Hreggviður Jónsson :
    Hæstv. forseti. Ég þakka bæði fyrirspyrjanda og hæstv. félmrh. fyrir svarið. Ég efast ekki um að hæstv. félmrh. muni í þessum málaflokki vinna hörðum höndum að því að stuðningsfjölskyldur fatlaðra barna fái þá aðstoð sem þörf er á. Þessi málaflokkur er erfiður og ég tel þetta góða aðferð til þess að styðja þær fjölskyldur og koma í veg fyrir að þær brotni undan því álagi sem þar er. Jafnframt spari þetta ríkinu stórfé, vegna þess að í þeim tilfellum er ekki til nema ein leið, að þau börn lenda á sólarhringsheimilum, sem eru mjög dýr í rekstri og jafnframt hefur það alvarlegar afleiðingar hjá fjölskyldum ef slíkt gerist. Ég vil því hvetja þingmenn hér og nú til að styðja félmrh. við að fá fjárveitingar til þessa verkefnis. Það eru ekki það háar fjárhæðir sem fara til þessa. Það er gífurlegur sparnaður á mörgum sviðum við að hafa þessa skipan mála. Ég fagna því að hæstv. félmrh. skuli vinna vel að þessum málum.