Fyrirspyrjandi (Egill Jónsson) :
Virðulegi forseti. Ég hef borið fram svofellda fsp. til hæstv. samgrh.:
,,1. Hver er ástæða þess að eftirtöldum framkvæmdum í Austurlandskjördæmi hefur samkvæmt bréfi flugmálastjóra til fjvn. ýmist verið frestað eða þær felldar niður árið 1990: Egilsstaðir, ný flugbraut, 30 millj. kr., Vopnafjörður, tækjageymsla, flutningur, 4,8 millj. kr., Bakkafjörður, lenging flugbrautar, 5,5 millj. kr., Fáskrúðsfjörður, flugbraut, 7,9 millj. kr., Borgarfjörður, öryggissvæði, 3,4 millj. kr. Samtals 51,6 millj. kr.
2. Hvar eru fengnar heimildir til að víkja frá flugmálaáætlun, sem var afgreidd á Alþingi 4. maí sl., eins og að framan er greint?``
Þessi fsp. byggir á samanburði milli þál. um flugmálaáætlun sem var afgreidd á Alþingi 4. maí og bréfi flugmálastjóra til fjvn. frá 8. okt. Við nánari athugun verður ekki séð að nein sérstök regla finnist fyrir þeim breytingum sem hér hafa verið gerðar, t.d. til samræmis við grundvallarmarkmið flugmálaáætlunar um röðun framkvæmda. Það verður heldur ekki séð að skuldastaða flugvalla eða framkvæmda frá fyrra ári réttlæti þessa ákvörðun heldur virðist hér miklu frekar um handahófsákvarðanir að ræða.
Nú er það svo að í fleiri tilvikum sem þessum eru afgreiddar áætlanir á Alþingi um sérstaka málaflokka. Ég minni t.d.
á vegáætlun sem jafnan er lögð mikil vinna í og miklar hefðir eru á um framkvæmd hennar. Engu hefur verið breytt í þessum efnum sem væri hægt að sækja fordæmi fyrir til fyrri ákvarðana. Hér virðist þess vegna um sérstæða og einstæða ákvörðun að ræða og þess vegna er þessi fyrirspurn komin hér fram. Í framhaldi af því hlýtur enn fremur að vakna sú spurning hvernig hæstv. samgrh. hyggst gefa þinginu, með formlegum hætti, skýringar á þeim ákvörðunum sem hér hafa verið teknar.