Fjármálaráðherra (Ólafur Ragnar Grímsson) :
Virðulegur forseti. Ef það hefði verið ætlun hv. þm. Geirs H. Haarde að fá afstöðu mína hér til þess frv., sem dreift var í morgun, að mér skilst, og ég hef ekki séð, þá hefði verið skynsamlegra að kynna mér og fjmrn. frv. fyrir fram svo hann gæti vænst einhverrar afstöðu hér í umræðunni. Mér finnst nú ekki sanngjarnt að spyrja hér um afstöðu til frv. sem mun hafa verið dreift í morgun. ( GHH: Ég spurði þig ekkert um það, ég bað þig bara að kynna þér þetta.) Nú, það er ágætt. Ég kynni mér öll frv., einnig frá hv. þm. Og það þarf ekkert að fara sérstaklega hér upp í ræðustól til að bjóða mönnum að kynna sér frv., það er bara almenn skylda hér í þinginu.
Ég verð hins vegar að segja það að þessi túlkun á hugtakinu afturvirkni er alveg makalaus, eins og hún kemur fram hjá hv. þm. Hún er á þann veg að einstaklingar sem ákvæðu að eignast barn saman og væru að horfa á það að það væri ákveðið kerfi barnabóta í gangi í landinu og væru þess vegna búin að reikna sér það að á næstu 10 -- 15 árum mundu þeir fá ákveðnar barnabætur með þessu barni og hefðu þess vegna ákveðið að geta saman barn. Síðan, eins og alltaf gerist í okkar landi, er lögum breytt um tekjuskatt og barnabætur. Ættu þá þessir einstaklingar að geta gert kröfu í nafni afturvirkni um það að það barnabótakerfi sem var við lýði þegar þeir ákváðu að geta barnið yrði áfram næstu 10 -- 15 ár? Og hvers konar kerfi yrði þá hér í landinu eiginlega? Það sjá auðvitað allir í hendi sinni að þetta er fáránleg skilgreining á hugtakinu afturvirkni. En það er sá skilningur sem hv. þm. hefur talað fyrir hér í þessu máli.
Hins vegar hefur það alltaf verið ljóst að bæði ég og embættismenn fjmrn. og skattkerfisins væru reiðubúnir að skoða sérhverja löggjöf og gera á henni betrumbætur út frá almennum sanngirnissjónarmiðum. Það höfum við gert í þessum efnum, reynum að bæta verkin og löggjöfina með eðlilegum hætti án þess að ganga gegn þeim almennu lagareglum og réttarfarsreglum sem þurfa að vera í okkar landi. Í anda þeirrar sanngirni og eðlilegra vinnubragða höfum við ákveðið að leggja til þessar breytingar.