Fyrirspyrjandi (Geir H. Haarde) :
Virðulegi forseti. Ég hef leyft mér að bera fram svofellda fsp. til hæstv. fjmrh.:
,,Hyggst fjmrh., eins og hann gaf í skyn í sjónvarpsviðtali 8. ágúst sl., bæta mönnum tjón sem þeir urðu fyrir vegna ákvæða í lögum nr. 79/1989 og lögum nr. 117/1989 þegar réttur til húsnæðisbóta og vaxtaafsláttar var felldur niður með afturvirkum hætti?``
Eins og menn rekur eflaust minni til, virðulegi forseti, voru hér gerðar breytingar á þessum lögum á síðasta ári. Það kom á daginn að í þeim lögum voru afturvirk ákvæði sem refsuðu fólki aftur í tímann, fólki sem hafði gert fjárhagslegar ráðstafanir vegna húsnæðisöflunar og gert ráð fyrir húsnæðisbótum, vaxtaafslætti eða vaxtabótum með öðrum hætti en síðar kom í ljós.
Á síðasta þingi flutti ég ásamt fleirum frv. um að hnekkja þessum afturvirku ákvæðum og leiðrétta þetta gagnvart þeim einstaklingum sem hlut áttu að máli. Það frv. fékk ekki hljómgrunn. Þegar álagning fór fram í byrjun ágúst sl. kom í ljós að hér var stór hópur fólks sem átti hlut að máli og hafði verið þessum rangindum beittur. Hér gat verið um að ræða verulegar upphæðir fyrir hvern og einn, fyrir þá einstaklinga sem höfðu í góðri trú gert fjárhagslegar skuldbindingar vegna íbúðaröflunar. Þegar þetta mál kom til umræðu í fjölmiðlum gaf fjmrh. í skyn að hann gæti hugsað sér að gera einhverjar leiðréttingar í þessu efni. Það færi að vísu eftir því hvað hópurinn væri stór, kom fram í viðtali í sjónvarpinu, og hvers eðlis kvartanirnar væru, hvort hér væri um að ræða venjulegt launafólk o.s.frv. Eða eins og ráðherra orðaði það, með leyfi forseta: ,,Fólk sem hefur með eðlilegum hætti rétt á því að þess mál séu skoðuð sérstaklega.``
Þarna kemur fram sú nýlunda að það sé allt í lagi að beita fólk afturvirkum ákvæðum skattalaga ef það hafi efni á því að verða fyrir slíku en aftur á móti komi til greina að leiðrétta afturvirknina gagnvart einhverjum einstökum aðilum sem ráðherra eru þóknanlegir.
Ég hef ekki orðið var við að það bóli neitt á þessum leiðréttingum og hef þess vegna borið fram þessa fsp. til þess að fá það fram hjá ráðherra hvað hann hafi hugsað sér að gera í þessu efni. Hafi hann hins vegar eitthvað lítið á prjónunum eða ekki hugsað sér að gera neitt býð ég honum upp á það hér á þessum fundi að styðja það frv. sem útbýtt var í morgun sem ég hef flutt og samið um að láta þessar leiðréttingar koma til framkvæmda með skynsamlegum hætti gagnvart öllum einstaklingum sem hlut áttu að máli.