Samskiptamiðstöð heyrnarlausra
Miðvikudaginn 31. október 1990


     Menntamálaráðherra (Svavar Gestsson) :
    Virðulegi forseti. Ég tala hér fyrir frv. til laga um samskiptamiðstöð heyrnarlausra og heyrnarskertra. Frv. þetta hefur verið í undirbúningi um nokkurt skeið og hefur verið fjallað um það ítarlega við þá aðila sem þetta mál snertir sérstaklega. Frv. er 99. mál þessa þings og birtist á þskj. 102.
    Talsverð umræða hefur verið á undanförnum árum um táknmál heyrnarlausra og notkun þess. Má segja að tvær stefnur hafi verið uppi, önnur sú að heyrnarlausir eigi eingöngu að nota talmál og varaaflestur og hin um notkun táknmáls heyrnarlausra. Hefur þróunin mjög verið í þá átt að táknmálið hefur styrkst og notkun þess. Þetta er þróun sem hefur átt sér stað í heiminum víða og æ fleiri þjóðir hafa gert heyrnarlausum kleift að nota það mál sem mörgum þeirra er eðlilegast, þ.e. táknmál heyrnarlausra. Þessi þróun hefur einnig verið í gangi hér á landi um nokkurt árabil og umræður hafa verið talsverðar.
    Vorið 1989 fól menntmrh. nefnd þriggja embættismanna úr félmrn., heilbr. - og trmrn. og menntmrn. að semja drög að reglugerð um starfsemi samskiptamiðstöðvar heyrnarlausra og heyrnarskertra. Þá var ætlunin að reglugerðin yrði sett á grundvelli laga um málefni fatlaðra. Nefndin skilaði drögum að reglugerð í september 1989. Þar var gert ráð fyrir því að stöðin heyrði undir félmrn. og ætti stoð í lögum nr. 43/1983, um málefni fatlaðra. 20. nóv. 1989 voru drögin send til umsagnar fjölmargra aðila, þ.e. Félags heyrnarlausra, Öryrkjabandalags Íslands, Heyrnarhjálpar, Foreldra - og styrktarfélags heyrnardaufra, Háskóla Íslands, Kennaraháskóla Íslands, Þroskaþjálfaskóla Íslands, Heyrnleysingjaskólans, Námsgagnastofnunar, Greiningar - og ráðgjafarstöðvar ríkisins, Heyrnar - og talmeinastöðvar Íslands og auk þess svæðisstjórnanna um málefni fatlaðra í öllum umdæmum, Reykjavík, Reykjanesi, Vesturlandi, Vestfjörðum, Norðurlandi vestra, Norðurlandi eystra, Austurlandi og Suðurlandi og loks til stjórnarnefndar um málefni fatlaðra í félmrn.
    Hinn 7. des. 1989 voru reglugerðardrögin tilbúin eftir að farið hafði verið yfir athugasemdir þær sem borist höfðu. En eftir áramótin síðustu tóku að berast óskir frá þeim sem einkum munu nota samskiptamiðstöðina um að hún mundi heyra undir menntmrn. því að þarna væri um að ræða menntun, skóla og rannsóknir. Um nokkurt skeið leituðum við leiða til þess að leysa þetta vandamál. M.a. var kannað hvort hugsanlegt væri að stöðin heyrði undir menntmrn. þó að hún ætti stoð í lögunum um málefni fatlaðra. En þegar upp var staðið og leið á þetta ár kom í ljós að það var erfitt, ef ekki óframkvæmanlegt. Þá leitaði ég enn leiða til að koma þessari stofnun á laggirnar án þess að setja um hana sérstök lög, þ.e. að hún yrði í raun og veru starfrækt á grundvelli reglugerðar. Þá hafði ég í huga reglugerð á grundvelli laganna um Heyrnleysingjaskólann. Það tókst ekki að finna þessu stoð í lögunum um Heyrnleysingjaskólann og þess vegna ákvað ríkisstjórnin að leita til Alþingis með því stjfrv. sem

hér liggur fyrir.
