Byggðastofnun
Miðvikudaginn 31. október 1990


     Flm. (Málmfríður Sigurðardóttir) :
    Virðulegi forseti. Á síðustu áratugum hefur staða kvenna í þjóðfélaginu tekið stórfelldum stakkaskiptum, einkum þar með tilliti til atvinnu. Heimilið er ekki lengur aðalstarfsvettvangur þorra kvenna. Þá staðreynd verður að viðurkenna, hvaða augum sem hún annars er litin. Konur hafa hópast út á atvinnumarkaðinn bæði til sjávar og sveita og það er ekki rétt að segja að það sé alfarið að þeirra eigin ósk. Oft hafa þjóðfélagslegar aðstæður knúið þær til þess, svo sem það hve dýrt er að koma upp húsnæði, kröfur um aukna menntun almennings, sem kostar fé, og kröfur atvinnumarkaðsins til vinnuframlags þeirra svo og löngun þeirra til að nýta sína eigin menntun.
    Nú er staðan nokkuð að breytast. Samdráttur í landbúnaði veldur fólksfækkun í sveitum landsins. Nýbúgreinarnar hafa barist í bökkum og eru jafnvel aflagðar að mestu. Sú staða bitnar á heimilum og þá jafnt á konum sem körlum þar sem þær eru líka í fyrirvinnuhlutverkinu. Atvinnuleysi er nú meira í þorpum og á þéttbýlisstöðum en áður hafa sést tölur um og ekki er fyrirsjáanlegt að úr því rætist á næstunni. Á mörgum sveitaheimilum, einkum þar sem ekki eru ung börn, hefur konan, þó hún sé ein um heimilisforsjá, oft tíma aflögu sem hún kysi að nota fyrir sjálfa sig til að læra eitthvað, til að endurhæfa sig eða beinlínis til vinnu heima eða utan heimilis í þeim beina tilgangi að drýgja tekjurnar. Þetta síðasttalda er oftar en ekki af brýnni nauðsyn þó svo efnahagslegar aðstæður bændakvenna séu afar mismunandi.
    En hvað er í boði fyrir sveitakonu að mæta þessum þörfum? Innan flestra landbúnaðarbyggðarlaga hafa myndast þéttbýliskjarnar og sums staðar eru sjávarpláss í nánd. Þéttbýlisstaðir til sveita eru oft í kringum ylrækt eða gróðurhús, þar sem konur leggja fram drjúga vinnu, eða þá umhverfis skóla, hótel, elliheimili eða þjónustu af einhverju tagi. Sveitakonur sem þurfa að drýgja tekjur heimilisins leita í störf á þessa staði sem kennarar, sem leiðbeinendur eða starfsstúlkur og í mörgum sveitum eru þetta einu atvinnutækifæri kvenna utan heimilis. En þau hafa flest þá ókosti að vera árstíðabundin, óviss og illa launuð. Konur á sveitabæjum í námunda við sjávarpláss leita einnig nokkuð í vinnu þangað, í sumum tilvikum við svipuð störf og ég hef nú nefnt, en auk þess í nokkrum mæli til fiskvinnu. Í þeirri grein er yfirleitt litið á þær sem varavinnukraft og dragi úr atvinnu þá eru það þær sem fyrst er sagt upp.
    Það sem ég hef nú sagt undirstrikar mikilvægi þess máls sem hér er til umræðu, en það eru varanlegar úrbætur til að treysta atvinnuöryggi kvenna á landsbyggðinni því konur vantar vinnu.
    Atvinnulíf landsmanna utan höfuðborgarsvæðisins er víðast hvar einhæft. Sums staðar stendur byggðarlagið og fellur með einni atvinnugrein eða jafnvel einu fyrirtæki. Þessi fábreytni í atvinnulífinu hefur orðið enn afdrifaríkari með breyttum þjóðfélagsháttum, ekki síst með aukinni þátttöku kvenna í störfum utan heimilis. Það er löngu tímabært að taka mið af þeirri staðreynd.
