Valgerður Sverrisdóttir :
Hæstv. forseti. Mér er nú algerlega óskiljanleg þessi viðkvæmni hv. 4. þm. Vesturl. í sambandi við þetta mál því að þetta er mál sem varðar okkur öll. Ef það yrði að veruleika að þarna fengist þokkalega góður sumarvegur vil ég benda hv. 4. þm. Vesturl. á það að það myndast fleiri hringvegir. Það opnast sá möguleiki að fara hálendisveg norður fyrir fólk sem býr hér á suðvesturhorninu og Vesturland suður, eða þótt það væri nú á hinn veginn. Ég er sem sagt hrædd um að það sé af misskilningi sem hv. 4. þm. Vesturl. tekur þennan pól í hæðina.
Um svar hæstv. ráðherra vil ég segja það að mér finnst kannski að hann gefi það ekki nógu mikið til kynna í sínu svari að þetta mál kalli á nokkuð skjót viðbrögð. Það er í sjálfu sér um þrennt að ræða. Þ.e. í fyrsta lagi að þarna leggi Landsvirkjun veg upp á 125 millj. sem nýtist ekki almenningi í landinu sem skyldi. Það vantar ekki nema 124 km upp á að þarna geti komið þokkalegur sumarvegur. Þetta er sem sagt einn kosturinn. Annar kosturinn er sá að bæta þarna við nokkrum, við skulum segja 20 -- 30, millj. kr. þannig að vegarlagningin verði á framtíðarvegarstæði og mundi þannig nýtast. Þriðji kosturinn er að fylgja þeim kostnaðaráætlunum og framkvæmdaáætlunum sem liggja fyrir frá Vegagerðinni. Þar yrði náttúrlega um mikið meira verk að ræða og kostnaðarsamara og gæti verið kannski upp á og yfir 300 millj. kr.
Nú er ég kannski ekki fyrst og fremst að tala um að kosta svo miklu til því að ég veit að við eigum mjög mikið ógert í landinu í vegamálum, heldur finnst mér miðkosturinn sem miðjumanneskju álitlegur í þessu sambandi.