Fyrirspyrjandi (Geir H. Haarde) :
Virðulegi forseti. Það sem auðvitað er um að ræða er spurningin um það hvort afturvirk ákvæði séu til íþyngingar eða ívilnunar. Þetta er grundvallaratriði í allri lagasetningu, ekki síst í skattamálum. Og afturvirkar íþyngingar standast ekki, þó fjmrh. vildi kannski gjarnan að svo væri. Og það er um þetta sem málið snýst. Það er ekkert athugavert við að gera breytingar sem horfa fram í tímann, en það er margt athugavert við það að gera breytingar sem svipta fólk rétti aftur í tímann, rétti sem það hafði áður byggt á, á grundvelli þeirra laga sem giltu þegar fólk gerði sínar ráðstafanir.