    Stjórnvöld á Norðurlöndum hafa fyrir löngu áttað sig á vanda landsbyggðarinnar og svara því kalli. Þar eru viðamiklar aðgerðir í fullum gangi til þess að mæta atvinnuþörf dreifbýlisins og hvorki sparað fé né fyrirhöfn. Þar er ekki spurt hvort eigi að halda landsvæðum í byggð heldur hvernig. Niðurstaða þeirra rannsókna sem gerðar hafa verið á þeim málum er sú að öllu skipti að konur fáist til að búa þar og til þess þurfi þær að hafa atvinnu. Vilji konur ekki búa í byggðinni, og það gera þær ekki hafi þær ekki atvinnu við sitt hæfi að hverfa að, þá er byggðin fallin.
    Rannsóknir sýna að ungar stúlkur taka þá ákvörðun nokkuð snemma hvort þær vilja vera kyrrar eða fara, jafnvel um fjórtán til fimmtán ára aldur. Þess vegna er nauðsynlegt að atvinnulíf sé ekki einhæft, það sé eitthvert val og þær sjái einhverja þá atvinnumöguleika sem höfða til þeirra þá þegar. Rannsóknir sýna einnig að þær hugmyndir gefast best til framkvæmda sem koma frá fólkinu sjálfu. Tilbúnar lausnir að sunnan gefast sjaldan vel. Þess vegna verður að vera til einhver aðili sem svarar frumkvæði og staður þar sem hægt er að leita til með ráðgjöf og fjármagn.
    Það er einmitt þetta sem það frv. sem hér er til umræðu miðar að. Einnig þarf að vera fyrir hendi vilji til að taka áhættu með aðilanum og það er líka til umræðu hér. Þetta á ekki síst við um konur, sem eru gætnar að eðlisfari, varfærnari í fjárfestingum og hika við að leggja heimili sín og hagsmuni fjölskyldunnar að veði. Þessi gætni þeirra í fjárfestingum hefur aftur á móti sýnt sig að vera hagur fyrir þann sem lánar. Reynslan sýnir einmitt að konur eru skilvísar og orðheldnar og standa við sitt og leggja ekki út í áhættusöm ævintýr. Konum er það metnaðarmál að standa við gefin heit og skuldbindingar, það er reynsla þeirra sem farið hafa með sérsjóði til atvinnuuppbyggingar kvenna. Hvergi er skilvísi meiri. Kannanir frá Bandaríkjunum sýna þetta mjög glögglega.
    Til þess að koma á fót traustu og fjölbreyttu atvinnulífi á landsbyggðinni verður að huga að nýsköpun. Álit margra iðnráðgjafa er að tregða manna til að leita inn á nýjar brautir utan hefðbundinnar atvinnustarfsemi sé hemill á nýsköpun í atvinnulífinu. Þetta ætti ekki að standa konum í vegi eins og körlum því hvar sem þær koma að atvinnuuppbyggingu eru þær í rauninni nýjar. Þær hafa ekki átt greiðan aðgang að uppbyggingu fyrirtækja hingað til. Reynsluheimur kvenna hefur ekki mótað atvinnuuppbyggingu fram til þessa og nauðsyn er að þær fái aðgang til að koma sínum hugmyndum á framfæri til að auka fjölbreytni atvinnulífsins.
    Árið 1986 var atvinnuþátttaka kvenna hér á landi 90,1%. Þátttaka giftra kvenna í atvinnu utan heimilis hafði aukist úr 20% árið 1960 í 84% árið 1986. Nú fer atvinnuleysi hins vegar vaxandi og kemur harðar niður á konum en körlum. Skráð atvinnuleysi er meira meðal kvenna en karla. Þar að auki er vitað mál að dulið eða óskráð atvinnuleysi er meira meðal kvenna en karla, einkum í dreifbýli. Það er vert að benda á

að 40% lögbýla í landinu bera aðeins eitt ársverk eða minna. Allt ber því að sama brunni, það vantar ný störf fyrir konur.
    Ætla mætti að einhverjir ráðamenn hafi komið auga á fyrrnefndar staðreyndir, samanber eftirfarandi setningu í málefnasamningi núverandi ríkisstjórnar: ,,Sérstakt átak verður gert til að auka fjölbreytni í atvinnu kvenna á landsbyggðinni.`` Vissulega bólar nú á efndum í því máli því að fé hefur verið sett á fjárlög til að mæta þessari atvinnuþörf í einhverjum mæli. Þótt þar sé ekki um háar upphæðir að ræða er það þó viðleitni.