    Fjallað hefur verið um það að undanförnu hvar þessi starfsemi gæti orðið til húsa, ef af yrði. Gert er ráð fyrir því að til bráðabirgða, ef Alþingi fellst á þetta frv., geti hún fengið aðsetur í húsnæði Heyrnleysingjaskólans. Ríkisstjórnin féllst á þessi mál efnislega í fjárlagafrv. fyrir árið 1991 en þar er gert ráð fyrir því að veita 5,3 millj. kr. til Samskiptamiðstöðvar heyrnarlausra og heyrnarskertra. Þar er um að ræða annars vegar nokkra lækkun á kostnaði við Heyrnleysingjaskólann sjálfan upp á 3 millj. og hins vegar 2,3 millj. sem er viðbótarframlag til þessa verkefnis af hálfu ríkisins frá því sem verið hefði að óbreyttu.
    Í frv. er farið yfir þessi mál eins og við er að búast grein fyrir grein. Það er fyrst lögð á það áhersla að markmið frv., ef að lögum verður, sé að stuðla að jafnrétti heyrnarlausra til þjónustu sem víðast í þjóðfélaginu á grundvelli táknmáls heyrnarlausra.
Helstu hlutverk þessarar stofnunar eru í raun og veru fjögur:
    1. Að framkvæma rannsóknir á íslensku táknmáli, en þær hafa verið litlar.
    2. Að stuðla að kennslu táknmáls.
    3. Að annast og vera miðstöð fyrir táknmálstúlkun hér á landi.
    4. Að sinna ýmiss konar annarri þjónustu við heyrnarlausa og heyrnarskerta.
    Gert er ráð fyrir því í 2. gr. að um skipan þjónustunnar í einstökum atriðum verði fjallað í reglugerð og lögð á það áhersla að stofnunin hafi samstarf við ýmsa aðila sem þegar eru starfandi hér á landi, þ.e. svæðisstjórnirnar um málefni fatlaðra, Ráðgjafar - og greiningarstöð ríkisins, Heyrnleysingjaskólann, Heyrnar - og talmeinastöð Íslands, Námsgagnastofnun og aðra opinbera aðila varðandi þau málefni sem snerta starfsemi þeirra. Sömuleiðis á stofnunin að hafa samstarf við félög áhugamanna, eins og það er orðað í frv.
    Í 3. gr er gert ráð fyrir því að stofnuninni sé skipuð fimm manna stjórn til fjögurra ára í senn. Í stjórninni verði í fyrsta lagi einn fulltrúi tilnefndur af Félagi heyrnarlausra, í öðru lagi einn fulltrúi tilnefndur af Foreldra - og styrktarfélagi heyrnardaufra, í þriðja lagi einn fulltrúi tilnefndur af félmrh., í fjórða lagi einn fulltrúi tilnefndur af heilbrrh. og í fimmta lagi einn fulltrúi tilnefndur af menntmrh. sem skal vera formaður stjórnarinnar. Varamenn verði skipaðir á sama hátt.
    Í 4. gr. er gert ráð fyrir því að forstöðumaður stofnunarinnar verði skipaður til fimm ára í senn að fengnum tillögum stjórnar stofnunarinnar. Forstöðumaður eigi sæti á fundum stjórnar með málfrelsi og tillögurétti og sjái um framkvæmd á ákvörðunum hennar en annist jafnframt daglegan rekstur miðstöðvarinnar.
    Í frv. er gert ráð fyrir því að samskiptamiðstöðin geri fjárhags - og framkvæmdaáætlun til allt að fimm ára í senn og að stjórn miðstöðvarinnar staðfesti áætlanir og fylgist með framkvæmd þeirra. Gert er ráð fyrir því að menntmrh. geti, að fengnum tillögum stjórnar stofnunarinnar, sett gjaldskrá fyrir einhvern

hluta af þeirri þjónustu sem stofnunin veitir. Það yrði vafalaust mjög lítill hluti af starfsemi stofnunarinnar sem þyrfti á slíkri skrá að halda. Væntanlega yrði helst um það að ræða ef stofnanir eins og t.d. Alþingi óskuðu eftir því að njóta þjónustu stofnunarinnar við að túlka umræður á Alþingi fyrir heyrnarlausa eða heyrnarskerta með táknmáli, þá væri eðlilegt að ætlast til þess að þessi stofnun, Alþingi, greiddi fyrir það.
    Í prentun frv. hefur því miður fallið niður fyrir mistök grein sem átti að vera 7. gr. og orðast svo:
    ``Lög þessi öðlast þegar gildi`` eða: ,,Lög þessi öðlast gildi 1. jan. 1991`` sem í sjálfu sér fer eftir því hvenær málið yrði afgreitt hér á Alþingi.
