Almannatryggingar
Fimmtudaginn 01. nóvember 1990


     Heilbrigðis - og tryggingamálaráðherra (Guðmundur Bjarnason) :
    Virðulegi forseti. Hv. þm. Málmfríður Sigurðardóttir hefur beint til mín fsp. sem hún hefur nú gert grein fyrir varðandi frv. til nýrra laga um almannatryggingar. Eins og þingheimur veit hefur nú um tíma starfað nefnd að endurskoðun á þessari viðamiklu og mikilvægu löggjöf, eða allt frá því í árslok 1987. Nefnd sú hefur nýlega lokið störfum og skilað nefndaráliti í formi lagafrv. til heilbrrh.
    Það er vissulega svo að hér er um að ræða stórt mál sem varðar alla þjóðina, varðar alla þegna þjóðfélagsins hversu til tekst um almannatryggingalöggjöf. Almannatryggingalöggjöfin er að stofni til frá 1971 og hefur á nánast hverju einasta þingi síðan tekið einhverjum breytingum, meiri eða minni. Þess vegna hlaut þetta endurskoðunarstarf að taka nokkuð langan tíma. En nú er því sem sagt lokið og með bréfi sem ég fékk nýlega sent frá nefndinni með hennar tillögum kemur fullbúið frv. fram. Vil ég leyfa mér að lesa þetta bréf sem stílað er til heilbrrh. og hljóðar svo:
    ,,Nefnd sú, sem þér skipuðuð 17. des. 1987 til þess að endurskoða lög um almannatryggingar, hefur nú lokið störfum. Nefndin skilar hér með af sér fullbúnu frv. til laga um almannatryggingar ásamt greinargerð með frv., kostnaðarútreikningi og samanburðarútgjöldum, samkvæmt frv. og gildandi lögum, ásamt skýringum á einstökum greinum frv. Ekki náðist fullkomið samkomulag í nefndinni. Þó stendur mikill meiri hluti nefndarinnar að frv. eins og það er hér lagt fyrir, þó með fáum undantekningum við einstaka þætti frv. Þær athugasemdir fylgja hér með.
    Minni hluti nefndarinnar, fulltrúar ASÍ og VSÍ, skilar séráliti og fylgir það einnig hér með. Guðmundur H. Garðarsson er sammála séráliti ASÍ og VSÍ og skrifar undir afgreiðslu málsins frá nefndinni á sambærilegum forsendum og fram kemur í því áliti.``
    Undir þetta skrifa Finnur Ingólfsson, sem var formaður nefndarinnar, Aðalheiður Bjarnfreðsdóttir, Árni Gunnarsson, Benedikt Davíðsson, Bolli Héðinsson, Guðmundur H. Garðarsson, Helgi Seljan, Hrafnhildur Stefánsdóttir, Kristján Guðjónsson og Sigurður Hermundarson. Þetta var það fólk sem starfaði í nefndinni eins og hún var fullskipuð síðari hluta þess tímabils sem hún vann.
    Nú er það svo, eins og fram kom hjá hv. fyrirspyrjanda, að þetta nefndarálit hefur verið kynnt. Í fyrsta lagi hefur það verið lagt fram í ríkisstjórn og síðan hefur það sem slíkt verið kynnt fjölmiðlum. Getur það varla talist óeðlilegt að svo viðamikið starf, eins og hér er um að ræða, sé kynnt í fjölmiðlum en ég undirstrika að hér er aðeins um að ræða nefndarálit, þó að það sé í formi lagafrv. Þetta nefndarálit hefur síðan verið sent til kynningar í þingflokkum ríkisstjórnarinnar og er þar núna til meðferðar. En ég mun að sjálfsögðu taka til athugunar þá athugasemd, sem kom fram í máli hv. fyrirspyrjanda, að það væri eðlilegt að slíkt mál fengi líka umfjöllun eða væri sent til kynningar í þingflokkum stjórnarandstöðunnar. Mun ég

taka það mál til skoðunar og finnst sjálfsagt að verða við því því að hér er um stórt og viðamikið mál að ræða.
    En ég vil undirstrika það á þessu stigi að hér er um að ræða nefndarálit. Þetta er ekki enn þá í því formi að það sé lagt fram sem fullbúið frv. af minni hálfu. Það gæti auðvitað tekið breytingum, ekki ólíklegt að það geri það að einhverju leyti í meðförum þingflokka ríkisstjórnarinnar. En það er líka rétt sem kom fram hjá hv. fyrirspyrjanda að þetta mál þarf ítarlega umfjöllun á Alþingi. Því þyrfti það fyrr en seinna að koma hér inn til umfjöllunar og ég vona að það líði ekki mjög langur tími þar til hægt verður að leggja málið fram. Mér er þó ljóst, og ekki síst fyrir þær sakir að um þetta var ekki fullkomið samkomulag í nefndinni sem vann þessa vinnu, að það tekur einhvern tíma í meðförum þingflokka stjórnarinnar.