    Vegna þess að konum finnst seint ganga höfum við þingkonur Kvennalistans lagt hér fram á þskj. 30 frv. til laga um breytingu á lögum nr. 64/1985, um Byggðastofnun, sem hljóðar svo:
    ,,1. gr. Við II. kafla laganna bætist ný grein, er verði 13. gr. og orðist þannig:
    Við Byggðastofnun starfar deild sem hefur það hlutverk að vinna að uppbyggingu atvinnu fyrir konur. Til starfsemi deildarinnar skulu renna a.m.k. 20% af árlegum framlögum ríkisins til Byggðastofnunar og skal þeim varið til reksturs deildarinnar, ráðgjafar, lána, styrkja og annarrar fyrirgreiðslu vegna atvinnustarfsemi kvenna.
    Nánari ákvæði um starfsemi deildarinnar setur ráðherra með reglugerð.
    2. gr. Lög þessi öðlast gildi 1. jan. 1991.``
    Í 3. gr. laga um Byggðastofnun segir svo, með leyfi hæstv. forseta: ,,Byggðastofnun fylgist með þróun byggðar í landinu. Stofnunin getur gert eða látið gera áætlanir um þróun byggða og atvinnulífs í þeim tilgangi að treysta búsetu og atvinnu í byggðum landsins.
    Í samræmi við hlutverk stofnunarinnar veitir hún lán eða annan fjárhagslegan stuðning í því skyni m.a. að bæta aðstöðu til búsetu í einstökum byggðarlögum, koma í veg fyrir að óæskileg byggðaröskun eigi sér stað eða lífvænlegar byggðir fara í eyði.``
    Þetta verkefni sem við erum hér með er því hreint byggðaverkefni og algerlega í samræmi við markmið Byggðastofnunar. Stofnun sérstakrar deildar við Byggðastofnun, sem eingöngu fjalli um málefni kvenna, er ein leiðin til að fást við þann vanda sem leiðir af núverandi fábreytni og skorti á störfum fyrir konur. Það er eðlilegt að konur hafi frumkvæði í þessum efnum en hvatning, ráðgjöf og bætt skilyrði eru nauðsynleg. Konur skortir sjálfstraust á þessum vettvangi. Þær hafa lítið sótt í atvinnuþróunarsjóði og eignarleysi kvenna hindrar þær í að stofna til skulda.
    Fyrsta verkefni kvennadeildar Byggðastofnunar yrði að efla frumkvæði hjá konum, t.d. með fræðslufundum, hugmyndasamkeppni, almennri fræðsluráðgjöf og handleiðslu á námskeiðum fyrir konur sem vilja stofna fyrirtæki. Þannig má minnka það forskot sem karlar hafa í þessum efnum. Tryggja þarf skilning á sérstöðu kvenna. Þess vegna er nauðsynlegt að við deildina starfi konur sem hafa reynslu af kvennaráðgjöf og jafnréttismálum.
    Fræðsla fyrir konur þarf að miðast við reynslu

þeirra og þá staðreynd að konum henta betur vinnu- og kennsluaðferðir sem byggjast á hópvinnu og óformlegum samskiptum og efla frumkvæði og áræði. Það er ekki nóg að breyta orðinu ,,hann`` í ,,hún``. Á óþekktu sviði eiga konur sérstaklega erfitt með að meta hvað þær geta og hvað ekki og hverjar eru þeirra veiku og sterku hliðar.
    Kvennadeild Byggðastofnunar yrði hreint byggðaverkefni. Þess vegna teljum við flutningskonur mikilvægt að hún hafi aðsetur utan höfuðborgarsvæðisins og við bendum á Akureyri sem kjörinn stað í því skyni. Rökin fyrir því eru þau að þar hefur á undanförnum árum verið unnið að samnorræna verkefninu ,,Bryt`` eða ,,Brjótum múrana`` sem er þróunarverkefni á sviði jafnréttismála. Þá er á Akureyri útibú frá Byggðastofnun og á sama stað er svo aðsetur Iðnþróunarfélags Eyjafjarðar sem unnið hefur markvisst að atvinnuþróun á Eyjafjarðarsvæðinu.
