Bætur vegna afturvirkni skattalaga
Fimmtudaginn 01. nóvember 1990


     Hreggviður Jónsson :
    Hæstv. forseti. Ég tel að það svar sem hæstv. fjmrh. veitti hér gefi jákvæða vísbendingu að hluta til. En ég vil jafnframt spyrja hann að því hvernig farið verði með þann hóp sem lenti á milli skips og bryggju í þessari lagagerð, þ.e. hópinn sem tilheyrði ekki fyrra kerfi og var búinn að gera sínar ráðstafanir um húsnæðiskaup eftir því kerfi þegar lög um vaxtabætur voru sett. Þ.e. hópurinn sem gerir sínar ráðstafanir á fyrri hluta árs 1989. Það er nauðsynlegt í þessari umræðu að fá úr því skorið hvað verður um þennan hóp sem nýtur ekki þeirra réttinda sem þeir höfðu áætlað sem þá gerðu sínar ráðstafanir í húsnæðismálum, þær standa ekki. Þess vegna er nauðsynlegt að fá úr því skorið hvort þessi hópur fái sams konar meðhöndlun og sá hópur sem tilheyrir lögunum sem giltu fyrir árið á undan.