    Eins og sakir standa eru hér á Íslandi um 300 Íslendingar heyrnarlausir og táknmál er það mál sem þeim lætur best að nota. Táknmálið er sjálfstætt mál með eigin formgerð og lýtur eigin reglum. Enn þá er ekki boðið upp á formlega kennslu í táknmáli. Námsefni hefur ekki verið til, kennara hefur vantað, nauðsynlegar rannsóknir á íslensku táknmáli skortir og það er skortur á táknmálstúlkum. Það er gert ráð fyrir því að þessi samskiptamiðstöð geti bætt möguleika heyrnarlausra og heyrnarskertra til samskipta við heyrandi. Það er tilgangurinn með því að setja þessa miðstöð á laggirnar. Hún á að annast táknmálsrannsóknir, m.a. í samvinnu við málvísindamenn. Rannsóknir á táknmálinu eru auðvitað grunnforsenda þess að hægt verði að kenna táknmál og undirbúa og annast menntun táknmálstúlka í samvinnu við háskólastofnun, sem væri þá væntanlega Kennaraháskóli Íslands aðallega.
    Það er gert ráð fyrir því að miðstöðin geti haldið fræðslunámskeið um heyrnarlausa og heyrnarleysi, að hún gefi út og semji ritlinga og gefi út myndbönd sem geti auðveldað samskipti heyrnarlausra og heyrandi og að stofnunin annist túlkaþjónustu. Það er auðvitað mjög mikilvægt að gott samstarf sé við þá aðila sem þjóna heyrnarlausum og við félagasamtök heyrnarlausra og heyrnarskertra. Það er sérstaklega undirstrikað í lagagreininni sem ég vitnaði til áðan.
    Málefni heyrnarlausra heyra eins og sakir standa undir þrjú ráðuneyti. Þess vegna tel ég að það sé eðlilegt að stjórnarmenn séu tilnefndir af öllum þessum ráðuneytum, auk þeirra hagsmunaaðila sem hér eiga hlut að máli.
    Eins og ég sagði áðan hefur verið fjallað ítarlega um þetta mál. Fyrir liggur nákvæm kostnaðaráætlun við stofnun samskiptamiðstöðvarinnar. Talið er að rekstur stofnunar þessarar muni kosta um 5,4 millj. kr. á fyrsta ári að meðtöldum kostnaði við tæki og búnað eða stofnkostnaði sem talið er að verði 1,6 millj. kr. Raunverulegur rekstrarkostnaður yrði sem sagt 3,7 millj. kr.
    Fyrir liggja margvíslegar skýrslur um þetta mál, m.a. skýrsla um samskiptamiðstöð heyrnarlausra frá sérstökum starfshópi sem í áttu sæti Valgerður Stefánsdóttir, Berglind Stefánsdóttir og Jóhann V. Ólafsson. Þau gengu frá þessari skýrslu 22. júlí 1990. Þar kemur fram með mjög skilmerkilegum hætti hver vandi er hér á ferðum að því er varðar stöðu heyrnarlausra í okkar samfélagi og hvernig skynsamlegast er að taka á þeim vanda. Mun ég koma þeirri skýrslu í hendur nefndarinnar sem um málið fjallar.
    Ég hef haldið á undanförnum mánuðum marga fundi með fulltrúum aðila og niðurstaðan hefur sem sagt orðið þessi að flutt var frv. um samskiptamiðstöðina til þess að bæta úr þeim vanda sem augljóslega blasir við. Ég hef ástæðu til að ætla það að um þetta mál geti orðið allgóð samstaða hér á hinu háa Alþingi og leyfi mér að láta þá von í ljós að frv. geti orðið að lögum fyrir áramótin. Hér er um að ræða í raun og veru einfalt mál og skýrt sem ekki ætti að þurfa að liggja lengi yfir. Það má segja að með flutningi þessa frv. um Samskiptamiðstöð heyrnarlausra sé í raun og veru stigið fyrsta skrefið í þá átt að viðurkenna táknmálið sem tjáningarmál hér á landi við hliðina á íslensku, móðurmálinu. Það er auðvitað mjög mikilvægt skref, jafnréttisskref í þágu heyrnarlausra hér á landi. Við leggjum mjög mikla áherslu á að það skref verði stigið og að Alþingi taki vel þessu frv. um Samskiptamiðstöð heyrnarlausra og heyrnarskertra sem ég mæli hér fyrir.
    Ég legg svo til, virðulegi forseti, að frv. verði að lokinni þessari umræðu vísað til 2. umr. og hv. menntmn.