    Flutningskonur leggja því til að sett verði ákvæði í reglugerð um að kvennadeildin starfi við útibú Byggðastofnunar á Akureyri. Enn fremur verði í reglugerð ákvæði um að við deildina starfi konur með reynslu í jafnréttisstarfi og kvennaráðgjöf sem hafi með höndum rekstur deildarinnar, meti umsóknir um aðstoð, veiti ráðgjöf og handleiðslu og annist námskeið fyrir konur. Einnig komi fram í reglugerð ákveðin stefna þar sem t.d. þær hugmyndir fái forgang sem stuðla að nýjungum í atvinnurekstri byggðarlagsins eða byggjast á hráefni eða annarri auðlind byggðarlagsins. Einnig væri hugsanlegt að veita þeim konum forgang sem fara út í óhefðbundinn atvinnurekstur, annaðhvort óhefðbundinn fyrir byggðarlagið eða óhefðbundinn fyrir konur.
    Átak til eflingar atvinnu fyrir konur í dreifbýli getur vissulega fallið undir almenna starfsemi Byggðastofnunar. Reynslan hefur þó sýnt að hætt er við að önnur verkefni fái sjálfkrafa forgang. Þess vegna þarf að marka kvennadeild sérstakan sess með lögum, deild sem vegna sérstöðu sinnar ætti auðveldara með að tileinka sér og tryggja ný vinnubrögð sem eru aðgengileg fyrir konur.
    Á ráðstefnu um atvinnumál kvenna í dreifbýli komu fram athyglisverðar niðurstöður ýmsar. En athyglisverðast þótti mér að heyra og sjá hugmyndaauðgi kvennanna um möguleika á margvíslegri atvinnustarfsemi fyrir konur. Og langsamlega athyglisverðast hvernig þær hugsuðu sér uppbyggingu þess. Hugmyndir þeirra byggjast yfirleitt allar á samvinnu kvenna. Atvinnureksturinn tæki mið af börnum og heimili og því að störfum skuli hagað þannig að konur séu ekki knúnar til að varpa frá sér ábyrgð á fjölskyldulífi.
    Við getum litið á það aftur á móti hvernig karlar byggja gjarnan upp atvinnufyrirtæki. Þar eru konur, börn og þarfir þeirra ekki inni í myndinni þó að gengið sé út frá því að vinnuframlag kvenna sé nýtt. Þó er ávallt vísað til karlanna sem hinna ábyrgu aðila. Konur miða við að byrja smátt, en efla reksturinn hægt og örugglega. Karlar vilja byrja stórt, verða ríkir strax og sorglegar afleiðingar þess hugsunarháttar blasa allt of

víða við.
    Landsbyggðinni er nú bráður og stórkostlegur vandi á höndum um atvinnumál og atvinnuuppbyggingu sem ég fæ ekki séð að verði leystur nema með atbeina stjórnvalda í einhverjum mæli. En heimamenn verða sjálfir að eiga frumkvæði, hugmyndir og tillögur um hvað gera skuli. Þar verða konur að hafa frumkvæði að sínum hluta og hugmyndirnar skortir þær ekki. Það skiptir öllu máli um framtíð landsbyggðarinnar að tillit sé tekið til þess að þannig þarf að búa að konum að þær geti komið inn í atvinnulífið á eigin forsendum, að atvinnuuppbyggingin taki mið af því hvað hentar konum því án þátttöku kvenna verður ekki um neinar raunhæfar úrbætur að ræða í atvinnumálum dreifbýlisins. Og með tilvitnun til þeirra orða í stjórnarsáttmálanum, að sérstakt átak verði gert til að auka fjölbreytni í atvinnu kvenna á landsbyggðinni, skora ég nú á hæstv. ríkisstjórn að láta athafnir fylgja orðum og tryggja þessu frv. framgang.
    Í stjórnarsáttmálanum eru einnig fyrirheit um að taka fyllsta tillit til byggðamála við uppbyggingu atvinnulífsins og einnig um það að stuðlað verði að æskilegri byggðarþróun, sem hlýtur að þýða að vilji ráðamanna er að byggð haldist sem víðast um landið. Til þess að svo verði þarf nýja strauma og stefnur í atvinnulífinu og að því miðar þetta frv. Það skiptir meira máli um byggðafestu en margir gera sér ljóst að konur um landið allt, til sjávar og til sveita, eigi kost á atvinnu sem miðast við þarfir þeirra. Konur vantar að vinnu.
    Að loknu máli mínu, hæstv. forseti, vil ég vísa þessu frv. til fjh. - og viðskn.