Flugmálaáætlun
Fimmtudaginn 01. nóvember 1990


     Landbúnaðarráðherra (Steingrímur J. Sigfússon) :
    Hæstv. forseti. Ég vil fyrst og fremst undirstrika það að flest þau frávik sem orðið hafa frá áður áformuðum framkvæmdum skv. flugmálaáætluninni stafa af því að ákveðin verkefni sem í gangi hafa verið hafa reynst kostnaðarsamari en til stóð og það hefur verið mat manna í framkvæmdinni að ekki væri um annað að ræða en ljúka þeim framkvæmdaáföngum sem þar áttu í hlut. Einnig þarf varla að útskýra að sumarið er háframkvæmdatíminn og það var ekki fyrr en með haustinu sem heildarmynd fékkst af því hvernig framkvæmdirnar stæðu. Það er þó rétt, sem hér kom fram hjá hv. þm., að í einstökum tilvikum, þar sem í hlut á tækjabúnaður sem tengist öryggismálum í flugi, hafa verið teknar ákvarðanir um ráðstafanir af slíku tagi sem hafa haft í för með sér kostnað umfram það sem áætlað hafði verið í frv. Mér dettur ekki í hug að neita því að slíkt hafi verið gert t.d. hvað varðar öryggisbúnað ýmsan og útbúnað á Reykjavíkurflugvelli, eins og vararafstöð, slökkvitæki og fleiri hluti. En stærstu framkvæmdaliðirnir tengjast framkvæmdum við lagningu slitlags á Ísafjarðarflugvelli og Vestmannaeyjaflugvelli og brautarframkvæmdir á nokkrum stöðum þar sem kostnaður við yfirstandandi verkáfanga hefur farið eitthvað fram úr áætlun. Þar er að sjálfsögðu um að ræða verkefni og framkvæmdir sem eru inni á flugmálaáætluninni og ætlaðir voru ákveðnir fjármunir í á þessu ári þó þeir dygðu ekki. Ég held að hv. alþingismenn verði að sýna nokkra sanngirni gagnvart því, sem jafnan er, að það er erfitt að áætla nákvæmlega upp á krónur og aura slíka framkvæmdaþætti. Ég spurði að því úr þessum ræðustóli um daginn, og get endurtekið það, hvað menn telji að Flugmálastjórn beri að gera þegar þannig háttar til að það vantar kannski nokkrar milljónir til þess að ljúka lagningu bundins slitlags á Vestmannaeyjaflugvöll eða Ísafjarðarflugvöll, að ljúka þeirri framkvæmd þó svo að verkið fari eitthvað fram úr kostnaðaráætlun sem lögð er til grundvallar eða stoppa og hafa flugvellina lokaða. Lái mönnum hver sem vill þó að þeir ætli að Alþingi geri ráð fyrir slíku svigrúmi innan hinnar samþykktu áætlunar. Þetta er fyrst og fremst spurning um það hversu nákvæmir menn vilja vera, hversu harðar kröfur menn vilja gera, eða hvaða svigrúm menn ætla framkvæmdaraðilunum, Vegagerðinni, Flugmálastjórn, byggingaraðilum stofnana o.s.frv., þegar áætlanir eru mótaðar. Ég held að Flugmálastjórn og samgrn. muni ekkert skorast undan, fyrir sitt leyti öðrum aðilum fremur, að framfylgja upp að því marki sem menn telja skylt slíkum áætlunum. Þá er fyrst og fremst nauðsynlegt að það svigrúm sem fyrir hendi er liggi ljóst fyrir. Ef menn ætla að binda þetta nánast við krónur og aura í hverjum einstökum framkvæmdaflokki er að mínu mati óhugsandi annað en að breyta uppsetningu slíkra áætlana og heimila framkvæmdaraðilanum ráðstöfun á einhverjum óskiptum lið sem er þá upp á að hlaupa þegar þannig ber undir. Öðruvísi er að mínu mati óhugsandi að svo viðamikill framkvæmdaflokkur geti gengið eðlilega fyrir sig ár frá ári. Ég teldi það að mörgu leyti skynsamlegri tilhögun að það væri regla að 15 -- 20% af framkvæmdafé hvers árs væri slíkur óskiptur og ómerktur liður sem framkvæmdaraðilinn hefði þá forræði á til þess að mæta breyttum aðstæðum og óvæntum uppákomum sem jafnan verða í þessum efnum eins og ýmsum öðrum. En ég held og vona að þetta mál sé allt að skýrast með eðlilegum hætti í samskiptum framkvæmdarvaldsins og fjvn. og ekki síst hafi nú kaffitíminn í fjvn. Alþingis í morgun verið mjög gagnlegur í þeim efnum.