð ríkisreiknings og fjármála. Það er frumskylda hæstv. fjmrh. að fara að lögum um ríkisbókhald, gerð ríkisreiknings og fjárlaga, ásamt því að virða fjármálaákvæði stjórnarskrárinnar til fullnustu. Það er hans hlutverk. Sé það ekki gert þá verða auðvitað þegnarnir og fyrirtækin í landinu fórnarlömb, eins og þau hafa orðið, sérstaklega á landsbyggðinni.
Ég vil enn þá einu sinni minna á það að fjármálaákvæði stjórnarskrárinnar eru jafngild mannréttindaákvæðum og það hefur aldrei orðið hefð að virða þau ekki til fullnustu og kemur aldrei til með að verða. Ég held meira að segja að það sé margt sem bendir til þess að bókhald ríkissjóðs sé ekki bara vitlaust þarna um einhverja milljarða í Verðjöfnunarsjóði og Atvinnutryggingarsjóði og Hlutafjársjóði, heldur sé um að ræða miklu meiri skekkjur, og t.d. skuldbindingar Lífeyrissjóðs opinberra starfsmanna tug milljarða hærri en bókhaldið segir til um.
Og hvers vegna skyldi ég vera að minna hæstv. fjmrh. á þetta? Það er vegna þess að ætli tiltekin áhöfn að sigla skipi til hafnar, eins og hæstv. ríkisstjórn segist alltaf vera að gera, þá verður að byrja á því að viðurkenna hvar skipið er statt. Að öðrum kosti geta þeir ekki reiknað sig til hafnar. Ég verð því að ítreka þá kröfu mína á hendur hæstv. fjmrh. að þjóðinni verði sýndur reikningurinn fyrir athafnir þessara háu herra, það sem þeir voru að gefa hér í upphafi síns ferils 1988, og held ég því þó ekki fram að ekki
hafi verið nauðsynlegt að gera eitt og annað fyrir atvinnulífið. En fjármálaákvæði stjórnarskrárinnar verða að standast. Þjóðin á að fá að sjá hvað þessir hæstv. herramenn voru að gera 1988. (Gripið fram í.) Ég vil láta fara fram úttekt á þessum sjóðum sem hv. þm. var að minna á. Það er óþolandi með öllu og ófært að ríkisstjórn geti falið reikninginn fyrir sínum ráðstöfunum einhvers staðar ofan í skúffum í fjmrn. Það er auðvitað fyrir neðan allar hellur og það er hlutverk alþingismanna að sjá til þess að þjóðin fái að sjá hvað er í skúffunum, hvað þeir hafa verið að gera.
Svo koma þessir ágætu herramenn og baða sig í fjölmiðlaljósinu og lýsa því yfir að núna sé svo voðalega gott ástand í sjávarútvegi t.d. Auðvitað er þetta allt saman þessum hæstv. herramönnum að þakka, Steingrími og Ólafi Ragnari, að sjávarafurðaverð hafi hækkað um 30% á árinu. Hver skyldi draga það í efa að þessir töframenn hefðu getað hækkað markaðsverð á sjávarafurðum um 30%? Það dregur enginn í efa, hæstv. fjmrh. Og kjarasamningarnir sem gerðir voru í vor, um þjóðarsátt. Auðvitað er þetta allt saman þessum hæstv. herramönnum að þakka. En hér í umræðum um fjáraukalög verð ég að ítreka það að það gengur ekki að ríkisbókhaldið sé falsað og raunveruleikinn falinn í skúffum fjmrn. Ég geri kröfu til þess að þessir sjóðir verði metnir og mun sjá til þess að það verði gert þannig að þjóðin fái að sjá hvað þessir hæstv. herramenn hafa verið að aðhafast.