Fyrirspyrjandi (Málmfríður Sigurðardóttir) :
    Virðulegur forseti. Ég þakka hæstv. félmrh. svörin. Ég veit raunar að hún hefur fullan hug á að leysa þessi mál eins og kom fram í hennar máli. En eins og ég benti á, og hún líka, hefur þessi þörf eða eftirsókn farið vaxandi, þörfin hefur auðvitað verið fyrir hendi, en fólk hefur verið smám saman að skilja að það átti þennan rétt og þá eykst náttúrlega eftirsóknin eftir að nýta hann.
    Ég vil í ljósi þess sem hæstv. félmrh. sagði, að þetta er vitanlega undir fjárveitingarvaldinu komið, heita á þingmenn að leggjast allir á það mál að þessi þáttur fái viðhlítandi úrlausn í fjárlagagerð fyrir nk. ár.